Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir og Jónína Rósa Hjartardóttir skrifa 19. júní 2026 08:03 Þann 19. Júní árið 1915 fengu konur, 40 ára og eldri, kosningarétt til Alþingis og fimm árum síðar fengu þær kosningarétt til jafns við karlmenn. Það er sannarlega við hæfi að við minnumst þeirrar baráttu sem konur háðu til að öðlast aukin réttindi. Við tók tími þar sem dropinn holaði steininn, samtakamáttur kvenna jók ekki bara réttindi okkar heldur breytti viðhorfum, hægt en örugglega fóru konur að sjá og trúa hvað í þeim bjó. Þær kröfðust þess að vera teknar alvarlega og fá sæti við borðið þar sem ákvarðanir voru teknar. Þökk sé sigrum fortíðarinnar þá vitum við hvað okkur er mögulegt að gera. Við viljum því nýta tækifærið og varpa fram spurningunni: „Hvern vantar enn við borðið?“. Samfélagið okkar fer á mis við mikilvægan mannauð Þrátt fyrir framfarir í kvennréttindabaráttu standa fatlaðar konur og kvár enn höllum fæti í samfélaginu. Enn þann dag í dag er raunverulegur kosningaréttur ekki tryggður fyrir hópinn vegna skorts á aðgengi, viðeigandi aðlögun og einstaklingsbundnum stuðningsþörfum. Á þetta einnig við almennt um stjórnmálastarf og þátttöku. Við erum síður sýnileg í leiðtogastörfum, stjórnmálum, stjórnum fyrirtækja, nefndum, ráðum og öðrum vettvangi þar sem ákvarðanir eru teknar og viðhorf fest í sessi. Samfélagið okkar fer því á mis við mikilvægan mannauð fatlaðs fólks með einstakann reynsluheim sem þó allir geta orðið hluti af einhvern tímann á lífsleiðinni. Hindranirnar liggja viðhorfum Viðhorf til fatlaðs fólks, sér í lagi fatlaðra kvenna og kvára er gegnsýrt af forræðishyggju og feðraveldi. Við búum mörg við þann veruleika að þurfa að verja auknum tíma og orku í að finna leiðir framhjá hindrunum í manngerðum kerfum sem annað fólk tekur ekki eftir. Það krefst aðlögunar og oft aðstoðar annarra í daglegu lífi og er okkur því sjaldan treyst til að taka afdrifamiklar ákvarðanir, vera í leiðtogastörfum og þátttaka í stjórnmálum er mörgum fjarlægur draumur. Þau okkar sem hafa áhuga á slíkum störfum festast í vítahring viðhorfa og úrræðaleysis sem viðheldur þeirri ranghugmynd að fatlaðar konur og kvár hafa ekkert mikilvægt fram að færa. Þau fáu sem koma að borðinu eru oft notuð í tókenisma þar sem sköpuð er ásýnd inngildingar án þess þó að einstaklingur fái að hafa raunveruleg áhrif. Viðhorf þessi viðhalda mismunun og hindra fatlaðar konur og kvár í að byggja upp hæfni sína í leiðtogahlutverkum. Vissulega höfum við séð nokkra fatlaða leiðtoga á þingi sem brutu niður múra. En það ber hinsvegar að hafa í huga hve mikið þeir hafa þurft að berjast gegn straumi margþættrar mismununar og í kjölfarið eytt margfalt meiri orku til þess eins að vera tekin alvarlega, þegar það kemur sjálfkrafa fyrir aðra ófatlaða í sömu stöðu. Umræða um bakslag í mannréttindabaráttunni snertir okkur öll. Þó Samningur Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafi loks verið lögfestur er ennþá langt í land með að breyta viðhorfum og tryggja að okkar lögvernduðu réttindi séu álitin sjálfsögð. Samtakamáttur kvenna og kvára gerir okkur margfalt sterkari, ef ekki væri fyrir hann værum við ef til vill enn með kosningarrétt 40 ára. Við hvetjum ykkur öll til að rýma til við borðið, færa það til svo fleiri komist upp að því, hlustið, heyrið og treystið okkur. Það er langbesta leiðin til að viðhalda og auka réttindi allra kvenna og kvára. Höfundar eru Jana Birta Björnsdóttir, verkefnastýra Tabú - feminískrar fötlunarhreyfingu, og Jónína Rósa Hjartardóttir, formaður Átaks - félags fólks með þroskahömlun Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun