Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar 10. júní 2026 13:31 Við lifum ekki í sama raunveruleika og fyrir hundrað eða tvö hundruð árum og fólk um allan heim stendur frammi fyrir spurningunni: Hver ætlar að hugsa um okkur þegar við eldumst? Við eignumst færri börn en áður og fæðingartíðni hefur lækkað. Á sama tíma fjölgar eldra fólki hratt, enda lifum við lengur en fyrri kynslóðir. Þróunin er að mörgu leyti jákvæð en skapar þrýsting á öflug heilbrigðis- og velferðarkerfi, sérstaklega í fámennum löndum á borð við Ísland. Starfsmenn heilbrigðisstofnana eldast og margir fara af vinnumarkaði, ýmist vegna aldur eða álags, á sama tíma og færri einstaklingar fæðast til að taka við þessum störfum. Þetta þýðir að heilbrigðiskerfið þarf að mæta aukinni þjónustuþörf með færra starfsfólki. Fólk vill sjálfstæði Það er mikill ávinningur fólginn í því að styðja fólk til þess að geta búið lengur á eigin heimilum. Flest viljum við halda sjálfstæði okkar eins lengi og mögulegt er og það sjálfstæði felst gjarnan í þeim möguleika að búa á eigin heimili sem lengst. Til þess þurfa mörg hver aukinn stuðning og nýjar lausnir. Á sama tíma er heilbrigðiskerfið á Íslandi að gliðna undan þunga veikinda, m.a. vegna hækkandi lífaldurs. Fá úrræði eru í boði sem grípa fólk í eigin umhverfi og hjálpa þeim að búa lengur heima og því auknar líkur á að þau verji lengri tíma á heilbrigðisstofnunum en brýn þörf er á. Tæknin veitir okkur ný tækifæri Það eru gífurleg tækifæri fólgin í því að nýta tæknina til þess að þjónusta fólk í eigin umhverfi, þó hún taki aldrei fullkomlega við mannlegri umönnun. Tæknin er verkfæri sem getur stutt bæði einstaklinga og heilbrigðisstarfsfólk og aukið sjálfstæði, öryggi og lífsgæði, okkur öllum til bóta. Það er mikilvægt að stjórnsýslan í landinu leiti í lausnir sem þegar eru til, með öll tilskilin leyfi og hægt að nýta á Íslandi líkt og nágrannaþjóðir okkar gera nú þegar með góðum árangri. Það þarf heldur ekki alltaf mikið til. Einfaldar tæknilausnir hafa sýnt og sannað að þær hjálpa fólki að búa lengur heima við betri heilsu, auka öryggi og draga úr þörf fyrir innlagnir. Önnur dæmi um tilbúnar lausnir sem flutt geta fjöll eru fjarheilbrigðislausnir sem gera heilbrigðisstarfsfólki kleift að fylgjast með einstaklingum í heimahúsi, veita ráðgjöf og bregðast fyrr við þegar breytingar verða á heilsufari og geta þannig komið í veg fyrir eða spornað við versnandi veikindum einstaklinga og gæti hjálpað samfélaginu okkar gríðarlega þegar kemur að því að fá að vera lengur heima í eftirliti sem bætir allt öryggi einstaklinga.Slíka þjónustu veður íslenskt heilbrigðissamfélag að fara að aðlaga sig að til þess að halda í við framtíðarþróun samfélagsins. Hvað með afa? Þau sem vel eru að sér í íslenskri sjónvarpssögu muna eftir spurningunni „Hvað á að gera við afa?“, sem þeir Fóstbræður fleygðu fram í gríni rétt um aldamótin. Spurningin varpar samt ljósi á stærra vandamál og snýst ekki aðeins um fjölskyldu, heilbrigðisstarfsfólk eða samfélagið. Hún snýst líka um það hvernig við nýtum velferðartækni og framsýni til að tryggja að fólk geti lifað lengur heima hjá sér, við aukið öryggi og heilbrigði. Hefur þú hugsað út í það...Hvað á að gera við afa? Höfundur er viðskiptastjóri og sérfræðingur í velferðartækni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira