Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Rakel Sveinsdóttir skrifar 21. júní 2026 07:00 Gamla Morgunblaðshúsið í Kringlunni og RÚV byggingin í Efstaleiti báru lengi keim af þeim stjórnunartíma þegar vinnurými eins og stórar hornskrifstofur endurspegluðu vald og skipurit. Í Borgartúni hafa líka fjölmargir vinnustaðir breyst verulega innanhús í takt við breyttan samtíma, opnu vinnurýmin tóku við en hvað ætli gerist næst? Vísir/Vilhelm Í söguhorninu í dag ætlum við að velta fyrir okkur hvernig vald á vinnustöðum var áður sýnilegra og hversu mikið vinnustaðir hafa breyst miðað við mismunandi áherslur í stjórnun og samfélagi.
Því í áratugi var vald oft sýnt á vinnustöðum með stórum forstjóraskrifstofum. Helst með ritara fyrir framan skrifstofuna eða nálægt. Karlinn var forstjórinn. Konan var ritarinn. Hornskrifstofurnar voru jafnvel þær sem sýndu valdið hvað mest. Ólíkt því sem nú er. Þegar forstjórar og framkvæmdastjórar sitja víða í opnum vinnurýmum eins og hver annar starfsmaður á skrifstofunni. Já, svo sannarlega hafa vinnustaðir tekið stakkaskiptum síðustu árin. Þar sem eflaust sitt sýnist hverjum um breytingarnar. Ekki aðeins með tilliti til vinnuaðstöðunnar eða hverjir sitja hvar. Heldur hvernig þróunin hefur verið í stjórnun vinnustaða: Að undirstrika vald sitt sem stjórnandi þykir ekki smart í dag. Ólíkt því sem áður var… Sagan í tímalínu Lengst af í atvinnulífinu voru skrifstofur reyndar hvorki stórar né flottar. Allra síst á Íslandi þar sem æðstu stjórnendur voru oftast eigendur fyrirtækjanna, sumir hverjir með smá kitru á bak við, reiknivél á borði og fullt af blaðabunkum. Reyktu jafnvel vindlinga í litlum og gluggalausum rýmum. Almennt virðast skrifstofur hafa verið frekar fáar í atvinnulífinu á 19. öld. Yfirmenn sátu þó oft í sérherbergjum með yfirsýn yfir starfsfólkið. Svona svipað og við sjáum oft í bíómyndum: Verksmiðja með skrifstofurými fyrir stjórann á efri hæð; gluggar vísa ekki út úr byggingunni heldur yfir verksmiðjusalinn. Skýringin á þessu var að almennt þótti eftirlit með starfsfólki skipta svo miklu máli. Þetta átti sérstaklega við um verksmiðjur og hjá ríkisstofnunum. Valdið hafði þá sá sem eftirlitið hafði. Um eða upp úr 1920 og fram til ársins 1950 verður síðan skrifstofan til í þeirri mynd sem við þekkjum hana. Millistjórnendur fara á þessum tíma líka að fá eigin herbergi og með vexti og þróun stórfyrirtækja fer valdkerfið að sýna sig þannig að almennt starfsfólk sat saman í frekar opnu rými og miðlægu. Á meðan fengu stjórnendur skrifstofur og sérrými. Því meira vald, því flottari skrifstofa. Forstjóraskrifstofurnar verða til fyrir alvöru á þessum tíma. Enn bætist síðan í tímabilið 1950–1990. Sem lýsa má sem gullöld hornskrifstofunnar. Því á þessum tíma þróast flottustu stjórnendaskrifstofurnar í að verða hornskrifstofur, með gluggum og útsýni. Svo eftirsóttar urðu hornskrifstofur að á vefsíðu Hermanns Miller, þekkts framleiðanda skrifstofuhúsgagna, er því haldið fram að um tíma hafi arkitektar reynt að hanna byggingar með fleiri hornum. Sjónvarpsþættir og bíómyndir ná oft að fanga mjög vel tíðarandann og áherslur í stjórnun og sýnileika valds á vinnustöðum en í kringum 2010 fara tæknifyrirtæki eins og Facebook og fleiri í Kísildal að breyta vinnurýmum og opna. Valdið og sýnileikinn En það var ekki aðeins stór skrifstofa sem sýndi vald forstjórans. Því almennt tíðkaðist að fyrir framan skrifstofuna sat ritari og síðar aðstoðarmaður. Sem þýddi að til að komast að forstjóranum þurfti einfaldlega fyrst að komast í gegnum hjá þeim aðila. Þá var hægt að meta vægi stöðugilda og stjórnenda miðað við stærð eða staðsetningu skrifstofa. Gluggalaus rými í kjallara eru dæmi um skrifstofurými sem í raun endurspegluðu að tiltekinn stjórnandi taldist ekki hafa mikið vægi í skipuritinu. Upp úr 1990 og til ársins 2010 fer hins vegar að verða vart við algjöra stefnubreytingu. Ekki aðeins í vinnuaðstöðu heldur einfaldlega í viðhorfi til stjórnenda og valds. Tæknifyrirtækin eru sögð hafa leitt þessa þróun og almennt er talað um að það hafi verið Kísildalurinn í Bandaríkjunum sem á endanum breytti leiknum. Því með fyrirtækjum á borð við Google og Meta er farið að horfa allt öðruvísi á vinnustaðarýmin. Meira er horft til mannauðsins og hvernig hægt sé að efla hugmyndaauðgi, sköpunarkraft, samvinnu og svo framvegis. Sitt sýndist þó hverjum. Þegar Atvinnulífið hóf göngu sína á Vísi hér um árið vakti til dæmis viðtal um opin vinnustaðarými þó nokkra athygli og usla. Margir voru ósáttir og jafnvel í uppnámi yfir breytingunum. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar Atvinnulífið fjallaði um opin vinnurými hér um árið. Sem nú þykir meira norm en hitt. Með opnum vinnurýmum færðist áherslan frá því að sýna vald mismunandi stöðugilda yfir í samvinnu og teymi. Með klónun og stafrænum tvíburum má ætla að næsta spurning verði: Hverjir verða samstarfsmennirnir? Og hvað ætli verði þá um opnu vinnurýmin?Vísir/Vilhelm Á Íslandi hefur þróunin þó verið í þá áttina að opnu vinnurýmin þykja í dag normið frekar en hitt. Skipuritin eru þannig ekki spegluð lengur með lokuðum sérrýmum stjórnenda. Valdið er þó ekki horfið og jafnvel að hlutverk stjórnenda sé margslungnara en nokkru sinni fyrr. Þá hefur fjarvinna sett sitt mark á þróun vinnustaða síðustu árin. Ekki síst í kjölfar heimsfaraldurs. Í Atvinnulífinu var til dæmis sagt frá því hvernig fasteignaeigendur vestanhafs fóru að róa að því öllum árum að bjóða fram aðlaðandi skrifstofurými, með það fyrir augum að fyrirtæki gætu fengið fólk til að vilja starfa á staðnum. Enn er síðan að sjá hvað verður með tilkomu gervigreindar og róbóta. Þegar við öll förum að venjast því að eiga klónaðar útgáfur af okkur sjálfum í vinnunni og allir farnir að gefa fyrirmæli eins og yfirmenn og undirmenn gera gjarnan. Nema í þetta sinn erum við að tala við tækni sem þarf ekkert sýnilegt pláss nema síður sé. Eða hvað? Þá er líka að velta fyrir sér, hvernig nýjar kynslóðir stjórnenda munu horfa á málin? The Rise and Fall of the Corner office HermanMiller
Vinnustaðamenning Vinnustaðurinn Stjórnun Tengdar fréttir Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Lastu fyrirsögnina tvisvar áður en þú skildir hana? Því getur það virkilega verið að sú hefð að konur fæði börn oftast nær liggjandi á bakinu, sé fyrir karlmenn frekar en konur? 8. apríl 2026 07:04 Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Klæðnaður karlmanna hefur verið nokkuð til umfjöllunar upp á síðkastið. Nú síðast skór sem Donald Trump Bandaríkjaforseti talar víst fyrir að sem flestir af samstarfsmönnum hans noti. 15. apríl 2026 07:02 Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Við ætlum að rýna aðeins í söguhornið í dag og rifja upp þá tíma þegar fimm daga vinnuvika og átta klukkustunda vinnudagar þóttu stórhættulegar hugmyndir. 1. júní 2026 07:01 Læknadóp og geðveikir menn, lesist aftur Fyrir hartnær 26 árum birti Helgarpósturinn sálugi grein þar sem fram kom að allt að sextíu prósent fanga væru að misnota lyf. 23. nóvember 2025 08:03 Mest lesið Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Fleiri fréttir Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Lastu fyrirsögnina tvisvar áður en þú skildir hana? Því getur það virkilega verið að sú hefð að konur fæði börn oftast nær liggjandi á bakinu, sé fyrir karlmenn frekar en konur? 8. apríl 2026 07:04
Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Klæðnaður karlmanna hefur verið nokkuð til umfjöllunar upp á síðkastið. Nú síðast skór sem Donald Trump Bandaríkjaforseti talar víst fyrir að sem flestir af samstarfsmönnum hans noti. 15. apríl 2026 07:02
Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Við ætlum að rýna aðeins í söguhornið í dag og rifja upp þá tíma þegar fimm daga vinnuvika og átta klukkustunda vinnudagar þóttu stórhættulegar hugmyndir. 1. júní 2026 07:01
Læknadóp og geðveikir menn, lesist aftur Fyrir hartnær 26 árum birti Helgarpósturinn sálugi grein þar sem fram kom að allt að sextíu prósent fanga væru að misnota lyf. 23. nóvember 2025 08:03