Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 3. júlí 2026 13:02 Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst skipti miklu máli fyrir okkur Íslendinga. Viljum við sjá hvaða raunverulega möguleika við fyrir komandi kynslóðir? Skoðum hér: Hvað erum við í raun að kjósa um? 1. Við erum EKKI að kjósa um aðild að ESB Þjóðin er ekki að kjósa um hvort Ísland gangi í Evrópusambandið. Við erum að kjósa um hvort halda eigi áfram viðræðum og ljúka samningi sem þjóðin getur síðan metið og tekið upplýsta afstöðu til. (Innleiðing nýrra samningsatriða efst verði eftir já / nei við samningum) Ef við stöðvum ferlið núna fáum við aldrei að vita hvaða kjör Ísland hefði getað samið um. 2. Við vitum ekki hvernig samningurinn verður! Í dag veit enginn: hvernig sjávarútvegsmál yrðu leyst, hvaða ákvæði myndu gilda um auðlindir, hvernig landbúnaðarmál yrðu útfærð, eða hvaða sérlausnir Ísland gæti samið um. Það er einfaldlega ekki hægt að dæma samning sem hefur ekki verið gerður. Áfram Ísland felst ekki í því að loka dyrum heldur að opna þær. Við verðum að skoða alla möguleika, velja bestu leiðina og tryggja Íslandi sterkustu stöðu til framtíðar. Þannig sköpum við fleiri tækifæri, öflugra samstarf og betri lífskjör fyrir komandi kynslóðir Íslendinga. 3. Heimurinn hefur gjörbreyst Frá árinu 2008 hefur heimurinn tekið stakkaskiptum. Við höfum upplifað; fjármálakreppur, Brexit, heimsfaraldur, innrás Rússlands í Úkraínu, orkukreppu, hraða þróun gervigreindar og nýja samkeppni um fjárfestingar, þekkingu og öryggi. Í þessari nýju heimsmynd skipta sterk alþjóðleg tengsl meira máli en áður. 4. Ísland hefur einstaka styrkleika – nýtum þá enn betur Ísland er ekki fátækt af tækifærum. Við eigum: verðmæt fiskimið, hreina endurnýjanlega orku, hreint vatn, öflugt menntakerfi, mikla sérþekkingu í sjávarútvegi, öflugt nýsköpunarumhverfi, og einstaka stöðu á Norðurslóðum. Við þurfum að fá svar við því hvernig við getum nýtt þessa styrkleika sem best fyrir komandi kynslóðir. 5. Raunveruleikinn – berum saman Möltu og Ísland Malta gekk í ESB árið 2004 og tók upp evru 2008, en hefur hvorki fiskimið, jarðhita né þær náttúruauðlindir sem Ísland býr yfir. Frá inngöngu í ESB hefur Malta byggt upp öflugt atvinnulíf og nýtur nú: lægri vaxta, greiðari aðgangs að fjármagni, stöðugra efnahagsumhverfis, alþjóðafyrirtæki opna útibú, og fulls aðgangs að innri markaði Evrópu. Samkvæmt gögnum Evrópska Seðlabankans hafa ný húsnæðislán á Möltu verið með um 2% meðalvexti en íslensk heimili þurfa nú að greiða um 10% vexti. Hver og einn getur reiknað hversu mikið Íslendingar greiða aukalega á ári í vexti. Staðan er í raun glæpsamleg gagnvart ungum Íslendingum. Er núverandi staða okkur sæmandi? Þessi yfirgengilegu vaxtakjör hafa mikil áhrif á húsnæðiskaup, fjárfestingar, atvinnulíf og lífskjör. Spyrjum okkur: Ef Malta hefur náð þessum árangri án þeirra auðlinda sem Ísland býr yfir, hvað gæti Ísland þá áorkað með sterkum samningi og hagstæðara efnahagsumhverfi? 6. Menningin og íslensk tunga eru líka framtíðarmál Í umræðunni gleymist stundum að framtíð Íslands snýst ekki aðeins um efnahag. Hún snýst einnig um íslenska tungu, menningu og sjálfsmynd þjóðarinnar. Sumir óttast að nánara samstarf við Evrópu veiki sérstöðu Íslands. En reynslan af smáþjóðum innan Evrópusambandsins bendir ekki til þess. Þvert á móti hefur Evrópusambandið um árabil stutt við tungumál, bókmenntir, kvikmyndagerð, rannsóknir og menningarstarf smáríkja. Ísland með aðeins um 400 þúsund íbúa getur illa haldið sinni menningu og tungumáli eitt og sér. Við viljum öll varðveita íslenska menningu. Spurningin er hvernig við gerum það best á næstu 50 árum. 7. Hvað er öryggi þjóðar? Öryggi Íslands snýst ekki lengur aðeins um hernaðarógnina. Við þurfum líka að meta: efnahagslegt öryggi, orkuöryggi, netöryggi, fæðuöryggi, og getu samfélagsins til að bregðast við stórum náttúruhamförum. Við Íslendingar þekkjum eldgos, jarðskjálfta og snjóflóð betur en flestar Evrópuþjóðir. Þess vegna skiptir alþjóðlegt samstarf og öflug bandalög okkur miklu máli. „Þú tryggir ekki eftir á“ Við verðum að byggja upp okkar innri varnir og að taka þátt í samstarfi með þjóðum sem standa okkur næst. Látum ekki blekkja okkur – fáum að sjá samninginn Lýðræði byggir á upplýsingum - ekki ótta eða getgátum. Heldur því að þjóðin hafi allar staðreyndir á borðinu áður en hún tekur afstöðu. Þess vegna tel ég að mikilvægasta spurningin í ágúst sé ekki hvort menn séu fylgjandi eða andvígir Evrópusambandinu – heldur: Eigum við að taka ákvörðun um eitt stærsta framtíðarmál Íslands án þess að fá fyrst að sjá samninginn? Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun og áhugamaður um framtíð og öryggi Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar