Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. skrifar 24. maí 2026 11:02 Frá því að Króatía gekk í Evrópusambandið árið 2013 hefur landið fengið um 26 milljarða evra frá sambandinu en á sama tíma aðeins greitt um sex milljarða evra í sjóði þess. Króatía hefur þannig fengið um 20 milljarða evra meira frá Evrópusambandinu en landið hefur greitt til þess eða sem nemur um 20.880 milljörðum íslenzkra króna. Þessar greiðslur hafa komið frá þeim ríkjum sambandsins sem greiða meira til þess en skilar sér til baka og eru í miklum minnihluta. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrðum við Íslendingar í hópi þeirra þjóða sem greiða reikninginn. Fyrir vikið er áhugavert svo ekki sé meira sagt þegar harðir Evrópusambandssinnar, eins og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson stjórnmálafræðingur, halda því fram að Ísland þurfi að ganga í Evrópusambandið til þess að komast í sjóði þess. Í grein sem hann ritaði á Vísi um helgina tók hann meira að segja Króatíu sem meint dæmi um það hvernig Íslandi myndi farnast innan sambandsins í þeim efnum. Þetta mikla flæði fjármagns úr sjóðum Evrópusambandsins til Króatíu hefur verið helzta forsenda fjárfestinga í landinu sem hafa nær alfarið komið frá öðrum ríkjum innan sambandsins. Við Íslendingar yrðum hins vegar á hinum endanum eins og áður segir og myndum greiða fyrir áframhaldandi uppbyggingu innviða í Króatíu og hinna 16 ríkja Evrópusambandsins sem fá meira úr sjóðum þess en þau greiða í þá. Meira en 20 ár eru liðin frá því að flest þessara ríkja gengu í sambandið og sér ekki fyrir endann á því. Gunnar gat þess að Króatía hafi fengið meira frá Evrópusambandinu en landið hefði greitt til þess, vildi meina að það mætti yfirfæra á Ísland og minntist fyrir vikið auðvitað ekkert á það að við myndum þvert á móti verða í hópi þeirra ríkja sem borga brúsann. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Frá því að Króatía gekk í Evrópusambandið árið 2013 hefur landið fengið um 26 milljarða evra frá sambandinu en á sama tíma aðeins greitt um sex milljarða evra í sjóði þess. Króatía hefur þannig fengið um 20 milljarða evra meira frá Evrópusambandinu en landið hefur greitt til þess eða sem nemur um 20.880 milljörðum íslenzkra króna. Þessar greiðslur hafa komið frá þeim ríkjum sambandsins sem greiða meira til þess en skilar sér til baka og eru í miklum minnihluta. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrðum við Íslendingar í hópi þeirra þjóða sem greiða reikninginn. Fyrir vikið er áhugavert svo ekki sé meira sagt þegar harðir Evrópusambandssinnar, eins og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson stjórnmálafræðingur, halda því fram að Ísland þurfi að ganga í Evrópusambandið til þess að komast í sjóði þess. Í grein sem hann ritaði á Vísi um helgina tók hann meira að segja Króatíu sem meint dæmi um það hvernig Íslandi myndi farnast innan sambandsins í þeim efnum. Þetta mikla flæði fjármagns úr sjóðum Evrópusambandsins til Króatíu hefur verið helzta forsenda fjárfestinga í landinu sem hafa nær alfarið komið frá öðrum ríkjum innan sambandsins. Við Íslendingar yrðum hins vegar á hinum endanum eins og áður segir og myndum greiða fyrir áframhaldandi uppbyggingu innviða í Króatíu og hinna 16 ríkja Evrópusambandsins sem fá meira úr sjóðum þess en þau greiða í þá. Meira en 20 ár eru liðin frá því að flest þessara ríkja gengu í sambandið og sér ekki fyrir endann á því. Gunnar gat þess að Króatía hafi fengið meira frá Evrópusambandinu en landið hefði greitt til þess, vildi meina að það mætti yfirfæra á Ísland og minntist fyrir vikið auðvitað ekkert á það að við myndum þvert á móti verða í hópi þeirra ríkja sem borga brúsann. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.