Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar 16. ágúst 2026 14:31 „Þjóðin er gjörsamlega klofin í herðar niður,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins í Silfrinu á dögunum þegar rætt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Og Guðrún tók dýpra í árinni. Hún sagði málið vera farið að hafa áhrif á samskipti innan fjölskyldna; fjölskyldur gætu varla hist og dæmi væru um að börn hittu ekki foreldra sína vegna ágreinings um afstöðuna til ESB. Nokkrum dögum síðar sagði Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor að þjóðin væri „klofin í tvennt og afstaða fólks að harðna“. Þar var hann fyrst og fremst að vísa til stöðunnar í skoðanakönnunum. Fylkingarnar væru álíka stórar og úrslitin gætu ráðist af kjörsókn. Ekkert nýtt í þeim ummælum. En hvenær er þjóð í raun klofin? Er þjóð klofin þegar 51 prósent hennar er á einni skoðun og 49 prósent á annarri? Hvað ef hlutföllin eru 60 gegn 40? Eða 90 gegn 10? Ef það eitt að vera ósammála merkir að þjóð sé klofin er íslenska þjóðin alltaf klofin. Hún skiptist í afstöðu til stjórnmálaflokka, skattheimtu, kvótakerfisins, virkjana, borgarlínu, innflytjendamála og ótal annarra mála. Um sum þeirra skiptist hún í nokkurn veginn jafnstóra hópa, um önnur alls ekki. Stjórnmálaflokkar eru raunar til vegna þess að þjóðin er ekki á einu máli. Flokkslýðræði byggist á því að fólk hafi ólíkar hugmyndir um samfélagið, forgangsröðun og hvernig stjórna skuli landinu. Við kjósum ólíka flokka vegna þess að við erum ósammála. Ef allir væru sammála væru stjórnmálaflokkar óþarfir. Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, vék einmitt að þessu í viðbrögðum við ummælum Guðrúnar. Hann spurði til hvers ætti að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um mál sem almenn samstaða væri um og benti á að þjóðin væri „klofin í afstöðu sinni til“ ótal hluta, allt frá stjórnmálaflokkum og kvótakerfinu til Spaugstofunnar, lúpínunnar, Vals, KR og Nóa konfekts. Hann hitti naglann á höfuðið. Það er munur á því að þjóð sé ósammála um tiltekið mál og því að hún sé klofin. Skoðanamunur er ekki sjúkdómseinkenni á lýðræðissamfélagi. Hann er þvert á móti til marks um heilbrigða umræðu. Klofningur er miklu sterkara orð. Hann gefur til kynna að ágreiningurinn hafi öðlast slíka dýpt og hörku að hann hafi áhrif á samskipti fólks og afstöðu hópanna hvors til annars. Þá erum við farin að nálgast tortryggni og jafnvel fjandskap. Þjóð getur þess vegna skipst 50 á móti 50 í tilteknu máli án þess að vera klofin. Tveir einstaklingar geta verið algerlega ósammála um Evrópusambandið, rökrætt málið af hörku og kosið hvor með sínum hætti 29. ágúst. Þeir geta engu að síður sest saman yfir kaffibolla daginn eftir og haldið áfram að vera vinir, vinnufélagar eða fjölskylda. Heilbrigður ágreiningur snýst um málefni, ekki manneskjuna. Klofningur verður ekki til þegar ég er mjög ósammála öðrum einstaklingi. Hann verður til þegar ágreiningurinn breytir persónulegri afstöðu minni til hans, eða afstöðu hans til mín. Það er þess vegna vel mögulegt að þjóð sé raunverulega klofin þótt 90 prósent séu á einni skoðun og aðeins 10 prósent á annarri. Ef minnihlutinn er jaðarsettur, gagnkvæm tortryggni ríkir og fólk fer að meta hvert annað eftir því hvorum megin það stendur, getur orðið til djúpur samfélagslegur klofningur. Á sama hátt getur þjóð skipst nánast nákvæmlega til helminga án þess að slíkur klofningur sé fyrir hendi. Skoðanakönnun sem sýnir 51 prósent gegn 49 prósentum segir okkur því ekkert um það hvort þjóð sé klofin í félagslegum skilningi. Hún segir aðeins að þjóðin sé mjög ósammála um þá spurningu sem lögð er fyrir hana. Og er það ekki einmitt ástæðan fyrir því að efnt er til kosninga? Þjóðaratkvæðagreiðsla er ekki haldin vegna þess að allir séu sammála. Hún er lýðræðisleg aðferð til að fá niðurstöðu í máli þar sem ágreiningur er fyrir hendi. Meirihlutinn fær sínu framgengt en minnihlutinn heldur áfram að hafa fullan rétt til sinnar skoðunar. Lýðræði snýst nefnilega ekki um að eyða ágreiningi. Það snýst miklu fremur um að geta lifað með honum. Að geta tekist á um mikilvæg mál, stundum af mikilli hörku, án þess að gera þá sem eru ósammála okkur að andstæðingum í öðru en málefninu sjálfu. Það er til marks um heilbrigt lýðræði að fólk sé ekki á einu máli um mikilvæg mál. Það klýfur ekki þjóðina. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar