Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Agnar Már Másson skrifar 24. júlí 2026 13:12 Jón Svanberg og Ólafur Magnússon. Aðsend/Gunnar Svanberg Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112.
Viðbragðsaðilar búa sig um þessar mundir undir aukið álag á Neyðarlínuna og fjarskiptakerfi landsins sem búist er við í kringum 12. ágúst – þegar fjöldi ferðamanna gerir sér leið til landsins til að sjá almyrkva á sólu. „Viðbúnaður Neyðarlínu er tvenns konar, annars vegar styrking á vakt 112 þar sem við svörum neyðarsímtölum sem má búast við á þessum tíma. Einnig erum við að styrkja samskiptainnviði sem við rekum. Það er verið að setja nýja senda á svæði og verða færanlegir sendar líka í notkun á þessum tíma,“ segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Þá hafa fjarskiptafélögin og viðbragðsaðilar einnig lagst á eitt til að styrkja fjarskiptakerfið. Ólafur Magnússon – sem er framkvæmdastjóri á tækni- og nýsköpunarsviði hjá Nova – segir að um sé að ræða samstarfsverkefni Nova, Símans, Sýnar, Mílu, Sendafélagsins, Almannavarna og Neyðarlínunnar. „Bæði með tímabundnum aðgerðum eins og að koma upp fjarskiptakerfum þar sem búist er við að verði töluverður mannsafnaður en líka með því að fara fyrr í endurbætur á dreifikerfum á þessum stað,“ segir Ólafur hjá Nova. Nú hefur Neyðarlínan gefið út aukaneyðarnúmer í kjölfar þess að borið hefur á vandræðum við að tengjast við Neyðarlínuna eftir að 2G- og 3G-kerfum var lokað hér á landi en það á einkum við um síma keypta erlendis og eldri síma. Nú verður einnig hægt að hringja í númerið 599-0112. Í neyð er mikilvægt að hringja fyrst í 112 þar sem að þá fer síminn í svokallaðan neyðarham. „En þegar þú hringir í þetta nýja númer 599-0112 þá er þetta eins og venjulegt símtal milli tveggja síma, þá kemur ekki staðsetning eða neitt slíkt og nýtur ekki forgangs í kerfinu,“ segir Jón Svanberg hjá Neyðarlínunni.
Fjarskipti Almyrkvi 12. ágúst 2026 Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira