Atvinnulíf

Ekki syrgja sumar­fríið (of snemma!)

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Margir finna kvíðahnút í maga eða til depurðar þegar stutt er eftir af fríinu. Eins og er hjá mörgum nú því víða fer allt á fullt á ný eftir verslunarmannahelgi og því aðeins rúm vika eftir. Sem er um að gera að njóta til hins ýtrasta.
Margir finna kvíðahnút í maga eða til depurðar þegar stutt er eftir af fríinu. Eins og er hjá mörgum nú því víða fer allt á fullt á ný eftir verslunarmannahelgi og því aðeins rúm vika eftir. Sem er um að gera að njóta til hins ýtrasta. Vísir/Getty

Úff! Nú þegar vika er í verslunarmannahelgina er ekki laust við að sumir séu að fá smá magahnút. Ekki vegna helgarinnar sem slíkrar heldur því að verslunarmannahelgin markar lok sumarfrísins fyrir marga.

Eftir versló fer síðan allt á fullt!

Hið daglega hversdagslíf tekur við, undirbúningur fyrir skóla krakkanna, jafnvel að byrja aftur í ræktinni eða einhverju átaki með haustinu.

Og jú; síðan er það vinnan.

Það skrýtna er að þótt fólk sé mjög ánægt í starfinu sínu getur það líka upplifað ákveðinn kvíða eða depurð síðustu dagana í fríi.

Eins og núna, þegar við vitum að það er stutt eftir.

Skýringin virðist frekar felast í breytingunni sjálfri. Í sumarfríi lifum við oft í allt öðrum takti. Við sofum lengur, höfum meira frelsi yfir deginum, tökum færri ákvarðanir og berum minni ábyrgð. Þegar fríinu lýkur þarf heilinn skyndilega að skipta yfir í skipulag, tímaáætlanir, verkefni og daglegar skyldur.

Harvard Business Review gefur nokkur góð ráð tengd þessu:

Að njóta síðustu daganna sem best og án þess að hugsa um of um það að fríinu sé að ljúka.

Að nýta tækifærið til að gera það sem við svo sannarlega viljum sleppa; allt frá góðum göngutúr yfir í að hitta vini, góðan kvöldverð eða bara eitthvað annað sem veitir þér mikla ánægju.

Tveimur dögum áður en vinna hefst á ný er þó mælt með því að reyna að aðlaga svefninn að því að rútínan sé að fara að hefjast á ný.

Það er líka ágætt að hafa í huga að hjá flestum hverfa þessar tilfinningar fljótt. Rannsóknir benda til þess að flestir séu komnir aftur í sinn eðlilega takt eftir örfáa daga í vinnu. Kaffibollinn með samstarfsfólkinu, verkefnin og daglega rútínan taka smám saman við og áður en varir er sumarfríið orðið að góðri minningu frekar en einhverju sem maður syrgir.


Tengdar fréttir

Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan

Púsluspilið fyrir sumarið er hafið. Sumir miða við að taka sér nokkur stutt frí, lengja helgar eða taka dag og dag. Sumir taka út frí í nokkrar vikur. Sumir skipta á milli sín skólafrístíma barna og fleira mætti telja til.

Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni

Við erum oft svolítið upptekin af því að klára allt sem þarf að klára fyrir sumarfrí. Og fáum síðan jafnvel samviskubit yfir því ef okkur tekst ekki að klára allt á verkefnalistanum áður en við förum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×