Leggjum mannréttindaráð Reykjavíkur niður Helgi Áss Grétarsson skrifar 16. júní 2026 08:15 Á undanförnum árum hafa alþingismenn Miðflokksins jafnan staðið gegn síauknu skrifræði á sviði jafnréttis- og mannréttindamála. Sem dæmi greiddu níu alþingismenn Miðflokksins gegn frumvarpi sem varð að lögum um stjórnsýslu jafnréttismála í árslok 2020 og tveir þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpi sem varð að lögum um Mannréttindastofnun Íslands sumarið 2024. Í atkvæðagreiðslum beggja þessara mála voru það alþingismenn Miðflokksins þeir einu sem þorðu að ýta á nei-hnappinn. Sú afstaða, að segja nei við málum sem þessum, byggir meðal annars á því að staða mannréttinda hér á landi batnar ekki eftir því sem báknið stækkar. Fjölgun opinberra starfa til að leysa óljós verkefni hjálpar fáum. Betra er að eyða peningum skattgreiðenda í annað. Tillaga Miðflokksins fyrir borgarstjórn Úrslit borgarstjórnarkosninganna fyrir mánuði síðan voru ákall um róttækar breytingar á rekstri Reykjavíkurborgar. Kosningaúrslitin gefa til kynna að tími dyggðaskreytingarstjórnmála sé liðinn. Í þessu ljósi hafa borgarfulltrúar Miðflokksins lagt til á fundi borgarstjórnar 16. júní 2026 að mannréttindaráð Reykjavíkur verði lagt niður. Samkvæmt tillögunni skulu verkefni ráðsins vera fundinn annar staður í borgarkerfinu, svo sem hjá velferðarráði. Það er órökrétt að það þurfi heilt fagráð að sýsla um málefni sem núverandi mannréttindaráði er ætlað að sinna. Tíma og orku kjörinna fulltrúa sem og starfsmanna er betur varið í annað. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar ættu einnig að gleðjast Á síðasta kjörtímabili lögðu þáverandi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks ítrekað fram tillögu um að leggja niður mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og færa verkefni hennar annað. Þegar þáverandi eini borgarfulltrúi Viðreisnar, stóð utan við myndun nýs meirihluta fyrir tæpum 18 mánuðum síðan, eftir að hafa verið í meirihluta borgarstjórnar í samfleytt sjö ár, lagði hún meðal annars til á fundi borgarstjórnar 4. mars 2025, að mannréttindaráð yrði lagt niður. Lokaorð Framanrakinn tillöguflutningur Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar í minnihluta borgarstjórnar ætti með réttu að leiða til þess að meirihluti sé fyrir þeirri tillögu Miðflokksins að leggja mannréttindaráð Reykjavíkur niður. Það hefur takmarkað gildi að tala um að minnka báknið, meira er um vert að hrinda slíkri stefnu í verk – STRAX! Höfundur er varaborgarfulltrúi Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Mannréttindi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar