Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 29. júlí 2026 07:32 Umræða um hvað við gætum fengið í viðræðum við Evrópusambandið um aðild Íslands hefur verið hávær í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem nú er hafin. Félag forvitinna Íslendinga hefur keyrt áfram kosningabaráttu um að við eigum að „sjá“ hvað okkur býðst. Þessir sömu forvitnu hafa reyndar margir hverjir talað fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu árum og áratugum saman en það er annað mál. Lægri vextir og lægra matvælaverð með ýmsum reiknikúnstum hafa verið fyrirferðarmikil í þessari umræðu þrátt fyrir að engar slíkar upplýsingar sé að finna í aðildarsamningi ríkja við Evrópusambandið. Minna hefur farið fyrir umræðu um hlut Íslands í þessum viðræðum. Hvað er það sem Ísland lætur af hendi til Evrópusambandsins í skiptum fyrir meintan ávinning? Evrópusambandið er ekki leynifélag Að við höldum ekki á endanlegum aðildarsamningi Íslands við Evrópusambandið þýðir ekki að við vitum ekki hvað það þýðir að vera í sambandinu. Þetta er jú ekki leynifélag. Í grunninn snýst innganga ríkja í þetta ríkjasamband um völd, um ákvörðunarrétt Íslands. Öll ríki sem ganga inn í Evrópusambandið undirgangast víðtækt framsal löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds. Það þýðir að völd yfir okkar málum sem við höfum haft mikið fyrir því að eignast, síðan að halda í og að endingu varið öldum í að berjast fyrir, yrðu ekki lengur í okkar höndum, heldur í höndum erlendra aðila. Hvernig sem á það er litið yrðum við aðeins eitt af 28 ríkjum Evrópusambandsins og það með mjög lítið atkvæðavægi. Bæði yrðum við aðeins eitt af 28 ríkjum en ekki síst sem fámennasta ríkið. Evrópusambandið gengur út á miðstýringu og yfirþjóðlegt vald. Um það verður ekki samið og jafnvel ráðherrar og þingmenn já-sinna hafa viðurkennt að innganga í Evrópusambandið er innganga í kerfi sem ríki verða hluti af og við breytum ekki í grundvallaratriðum. Mergurinn málsins er því þessi: Erum við til í að gefa eftir löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald í skiptum fyrir eitthvað óskilgreint sem við teljum að sé dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Nei við að afhenda útlendingum völd yfir málefnum Íslands. Eftir að við Íslendingar tókum stjórn – fengum í skrefum völdin yfir eigin málum, höfum við farið frá því að vera líklega fátækasta ríki Evrópu í að verða eitt ríkasta land heims. Ég er þeirrar skoðunar að valdið eigi að vera sem næst fólkinu og að okkur muni farnast best með því að stýra áfram okkar málum sjálf. Tímabundin gylliboð Evrópusambandsins myndu því engu breyta. Ég veit að hverju ég bý. Á alla mælikvarða er það býsna gott. Engin haldbær rök hafa komið fram fyrir kúvendingu varðandi stefnu og framtíð Íslands. Ég segi nei við því að afhenda útlendingum völd yfir málefnum Íslands. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og 2. varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Diljá Mist Einarsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar