Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar 26. maí 2026 16:01 Á höfuðborgarsvæðinu eru fyrirhugaðar viðamiklar og kostnaðarsamar framkvæmdir vegna svokallaðrar Borgarlínu. Árið 2021 var áætlaður kostnaður vegna þeirra verkefna sem þá féllu undir svokallaðan samgöngusáttmála um 53 milljarðar króna. Eftir endurmat og uppfærslu hans hefur áætlaður kostnaður vegna Borgarlínu hækkað í 126–130 milljarða króna og nær sú upphæð eingöngu til vegaframkvæmda vegna hennar. Nýjustu verkáætlanir benda jafnframt til að einstakir verkhlutar verði bæði kostnaðarsamari og tímafrekari en áður var gert ráð fyrir. Reynsla af stórum opinberum framkvæmdaverkefnum hér á landi sýnir að kostnaðar- og tímaáætlanir standast yfirleitt illa. Því er ekki óraunhæft að ætla að heildarkostnaður vegna Borgarlínu geti þegar upp er staðið orðið tvöfaldur eða jafnvel þrefaldur miðað við núverandi áætlanir, sem sagt, farið vel yfir 300 milljarða króna. Slík fjárfesting kallar á vandaða umræðu um hvort aðrar lausnir geti skilað sambærilegum eða betri árangri með minni tilkostnaði. Varðandi einkabílinn, sem Borgarlínan á að leysa af hólmi að hluta, þá er fjárfesting í slíkum einhver sú óhagkvæmasta sem ráðist er í. Stóran hluta sólarhringsins stendur bíllinn óhreyfður fyrir utan vinnustað eða heimili viðkomandi þar sem verðgildi hans fellur með leifturhraða. Af þessum sökum og öðrum mun bifreiðum í einkaeigu fækka gríðarlega í náinni framtíð því sjálfkeyrandi bílar, reknir af einkafyrirtækjum, munu líklega leysa af hólmi aðra af tveimur bifreiðum á hverju heimili í þéttbýli. Nú þegar hefur almenningur víða um heim aðgang að sjálfkeyrandi bílaþjónustum. Í því samhengi vaknar spurningin hvort rétt væri að skoða markviss tilraunaverkefni með sjálfkeyrandi leigubíla hér á landi. Hægt væri að hefja slík verkefni í hóflegum mæli, til dæmis með 20 ökutækjum, og þróa svo þjónustuna áfram í takt við eftirspurn og reynslu notenda. Ef sjálfkeyrandi samgöngulausnir hafa reynst raunhæfar í stórborgum erlendis, þar sem umferðarkerfi eru margfalt flóknari en á höfuðborgarsvæðinu, er eðlilegt að spyrja hvort sambærilegar lausnir gætu einnig nýst hér á landi. Höfundur er tækniþróunarstjóri Laka Power. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Á höfuðborgarsvæðinu eru fyrirhugaðar viðamiklar og kostnaðarsamar framkvæmdir vegna svokallaðrar Borgarlínu. Árið 2021 var áætlaður kostnaður vegna þeirra verkefna sem þá féllu undir svokallaðan samgöngusáttmála um 53 milljarðar króna. Eftir endurmat og uppfærslu hans hefur áætlaður kostnaður vegna Borgarlínu hækkað í 126–130 milljarða króna og nær sú upphæð eingöngu til vegaframkvæmda vegna hennar. Nýjustu verkáætlanir benda jafnframt til að einstakir verkhlutar verði bæði kostnaðarsamari og tímafrekari en áður var gert ráð fyrir. Reynsla af stórum opinberum framkvæmdaverkefnum hér á landi sýnir að kostnaðar- og tímaáætlanir standast yfirleitt illa. Því er ekki óraunhæft að ætla að heildarkostnaður vegna Borgarlínu geti þegar upp er staðið orðið tvöfaldur eða jafnvel þrefaldur miðað við núverandi áætlanir, sem sagt, farið vel yfir 300 milljarða króna. Slík fjárfesting kallar á vandaða umræðu um hvort aðrar lausnir geti skilað sambærilegum eða betri árangri með minni tilkostnaði. Varðandi einkabílinn, sem Borgarlínan á að leysa af hólmi að hluta, þá er fjárfesting í slíkum einhver sú óhagkvæmasta sem ráðist er í. Stóran hluta sólarhringsins stendur bíllinn óhreyfður fyrir utan vinnustað eða heimili viðkomandi þar sem verðgildi hans fellur með leifturhraða. Af þessum sökum og öðrum mun bifreiðum í einkaeigu fækka gríðarlega í náinni framtíð því sjálfkeyrandi bílar, reknir af einkafyrirtækjum, munu líklega leysa af hólmi aðra af tveimur bifreiðum á hverju heimili í þéttbýli. Nú þegar hefur almenningur víða um heim aðgang að sjálfkeyrandi bílaþjónustum. Í því samhengi vaknar spurningin hvort rétt væri að skoða markviss tilraunaverkefni með sjálfkeyrandi leigubíla hér á landi. Hægt væri að hefja slík verkefni í hóflegum mæli, til dæmis með 20 ökutækjum, og þróa svo þjónustuna áfram í takt við eftirspurn og reynslu notenda. Ef sjálfkeyrandi samgöngulausnir hafa reynst raunhæfar í stórborgum erlendis, þar sem umferðarkerfi eru margfalt flóknari en á höfuðborgarsvæðinu, er eðlilegt að spyrja hvort sambærilegar lausnir gætu einnig nýst hér á landi. Höfundur er tækniþróunarstjóri Laka Power.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar