Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar 6. júlí 2026 13:00 Í grein sinni Breyttar áherslur í borgarskipulagi hér á Vísi fagnar Þórarinn Hjaltason fyrirhugaðri uppbyggingu Reykjavíkur til norðurs. Hann telur að þar með sé verið að hverfa frá „ofurþéttingu“ og að breytt byggðarstefna kalli á endurskoðun Borgarlínu og samgönguskipulags höfuðborgarsvæðisins. Það er eðlilegt að endurmeta forsendur þegar byggðarstefna breytist. Af því leiðir þó ekki að draga eigi úr áherslu á almenningssamgöngur. Þvert á móti ætti ný byggð til norðurs frá upphafi að vera skipulögð í kringum öflugt almenningssamgöngukerfi. Annars er hætt við að byggðin verði fyrst dreifð og bílháð en síðar verði reynt að koma þar fyrir samkeppnishæfum almenningssamgöngum. Þá eru ferðavenjur orðnar bílbundnar, gatnakerfið hannað fyrir mikla bílaumferð og erfitt að finna samfellt rými fyrir hraðar og áreiðanlegar almenningssamgöngur. Umræðan um Borgarlínu sýnir einmitt hversu erfitt er að breyta slíku kerfi eftir á. Uppbygging til norðurs er ekki andstæða þéttingar Þórarinn virðist leggja að jöfnu samgönguskipulag á óbyggðu landi og breytingar á gróinni byggð þar sem einkabíllinn hefur lengi verið ráðandi. Sá samanburður horfir fram hjá gjörólíkum forsendum. Ný hverfi geta verið þétt, blönduð og samgöngumiðuð þótt þau rísi utan núverandi byggðar. Þau geta líka orðið dreifð og bílháð. Það ræðst fyrst og fremst af skipulaginu, ekki staðsetningunni einni. Eðlilegast væri að lega almenningssamgönguáss lægi fyrir áður en hverfin eru hönnuð. Þéttasta byggðin, þjónusta, skólar og vinnustaðir ættu að vera næst stöðvum og í góðum göngu- og hjólatengslum við þær. Það er ekki „ofurþétting“ heldur skynsamleg samhæfing byggðar og samgangna. Suðurlandsbraut er meira en gata fyrir bíla Þórarinn leggur áherslu á að halda tveimur almennum akreinum í hvora átt á Suðurlandsbraut og bæta fremur afköst gatnamóta. Það er gild samgöngutæknileg nálgun en tekur aðeins til hluta verkefnisins. Hlutverk Suðurlandsbrautar er ekki aðeins að flytja bíla heldur fólk. Gatan þarf jafnframt að þjóna almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi og tengja saman byggð, vinnustaði og þjónustu. Stuttar forgangsakreinar við hægri kant og ljósastýring geta hjálpað strætó. En vagn sem fær forgang við ein gatnamót en situr síðan fastur í almennri umferð verður áfram óáreiðanlegur. Ekki má dæma kerfið út frá einum götukafla Gagnrýni á Borgarlínu beinist oft að Suðurlandsbraut. Það er skiljanlegt, enda eru breytingarnar þar sýnilegar. Borgarlína er hins vegar kerfisbreyting. Takmarkaðar breytingar á einum götukafla verður að meta í samhengi við allt leiðakerfið. Áreiðanleiki almenningssamgangna ræðst meðal annars af veikasta hlekknum. Tafasöm leið á einum stað getur haft áhrif á ferðatíma og tengingar víða. Þess vegna er varasamt að hafna heildarkerfinu á þeirri forsendu að finna megi ódýrari staðbundna lausn á einum stað. Endurskoðun má ekki verða afturhvarf Auðvitað þarf stöðugt að endurskoða kostnað, áfangaskiptingu og útfærslu Borgarlínu. En endurskoðun má ekki verða dulbúið afturhvarf til þeirrar hugmyndar að leysa megi samgönguvanda vaxandi borgarsvæðis fyrst og fremst með fleiri akreinum, mislægum gatnamótum og auknu framboði bílastæða. Einkabíllinn verður áfram mikilvægur. Markmiðið er ekki að útrýma honum heldur að fólk þurfi ekki að nota hann í allar ferðir. Markmiðið er að skapa fleiri raunhæfa valkosti. Uppbygging til norðurs er tækifæri til að gera betur. Almenningssamgönguás, skólar, þjónusta og þéttasta byggðin þurfa að vera skipulögð saman frá upphafi. Þórarinn hefur rétt fyrir sér um að forsendur þurfi að endurmeta. En breytt byggðarstefna er ekki sjálfkrafa rök fyrir minni áherslu á sérrými eða öflugar almenningssamgöngur. Ný byggð til norðurs ætti ekki að verða stækkun bílaborgarinnar. Hún ætti að sýna hvernig byggð og samgöngur geta þróast saman á hagkvæman og framsýnan hátt. Höfundur er fyrrverandi yfirverkfræðingur Samgöngustjóra borgarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar