Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar 28. maí 2026 17:32 „Frá og með 1. júlí verður Hólaskóli - Háskólinn á Hólum lagður niður og sömuleiðis staða rekors Hólaskóla og háskólaráð,“ segir í frumvarpi sem nú er fyrir alþingi. Hin veglegu Staðarhús á Hólum ásamt heimatorfunni á helgum Hólastað verða boðin upp til sölu. Eftirmæli ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur 2026. Hin tignarlegu skólahús sem gráta af hirðuleysi síðustu ára verða boðin upp og seld nái frumvarpið fram að ganga. Með þrjá norðlenska ráðherra undir forystu forsætisráðherra á að leggja niður Háskólann á Hólum- í blómlegu starfi- og setja Hóla í Hjaltadal á uppboð. Atkvæðagreiðsla fer fram á Alþingi í kvöld. Sagan gengur í hring líka hjá Hólum í Hjaltadal Sagan frá aldamótaárinu 1800 endurtekur sig þegar danski kóngurinn bauð Hólastað upp í bútum eftir að staðarhús höfðu drabbast niður í hörmungum Móðuharðinda. Nú er það ríkisstjórn Íslands sem býður Hóla upp í pörtum. Áform ríkisins nú eru sorglega augljós - að segja sig frá öllu skóla og staðarhaldi á Hólum. Ég dreg í efa að forsætisráðherra sem sjálf er skagfirðingur að hluta átti sig fyllilega á í hvað ferli verið er að setja Hóla í Hjaltadal í og hvað verið er að skrifa undir. Við Hólavinir hefðum frekar vænst yfirlýsingar frá forsætisráðherra um að taka til hendi á Hólastað. Lagfæra og gera við glæsilegar skólabyggingar og staðarhús. Jafnframt yfirlýsingu um að treysta sjálfstæði Hólaskóla með öflugu skólastarfi Heima á Hólum. „Að vera Norðlendingur“ Enn er lag og feta þar með í spor öflugra norðlendinga og ráðherra sem lögðu metnað sinn í að standa að baki Hólum í Hjaltadal. Ríkið sem hefur haldið staðinn í um 130 ár og hefur fullan myndugleik til ef vilji er fyrir hendi. Við eigum jú Hólastað að þakka að hér er skrifuð og töluð íslenska „Það skal ekki koma í minn hlut sem Norðlendings að leggja Hólaskóla niður,“ sagði Bragi Sigurjónsson þáverandi ráðherra þegar hann stóð frammi fyrir því í ríksstjórn Alþýðuflokksins 1980. Höfundur er fyrrverandi ráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
„Frá og með 1. júlí verður Hólaskóli - Háskólinn á Hólum lagður niður og sömuleiðis staða rekors Hólaskóla og háskólaráð,“ segir í frumvarpi sem nú er fyrir alþingi. Hin veglegu Staðarhús á Hólum ásamt heimatorfunni á helgum Hólastað verða boðin upp til sölu. Eftirmæli ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur 2026. Hin tignarlegu skólahús sem gráta af hirðuleysi síðustu ára verða boðin upp og seld nái frumvarpið fram að ganga. Með þrjá norðlenska ráðherra undir forystu forsætisráðherra á að leggja niður Háskólann á Hólum- í blómlegu starfi- og setja Hóla í Hjaltadal á uppboð. Atkvæðagreiðsla fer fram á Alþingi í kvöld. Sagan gengur í hring líka hjá Hólum í Hjaltadal Sagan frá aldamótaárinu 1800 endurtekur sig þegar danski kóngurinn bauð Hólastað upp í bútum eftir að staðarhús höfðu drabbast niður í hörmungum Móðuharðinda. Nú er það ríkisstjórn Íslands sem býður Hóla upp í pörtum. Áform ríkisins nú eru sorglega augljós - að segja sig frá öllu skóla og staðarhaldi á Hólum. Ég dreg í efa að forsætisráðherra sem sjálf er skagfirðingur að hluta átti sig fyllilega á í hvað ferli verið er að setja Hóla í Hjaltadal í og hvað verið er að skrifa undir. Við Hólavinir hefðum frekar vænst yfirlýsingar frá forsætisráðherra um að taka til hendi á Hólastað. Lagfæra og gera við glæsilegar skólabyggingar og staðarhús. Jafnframt yfirlýsingu um að treysta sjálfstæði Hólaskóla með öflugu skólastarfi Heima á Hólum. „Að vera Norðlendingur“ Enn er lag og feta þar með í spor öflugra norðlendinga og ráðherra sem lögðu metnað sinn í að standa að baki Hólum í Hjaltadal. Ríkið sem hefur haldið staðinn í um 130 ár og hefur fullan myndugleik til ef vilji er fyrir hendi. Við eigum jú Hólastað að þakka að hér er skrifuð og töluð íslenska „Það skal ekki koma í minn hlut sem Norðlendings að leggja Hólaskóla niður,“ sagði Bragi Sigurjónsson þáverandi ráðherra þegar hann stóð frammi fyrir því í ríksstjórn Alþýðuflokksins 1980. Höfundur er fyrrverandi ráðherra.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar