Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson skrifar 21. maí 2026 17:02 Eitthvað þessu líkt hefur heyrst í kringum kosningarbaráttuna og meira að segja eftir hana líka. Þetta er mjög kunnulegt orðalag fyrir mig þar sem ég tók þátt í stjórnmálum með ákveðnu vantrausti gagnvart sumum stjórnmálaflokkum sem gerði það að verkum að ég útilokaði samstarf við þá flokka. Mörgum fannst það ósanngjarnt. Það væri verið að skilja fólk eftir útundan á einhvern hátt. Útilokunarpólitík. En það var alls ekki það sem útilokunin snérist um. Ég gat auðveldlega unnið með öllum þingmönnum í öllum flokkum að einstaka málum - þegar fólk var málefnalegt og einlægt í að ná góðri niðurstöðu. Ég gat unnið með fólki sem var ósammála mér, þar sem við kusum að lokum á mismunandi hátt í þingsal. Það var ekkert mál. En það sem var vandamál var almennt traust. Ég treysti ekki ákveðnum aðilum og flokkum til þess að fara vel með vald og ég vildi ekki bera ábyrgð á því að þau kæmust til valda út af mínu samþykki. Valdasamstarf og málefnasamstarf Eftir nýliðnar sveitarstjórnarkosningar, og fyrir næstu alþingiskosningar, er gott tækifæri til þess að hugsa minna um valdasamstarf og meira um málefnasamstarf. Stjórnmál eiga nefnilega að snúast um afgreiðslu mikilvægra þjóðþrifamála - en ekki bara um hver fær að ráða. Það var reynsla mín af pólitík. Flokkarnir kepptust um að komast til valda, af því að þá gætu þau komið sínum hugmyndum í verk. Það er ákvörðun að starfa þannig í pólitík. Að segja “ég ræð, svona verður þetta” - í staðinn fyrir að segja “það er á ábyrgð okkar allra að leysa þetta”. Fyrri útgáfan af pólitík þýðir að það er myndaður einhver meirihluti sem vinnur svo saman að því að leysa öll vandamál kjörtímabilsins. Vandinn er að meirihlutinn er ekki alltaf sammála innbyrðis og leysir það yfirleitt með því að kaupa og selja eigin sannfæringu. Réttara sagt, þá er einn flokkur sérstaklega góður í að taka öll mál í gíslingu og afgreiða þau ekki nema með kaupum og sölu á eigin málum. Allir þurftu að fá mál Mjög gott dæmi um þetta er þegar, ein þinglokin, málaskránni var lokað. Öll mál sem var búið að afgreiða úr nefnd yrðu afgreidd í þingsal. Þegar við bentum á eitt nokkuð mikilvægt mál sem var enn inni í nefnd og almennt samþykki að afgreiða það mál meira að segja - þá fór allt í háaloft. Ef sá ráðherra fengi sitt mál inn á þing þá gæti það bara gerst ef allir hinir ráðherrarnir fengu líka þeirra mál úr nefnd og í afgreiðslu í þinginu. Já, þetta er í alvörunni svona sem þetta gengur fyrir sig. Ef þú vilt að góða og einfalda málið þitt, sem þingmenn allra flokka kvittuðu undir sem meðflutningsmenn, fái afgreiðslu í þinginu - þá gerist það ekki út af því að málið er svo augljós betrumbót - heldur þarf það nauðsynlega að þýða að allir aðrir flokkar fái líka eitt af sínum þingmannamálum afgreitt líka. Og það gerist yfirleitt ekki, af því að sumir flokkar eru ekkert að útbýta neitt svakalega mörgum málum - og þau mál sem þeir útbýta þó eru yfirleitt ekkert sérstaklega góð. Hvort sem það er af því að þau eru ekki tilbúin, eru bara pólitísk yfirlýsing, kostar formúgu fjár eða þess háttar. Veljum málefnasamstarf Mig langar því að reyna að koma þeim skilaboðum til stjórnmálamanna sem eru að mynda einhvern meirihluta hingað og þangað um landið. Búið þið til málefnasamstarf í staðinn fyrir að mynda valdasamstarf. Það þýðir einfaldlega að þið gangið ekki bundin til atkvæða í einstökum málum yfir kjörtímabilið. Þannig getið þið kosið samkvæmt ykkar eigin sannfæringu í öllum málum. Já, það eru takmörk á þessu. Einstaka mál sem kosta fjármagn eiga ekki að vera afgreidd þannig. Það þarf að halda fjármálaáætlun. Mál sem hafa áhrif á áætlun á að afgreiða samhliða og í samhengi við fjármálaáætlanir. Það er málefnaleg afgreiðsla á slíkum málum (þetta er aðallega ábending til minnihlutaflokka). Skilaboðin eru einföld. Útilokum valdabrölt og veljum málefnasamstarf. Flokkar sem eru yfirleitt ósammála í málefnalegri afgreiðslu eru ekki flokkar sem ættu eða gætu starfað saman í valdasamstarfi. Útilokunin er ekki flóknari en það. Ég treysti mér ekki til þess að gera þig að ráðherra, en ef þú kemur með góða hugmynd á málefnalegum forsendum - þá get ég greitt atkvæði með þér. Höfundur er fyrrverandi þingmaður og núverandi nörd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Leví Gunnarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun