Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar 26. maí 2026 14:00 Þann 21. maí sl. var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í hinu svokallaða plastbarkamáli. Niðurstaða dómsins varð sú að íslenska ríkið beri skaðabótaábyrgð gagnvart ekkju og börnum hins látna á grundvelli þess að íslenskur tilvísunarlæknir hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi. Þótt allir geti verið sammála um að atburðarásin í Svíþjóð hafi verið hörmuleg og að eftirlitskerfi hafi brugðist, vekur nálgun héraðsdóms á íslenska þáttinn upp spurningar. Við nánari lögfræðilega rýni er ljóst að dómnum hlýtur, og verður, að vera áfrýjað til Landsréttar. Ástæðan er ekki síst sú afdrifaríka stefna sem dómurinn markar fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi ef hann fær að standa óhaggaður án endurskoðunar áfrýjunardómstóls. Dómur á skjön við rannsóknarskýrslu Það vekur furðu hversu mikill munur er á milli niðurstöðu rannsóknarnefndar Háskóla Íslands og Landspítala (sem starfaði undir forsæti fyrrverandi Hæstaréttardómara og dómara við EFTA dómstólinn Páls Hreinssonar) og niðurstöðu héraðsdóms. Rannsóknarnefndin, sem ræddi við fjölmarga aðila þar á meðal Tómas Guðbjartsson lækni, komst að þeirri niðurstöðu að íslenski læknirinn hafi verið blekktur af ítalska skurðlækninum Paolo Macchiarini. Nefndin átaldi vissulega að læknirinn hefði sýnt skort á aðgæslu við útgáfu tilvísunar og vanrækt færslur í sjúkraskrá, en hún lagði til grundvallar að hann hefði verið í góðri trú um að verið væri að leita lögmætra leiða til að bjarga lífi sjúklingsins. Nefndin tók beinlínis fram að læknirinn bæri ekki ábyrgð á sjálfri tilraunaaðgerðinni. Héraðsdómur, sem hlýddi á skýrslu aðila málsins og vitnisburð eins vitnis, yfirmanns læknisins, kýs hins vegar að líta framhjá þessari niðurstöðu nefndarinnar að miklu leyti. Í stað þess að meta háttsemina sem afsakanlegan misskilning eða einfalt gáleysi, metur dómurinn tilvísunina þannig að um „vísvitandi rangfærslu“ (sannleika hagrætt) sé að ræða. Dómurinn fullyrðir að íslenski læknirinn hafi látið faglegan og akademískan metnað ganga framar velferð sjúklings. Orðbragð dómsins, þar sem talað er um „að kasta honum“ (sjúklingnum) og „vinda sér í“ (aðgerðina), er óvenju gildishlaðið og harðort og litast fremur af tilfinningaríkum og skiljanlegum málflutningi stefnenda en hlutlægu og yfirveguðu mati dómara á orsakatengslum. „Varnarlækningar“ og staða heilbrigðisstarfsfólks Lögfræðilega stærsta álitamálið lýtur þó að beitingu svokallaðrar sérfræðiábyrgðar og orsakatengsla. Héraðsdómur leggur til grundvallar að breyting á íslenskri tilvísun hafi verið fullnægjandi orsök þess að aðgerðin var framkvæmd. Þetta gengur út frá því að ítalski skurðlæknirinn, sem starfaði undir allt öðru lögsagnarumdæmi, án lögboðinna leyfa og braut sænsk hegningarlög, sé nánast verkfæri íslenska læknisins. Kjarni málsins er þessi: Ef tilvísunarlæknir á Íslandi er gerður skaðabótaábyrgur fyrir aðgerðir erlends sérfræðings sem hann vísar sjúklingi til, hvaða afleiðingar hefur það? Mun einhver íslenskur læknir treysta sér til að senda sjúkling með flókinn, lífshættulegan sjúkdóm í hátæknimeðferð erlendis vitandi það að hann eða vinnuveitandi hans, gæti verið gerður persónulega ábyrgur ef erlendi aðilinn gerir alvarleg mistök eða stundar misferli? Þetta mun beinlínis leiða til „varnarlækninga“ (e. defensive medicine. Varnarlækningar felast í því að læknar grípi til rannsókna, meðferða eða skráningar umfram það sem læknisfræðileg nauðsyn krefur, fyrst og fremst til að verja sig gegn mögulegum kvörtunum eða skaðabótakröfum), þar sem heilbrigðisstarfsfólk velur öruggari, og mögulega lakari leiðina fyrir sjúklinginn til að vernda sjálft sig gagnvart eftirmálum. Það vinnur beint gegn hagsmunum sjúklinga og þeirri skyldu að veita fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem völ er á. Dómstóla er að endurskoða mörkin Vegna aðstæðna gaf íslenski læknirinn ekki skýrslu fyrir héraðsdómi, sem er lögmætur réttur vitnis ef hætta er á að svarið geti leitt til ásakana um refsiverða háttsemi eða mikils tjóns. Það leiddi þó til þess að héraðsdómur mat skrifleg gögn einhliða án andsvara þess sem skrifaði þau. Skaðabótakerfi okkar, m.a. í gegnum sjúklingatryggingu, byggir á því að draga úr persónulegri sök einstakra heilbrigðisstarfsmanna og horfa fremur til kerfislægra lausna, að læra af mistökum. Með því að teygja hugtakið „stórfellt gáleysi“ yfir þá vanrækslu sem byggði á blekkingum og átti sér stað í samskiptum til Svíþjóðar, er dómurinn að færa réttarþróunina aftur á bak. Af þessum ástæðum er brýnt að íslenska ríkið áfrýi málinu. Það snerist ekki um að firra ríkið eða einstaklinga ábyrgð, heldur um að draga réttar, sanngjarnar og skýrar línur um hvar ábyrgð íslenskra lækna byrjar og hvar henni lýkur þegar sjúklingar eru færðir í hendur erlendra sérfræðinga. Sú lína getur ekki verið dregin með þessum héraðsdómi. Höfundur er stundakennari við Læknadeild HÍ í heilbrigðislögfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Plastbarkamálið Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Sjá meira
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun