Arion banki hækkar gjöld Árni Sæberg skrifar 24. júlí 2026 12:17 Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka. Vísir/Vilhelm Arion banki hefur tilkynnt um breytta verðskrá fyrir einstaklingsþjónustu bankans, sem tekur gildi þann 23. september. Flest gjöld hækka um þrjú til fimm prósent.
Í tölvubréfi bankans til viðskiptavina segir að á undanförnum árum hafi takmarkaðar breytingar verið gerðar á verðskrám, þrátt fyrir umtalsverða hækkun vísitölu neysluverðs. „Nú hækkum við ýmsa gjaldaliði sem hafa staðið óbreyttir í mörg ár. Meðal annars liði þar sem við nýtum þjónustu þriðja aðila sem hefur hækkað sín verð á liðnum árum. Jafnframt eru sumir gjaldaliðir sameinaðir og aðrir fjarlægðir úr verðskrá.“ Nýja gjaldskrá einstaklinga hjá Arion banka má lesa hér. Í samantekt á vef Arion banka segir að helstu breytingar séu eftirfarandi: Lán Flest gjöld hækka um 3-5%. Lánshæfismat frá Creditinfo hækkar úr 995 kr. í 1.550 kr. í samræmi við verðskrá Creditinfo. Verðmat fasteigna framkvæmt af matsmönnum að kröfu bankans verður samkvæmt útlögðum kostnaði. Rafrænir greiðsluseðlar hækka um 3% og verða 134 kr. ef lán er í skuldfærslu. Póstlagðir greiðsluseðlar hækka úr 260 kr. í 400 kr. og úr 635 kr. í 695 kr. ef lán er ekki í skuldfærslu. Útibú/þjónustuver Flest þjónustugjöld hækka um 5%. Eldri borgarar 67 ára og eldri og börn yngri en 18 ára greiða ekki afgreiðslugjald. Ábyrgðarpóstur hækkar úr 1.495 kr. í 2.700 kr. Greiðslukort Endurútgáfa kreditkorts hækkar úr 2.100 kr. í 2.490 kr. Rafrænir greiðsluseðlar hækka um 3% og verða 134 kr. ef reikningur er í skuldfærslu. Póstlagðir greiðsluseðlar hækka úr 260 kr. í 400 kr. og úr 515 kr. í 550 kr. ef reikningur er ekki í skuldfærslu. Stofn- og færslugjald greiðsludreifingar hækkar um 3%. Afrit af gögnum/sölunótu hækkar um 4%. SMS þjónusta hækkar úr 11 kr. í 12 kr. Endurútgáfa debetkorts hækkar úr 1.290 kr. í 2.490 kr. „Við hvetjum viðskiptavini til að nýta stafrænu þjónustuleiðirnar okkar sem almennt eru ódýrari en þjónusta veitt í útibúi eða þjónustuveri,“ segir í samantektinni.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Frá Íslandsbanka til Íslandssjóða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira