Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Jón Þór Stefánsson skrifar 2. júlí 2026 22:10 Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Vísir/Einar Benedikt S. Benediktssyni, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, þykir ófaglegt að Samkeppniseftirlitið hafi gefið út umræðuskjal um eldsneytismarkað sem að hans mati innihalda ávirðingar í garð olíufélaganna.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Sýnar. Í þessu skjali kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili, og að olíufélög hafi hækkað verðið dagana fyrir gildistöku virðisaukaskattslækkunar á eldsneyti. Í tilkynningu frá eftitlitinu sem send var út í morgun sagði að að verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum hafi aukist á síðustu árum, og að vísbendingar væru um að þegjandi samhæfing á eldsneytismarkaði væri að eiga sér stað. Benedikt segir þetta í annað skiptið á skömmum tíma sem Samkeppniseftirlitið birti slíkt skjal án þess að leita skýringa. Fyrra skiptið varðaði umræðuskjal um dagvöruverslanir. „Það sem okkur þykir vanta í myndina, og við höfum áhyggjur af, er að þetta er í annað skiptið sem eftirlitið birtir slík skjöl þar sem önnur hliðin er sýnd. Það er að segja, verðhliðin. Það er hins vegar ekkert gert í því að horfa í þá hlið hvort það séu einhverjar skýringar á bak við þetta, einhverjar rökréttar ástæður að baki þessu,“ segir Benedikt. Hann nefnir að í lok skjalsins um eldsneytismarkaðinn sé talað um að ef til vill eigi stjórnvöld að bregðast við, og jafnvel að eftirlitið muni sekta þessa aðila á olíumarkaði. Hann segir það mjög sérstakt. „Við höfum litið svo á að Samkeppniseftirlitinu beri að gæta að hlutleysi,“ segir Benedikt og nefnir til samanburðar álíka sænskt skjal sem hann las á dögunum. „Þá sér maður að menn eru að leita skýringa í þessum skjölum, og ef það er óvissa uppi þá er vakin athygli á því og jafnvel settar fram ágiskanir um það hverjar skýringarnar gætu verið. En hér er þetta, verð ég að segja, einhliða í ákveðna átt,“ segir hann. „Heildarsamhengið er að það eru settar fram verulegar ávirðingar, að því er virðist jafnvel undir hótunum um viðurlög, án þess að fyrirliggjandi sé einhver fullnægjandi rannsókn á því hvað er um að vera.“ Benedikt segir að það sem honum finnist sérstakt í málinu sé að Samkeppniseftirlitið hafi samkvæmt hans vitund verið að kalla eftir gögnum og ætti því að hafa mikið af þeim undir höndum. „Það getur verið að þeim hafi ekki unnist tími til að ljúka skoðun á þeim, en þá veltir maður fyrir sér: Af hverju þessi tímapunktur? Að gefa þetta út með þessum ávirðingum ef þú getur ekki útilokað að það séu einverjar afsökunarástæður þarna að baki? Finnst þér að olíufélögunum vegið? „Mér finnst þetta bara ófaglegt. Mér finnst það bara mjög sérstakt að opinbert stjórnvald, sérstök stofnun sem á að gæta hlutleysis, gangi fram með þessum hætti, og beinlínis segi að allar vísbendingar eru um að einhver hafi gert eitthvað af sér, en tekur á sama tíma fram að þeir séu ekki búnir að skoða málið.“
Samkeppnismál Bensín og olía Neytendur Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira