Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar 7. júlí 2026 09:04 Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu sýnilegur á vesturhluta landsins. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og því má áætla að um og yfir 70% landsmanna séð þetta stórbrotna náttúrundur að heiman frá sér. Á sama tíma verður deildarmyrkvi á öllu landinu austan slóðarinnar en á Norðfirði og Seyðisfirði hylur tunglið 95% af yfirborði sólar. Þetta mikla sjónarspil ætti að fanga athygli allflestra sem verða á landinu þennan dag. Von er á mörgum hingað til lands sem koma sérstaklega til að verða vitni að þessari sjaldgæfu sjón og því viðbúið að fjöldi gesta jafnt sem heimamanna verði á faraldsfæti. Til að dagurinn verði sem ánægjulegastur fyrir flest er mikilvægt að undirbúa sig vel. Verum viðbúin Þau sem ætla að ferðast til ákveðinna staða innan almyrkvaslóðarinnar ættu að skipuleggja ferðina í tíma. Skyndiákvarðanir verða ekki heppilegar þennan dag þar sem gert er ráð fyrir mikilli umferð og fæst vilja eflaust sitja föst í langri bílaröð á meðan þessi einstaki atburður gengur yfir. Undanfarið ár hafa stjórnvöld, sveitarfélög og stofnanir samhæft aðgerðir vegna viðbúnaðar, umferðarstýringar, náttúruverndar og móttöku gesta. Opinber upplýsingagátt var opnuð nú í vor á Island.is/almyrkvi-2026 og á sama tíma hefur Sævar Helgi Bragason sinnt öflugu fræðslustarfi á vef sínum, solmyrkvi2026.is. Á þessum vefsíðum er að finna allar upplýsingar um lokanir vega, tímabundna einstefnu, skoðunarstaði í sveitarfélögum á almyrkvaslóðinni og annað sem tengist viðbúnaði vegna almyrkvans. Mikilvægt er að kynna sér þessar upplýsingar ef landsmenn huga að því að ferðast á þessum degi. Góð ráð til ferðamanna Til að styðja við bakið á ferðaþjónustunni hefur Ferðamálastofa tekið saman hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig best sé að haga undirbúningi fyrir almyrkvadaginn. Þar er meðal annars ítrekað hve mikilvægt það er að nota viðurkennd sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með aðdraganda almyrkvans og síðan þegar hann fjarar út. Einnig er lögð áhersla á að gæta að umhverfinu, margir staðir þar sem búast má við fjölmenni þola takmarkaðan ágang. Þá eru ferðaþjónustuaðilar hvattir til að kynna sér upplýsingar um vegalokanir, skoðunarstaði og þá þjónustu sem verður í boði. Verum vel undirbúin og förum varlega Almyrkvi er sjaldgæfur atburður. Nærri 600 ár eru liðin frá því að almyrkvi á sólu sást síðast frá stöðum innan núverandi almyrkvaslóðar. Svo heppilega vill til að þar búa flestir landsmenn. Við erum því einstaklega heppin að fá að sjá þetta einstæða náttúruundur að heiman og því ekki tilefni til að ferðast langar vegalengdir. Þau sem ætla sér að aka milli landshluta ættu að vera undir það búin að það taki tíma og jafnframt að heimferðin gæti orðið lengri en vanalega. Skynsamlegt er að gera ráðstafanir sem henta þörfum hvers og eins því viðbúið er að mikið álag verður á þjónustu á almyrkvaslóðinni. Gleðilegan almyrkvadag! Með samstilltu átaki getum við tryggt að almyrkvinn 12. ágúst 2026 verði ekki aðeins stórkostlegt sjónarspil, heldur líka örugg og ánægjuleg upplifun. Verum því vel undirbúin. Njótum þess að fylgjast með að heiman en þau sem hyggjast ferðast ættu að gera ferðaáætlanir í tíma. Höfundur er yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Almyrkvi 12. ágúst 2026 Lögreglan Mest lesið Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar