Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar 4. júlí 2026 10:57 Það er einn þáttur í umræðunni um Evrópusambandið og hugsanlega aðild Íslands sem ég velti oft fyrir mér. Hann snýr að því sem gjarnan er kallað „hernaðarbrölt ESB“. Hernaðarbrölt Sumir ganga svo langt að halda því fram að ESB stefni að herskyldu og að aðild Íslands myndi á endanum skylda okkur til að ganga í svokallaðan „Evrópuher“. Sú fullyrðing er hins vegar sett fram án þess að tekið sé mið af því að ESB er samstarf fullvalda ríkja, ekki sambandsríki á borð við Bandaríkin. Aðildarríkin halda áfram fullveldi sínu á sviði varnarmála og ákvarðanir um þátttöku í hernaðaraðgerðum eru áfram á þeirra forræði. Aukin útgjöld Evrópuríkja til varnarmála eru mörgum þyrnir í augum og eru jafnvel notuð sem „sönnun“ þess að Evrópusambandið sé á rangri leið og að Íslandi beri að halda sig fjarri því. Flest kjósa frið Flest okkar myndu hins vegar kjósa heim þar sem ekki þyrfti að verja sífellt meiri fjármunum til varnarmála. Enginn vill sjá samfélög neyðast til að verja sífellt stærri hluta sameiginlegra fjármuna í hernað. En sú ósk breytir ekki þeirri staðreynd að öryggisumhverfi Evrópu hefur gjörbreyst frá innrás Rússlands í Úkraínu. Pirringur Það sem pirrar mig við þessa umræðu er ekki að fólk vilji frið – það viljum við öll. Það sem pirrar mig er þegar horft er fram hjá ástæðunum fyrir því að ríki telja sig þurfa að efla varnir sínar. Um leið er oft litið fram hjá hlutverki NATO, sem hefur í áratugi byggst á fælingarmætti: að gera hugsanlegum árásaraðila ljóst að árás muni hafa það mikinn kostnað í för með sér að hann láti hana eiga sig. Ég sé enga rómantík í þeirri hugmynd að hægt sé að velja frið með því einu að hafna öllum vörnum. Ég er sannfærður um að Úkraínumenn myndu allir kjósa frið fremur en stríð. Sama gildir um almenna borgara á Gaza eða annars staðar þar sem fólk býr við ófrið. En friður næst ekki alltaf með því að vilja hann. Hann krefst þess stundum að samfélög séu fær um að verja sig. Samlíking Mér datt þessi samlíking í hug þegar ég las Facebook-færslu þar sem bent var á galla íslensks samfélags: græðgi, vaxandi ójöfnuð og lélega hagstjórn. Flest íslensk heimili lifa með miklum skuldum. Við búum við kerfi þar sem vextir geta hækkað hratt, verðtryggð lán hækka með verðbólgu og reglur sem hafa áhrif á greiðslubyrði heimilanna breytast reglulega. Margar fjölskyldur verja sífellt stærri hluta tekna sinna í að halda höfðinu rétt yfir vatni. Við myndum miklu frekar vilja verja þessum fjármunum í börnin okkar, betra heimilishald, frístundir, íþróttir eða einfaldlega aukin lífsgæði. En í staðinn neyðumst við til að verja æ stærri hluta tekna okkar í að verjast afleiðingum kerfis sem virðist oftar en ekki hygla fjármálakerfinu fremur en almenningi. Á sama hátt og sumir gagnrýna Evrópu fyrir að verja meiri fjármunum í varnir vegna versnandi öryggisástands, mætti segja að íslenskar fjölskyldur séu líka í sínu eigin „varnarstríði“. Þær eru ekki að verja fjármunum í það af því að þær kjósi það, heldur vegna þess að þær telja sig ekki eiga annan raunhæfan kost. Kannski er það einmitt kjarni málsins. Það er auðvelt að fordæma kostnað við varnir þegar maður lítur fram hjá ógninni sem þær eiga að bregðast við. Og það er jafn auðvelt að gagnrýna heimili fyrir að verja stórum hluta tekna sinna í skuldir, án þess að horfa til þess kerfis sem setur þau í þá stöðu. Fyrst þarf að skilja orsök vandans. Aðeins þá er hægt að ræða lausnir af yfirvegun. Höfundur er verkfræðingur á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar