Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar 19. ágúst 2026 07:31 „Frábært að eiga krónuna en ferlegt að skulda hana“, sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti, í mögnuðu viðtalið í Silfrinu. Þetta er kjarni málsins enda krónan „hálfgert vandræðabarn“ svo vitnað sé aftur til orða Guðna. Gjaldmiðillinn er ástæða þess að við greiðum hærra nauðsynjar en við þurfum, auk þess sem vextirnir sem henni fylgja eru ævintýralega háir. Þeir sem eru með húsnæðislán geta skoðað hversu mikið fer í vexti í hverjum mánuði. Fólk sem greiðir um 300 þúsund á mánuði af húsnæðinu sínu er að greiða rúmlega 200 þúsund í vexti. Á mánuði. Árum saman. Það segir sig sjálft að lækkun vaxta með gjaldmiðli sem hefur trúverðugleika, er ekki lengi að núlla út þessa ofreiknuðu 50 milljarða sem nú er fleygt fram sem kostnaði við að ganga í ESB. Vextirnir af gjaldeyrisvaraforðanum okkar eru um 30 milljarðar á ári. Ríkið greiðir um 100 milljarða á ári í vaxtakostnaði og við greiðum hlutfallslega meira í vexti af hóflegri skuldum en margar aðrar þjóðir. Og Guðni kom líka inn á staðreynd að íslensk, skuldsett heimili þurfa sífellt að vera að vega og meta hvað sé best að gera vegna óstöðugleikans. „Og þessi munur á Íslandi er bara meiri en víðast hvar annars staðar. Og hversu mörg heimili eru á Íslandi þar sem fólk hefur setið við eldhúsborðið fram á nótt og hugsað, er það verðtryggt lán sem við eigum að fá núna? Er það óverðtryggt? Eigum við að svissa yfir? Eigum við að hafa það jafnt?“ Orð að sönnu hjá Guðna. Mér finnst skynsamlegt að reyna að komast út úr þessu lotteríi með stærstu fjárfestingu venjulegs fólks. JÁ opnar möguleika á því, NEI þýðir óbreytt ástand. Þeir stjórnmálaflokkar sem segja að við getum bara lagað þetta sjálf, hafa farið með völd í áratugi, en aldrei tekist að breyta þessu. Það er holur hljómur í þeim málflutningi. Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sigmar Guðmundsson Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
„Frábært að eiga krónuna en ferlegt að skulda hana“, sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti, í mögnuðu viðtalið í Silfrinu. Þetta er kjarni málsins enda krónan „hálfgert vandræðabarn“ svo vitnað sé aftur til orða Guðna. Gjaldmiðillinn er ástæða þess að við greiðum hærra nauðsynjar en við þurfum, auk þess sem vextirnir sem henni fylgja eru ævintýralega háir. Þeir sem eru með húsnæðislán geta skoðað hversu mikið fer í vexti í hverjum mánuði. Fólk sem greiðir um 300 þúsund á mánuði af húsnæðinu sínu er að greiða rúmlega 200 þúsund í vexti. Á mánuði. Árum saman. Það segir sig sjálft að lækkun vaxta með gjaldmiðli sem hefur trúverðugleika, er ekki lengi að núlla út þessa ofreiknuðu 50 milljarða sem nú er fleygt fram sem kostnaði við að ganga í ESB. Vextirnir af gjaldeyrisvaraforðanum okkar eru um 30 milljarðar á ári. Ríkið greiðir um 100 milljarða á ári í vaxtakostnaði og við greiðum hlutfallslega meira í vexti af hóflegri skuldum en margar aðrar þjóðir. Og Guðni kom líka inn á staðreynd að íslensk, skuldsett heimili þurfa sífellt að vera að vega og meta hvað sé best að gera vegna óstöðugleikans. „Og þessi munur á Íslandi er bara meiri en víðast hvar annars staðar. Og hversu mörg heimili eru á Íslandi þar sem fólk hefur setið við eldhúsborðið fram á nótt og hugsað, er það verðtryggt lán sem við eigum að fá núna? Er það óverðtryggt? Eigum við að svissa yfir? Eigum við að hafa það jafnt?“ Orð að sönnu hjá Guðna. Mér finnst skynsamlegt að reyna að komast út úr þessu lotteríi með stærstu fjárfestingu venjulegs fólks. JÁ opnar möguleika á því, NEI þýðir óbreytt ástand. Þeir stjórnmálaflokkar sem segja að við getum bara lagað þetta sjálf, hafa farið með völd í áratugi, en aldrei tekist að breyta þessu. Það er holur hljómur í þeim málflutningi. Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar