Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 10:00 Stundum er erfiðasta ákvörðunin ekki að segja já eða nei. Hún er að hafa hugrekki til að fara í samningaviðræður um aðild að Evrópusambandinu. Þegar kemur að umræðunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu tel ég hins vegar mikilvægt að verkalýðshreyfingin gæti hlutleysis í þeirri pólitísku umræðu, nema annað hafi verið sérstaklega samþykkt af viðeigandi lýðræðislegum vettvangi innan hreyfingarinnar. Það er því eðlilegt að við sem störfum innan verkalýðshreyfingarinnar getum tekið þátt í umræðunni sem einstaklingar, en gerum það þá skýrt sem persónulega skoðun en ekki sem afstöðu félagsins eða hreyfingarinnar. Við eigum að geta verið ósammála um leiðir og áherslur, en sameinast um það grundvallarmarkmið að bæta kjör launafólks. Þegar verðbólga, háir vextir, húsnæðiskostnaður og þrýstingur á kaupmátt hafa verið viðvarandi vandamál hlýtur það að vera skylda okkar að skoða alla raunhæfa möguleika. Okkur hefur einfaldlega ekki tekist nægilega vel að ná tökum á verðbógunni. Við verðum að þora að kanna aðrar leiðir sem gætu skilað betri árangri. Að kanna er ekki það sama og að samþykkja Grundvallarmisskilningur á sér stað í þessari umræðu. Að segja já við áframhaldandi viðræðum er ekki það sama og að segja já við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Við viljum sjá hvaða samningur gæti fengist. Við viljum vita hvaða skilyrði, undanþágur og fyrirkomulag gæti staðið Íslandi til boða. Við viljum geta lagt málið fyrir þjóðina með raunverulegar upplýsingar í höndunum. Af því loknu getum við tekið afstöðu. Hvers vegna ættum við að hafna því ferli áður en við vitum hver niðurstaðan verður? Hvað með hagsmuni launafólks? Ef við teljum að núverandi efnahagsumhverfi sé að bregðast launafólki verðum við að vera tilbúin að skoða hvort annað fyrirkomulag geti verið betra. Það á að vera verkefni okkar að afla upplýsinga, bera saman kosti og galla og meta áhrifin á kaupmátt, verðlag, atvinnu, húsnæði, efnahagslegan stöðugleika og stóraukin tækifæri fyrir launfólk til menntunar og styrkingar stöðu á vinnumarkaði. Sjónarmið launafólks þarf að heyrast, Það á að skapa vettvang þar sem fólk getur spurt erfiðra spurninga án þess að óttast átök eða persónulega gagnrýni. Við þurfum meiri yfirvegun, meiri umræðu og meiri vilja til að kynna okkur staðreyndir. Við þurfum ekki að vera sammála Það hafa margir sterkar skoðanir á Evrópusambandinu. Sumir telja að aðild yrði Íslandi til góðs, aðrir telja hana slæma hugmynd. Það er fullkomlega eðlilegt. En þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhaldandi viðræður þarf ekki að snúast um það hvor hópurinn hafi rétt fyrir sér í dag. Hún getur einfaldlega snúist um hvort við séum tilbúin að afla okkur betri upplýsinga. Það er mikilvægt að geta metið samning og hafnað honum ef ekki næst ásættanleg niðurstaða. Að segja nei við áframhaldandi viðræðum og hafna því fyrir fram að fá að sjá hvað slíkur samningur gæti falið í sér er stórundarleg afstaða. Já – til að sjá Við eigum ekki að óttast umræðuna. Við eigum að treysta fólki til að kynna sér málið, spyrja spurninga og mynda sér skoðun. Við eigum að treysta launafólki til að meta hvað þjónar hagsmunum þess best. Og við eigum að treysta þjóðinni til að taka lokaákvörðun þegar hún allar upplýsingar liggja fyrir. Já við því að skoða, rannsaka, semja og leggja niðurstöðuna fyrir þjóðina. Við ráðum ekki við verðbólguna með því að neita að skoða nýjar leiðir. Við bætum ekki kjör launafólks með því að loka umræðunni. Og við byggjum ekki upp sterka hreyfingu launafólks með því að óttast ágreining. Við eigum að þora að skoða. Við eigum að þora að spyrja. Við eigum að þora að komast að því hvaða samningi við getum náð. Og síðan eigum við að taka ákvörðunina. Það er ekki ábyrgðarleysi að vilja vita meira. Það er ábyrgð. Höfundur er formaður Bárunnar, stéttarfélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar