Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Rakel Sveinsdóttir skrifar 20. maí 2026 07:04 Apple Announces Launch Of New Tablet Computer SAN FRANCISCO - JANUARY 27: Apple Inc. CEO Steve Jobs demonstrates the new iPad as he speaks during an Apple Special Event at Yerba Buena Center for the Arts January 27, 2010 in San Francisco, California. Apple introduced its latest creation, the iPad, a mobile tablet browsing device that is a cross between the iPhone and a MacBook laptop. (Photo by Justin Sullivan/Getty Images) Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur.
Einn þeirra sem svo sannarlega áttu sína skrautlegu sögu var Steve Jobs, fyrrum forstjóri Apple. Steve lést úr krabbameini árið 2011, þá aðeins 56 ára. Heimsfrægur með meiru þegar hann lést enda veröldin þá þegar búin að kynnast þessum helstu vörum: makkatölvunum, iPhone, iPads, iPods og svo framvegis. Starfsframi og vegferð Jobs var þó langt frá því að vera sléttur og greiður vegur. Í samantekt sem FastCompany birti á dögunum segir að þeir eiginleikar sem gerðu hann einstakan – næstum eyðilögðu Apple á fyrstu árum fyrirtækisins: Þessi eilífa fullkomnunarárátta og ósveigjanleiki til að miðla málum. Jobs fannst hann í raun alltaf hafa rétt fyrir sér og seinna sagði hann að oft hefði hann mátt una vel við það sem gott var, frekar en að stefna alltaf að því að allt yrði best eða fullkomið. Í þó nokkurn tíma var Jobs nánast útlægur frá Kísildal. Sat á lítilli skrifstofu handan við horn Apple-höfuðstöðvanna, skrifstofu sem var oftast kölluð Síbería. Stjórnendur og samstarfsmenn voru sagðir hættir að hringja í hann, sem gerði Jobs bæði leiðan og einmana. En mögulega var þetta leiðin til að læra af mistökunum. Sjá betur hver þau voru og fá tækifæri til að bæta um betur. Í fyrrnefndri grein FastCompany eru eftirfarandi fimm mistök sögð þau atriði sem margir gætu lært af, en þau eru: „Ég ER stjórnin,“ sagði Jobs eitt sinn við stjórnanda í Apple, þá sjálfur stjórnarformaður, en þetta eru fyrstu mistök Jobs sem tilgreind eru: Hann leit á sjálfan sig sem aðal í öllu, miðju allra ákvarðana. Hann hannaði fyrir eigin smekk frekar en markaðinn eru mistök sem tilgreind eru númer tvö. Sem þýddi að Macintosh-tölvan í árdaga var dýr, sérhæfð og sló í gegn hjá ákveðnum hópi og síðan: Búið. Eða svo gott sem… Þó nokkur tími leið þar til fyrirtækið náði sér á strik. Þriðju mistökin eru að kenna öðrum um. Til dæmis að fara af stað með vörusölu áður en varan væri endanlega tilbúin en kenna starfsfólki síðan um að eitthvað væri ekki orðið nógu gott eða að ganga vel. Fjórðu mistökin eru síðan þau að geta ekki sleppt takinu á því sem var ekki að ganga upp. Eitthvað sem margir frumkvöðlar viðurkenna að geti verið erfitt; halda áfram að rembast eins og rjúpan við staur í of langan tíma. Afleiðingarnar urðu meðal annars þær að fókus Apple varð óskýr. Svo óskýr reyndar að eitt árið gaf fyrirtækið út meira en 70 vörur á einu ári. Þar á meðal fartölvu sem kviknaði í og þurfti að innkalla. Þá átti Jobs það til að koma fram við fólk af hroka, líta á það sem hindranir og jafnvel uppnefna það eða baktala. Sögur eru því um fundi sem hann hunsaði að mæta, þótt þeir væru á vegum stærstu fjárfesta Apple, að segja verslanir stærstu dreifingaraðila sinna ljótar eða að tala um að fólk væri hálfvitar sem ekki veldi vörur Apple. Eins og frægt er orðið yfirgaf Jobs fyrirtækið um tíma, sneri síðan aftur árið 1997 og tókst þá að forða því frá gjaldþroti. Í millitíðinni hafði hann samt lært heilmargt. Af sínum eigin mistökum. Til dæmis skar Jobs niður um 70% af vörulínu Apple þegar hann sneri til baka og sýndi líka í verki sem stjórnandi að hann valdi frekar sínar orrustur en að berjast í öllu. Skapsveiflur og reiðiköst virtust líka hafa dofnað verulega og eftir tólf ár af niðurlægingu sneri Jobs aftur til Apple sem stjórnandi sem fór að hlusta á stjórnendur og byggja upp sterk teymi. Sem dæmi má nefna starfaði sama stjórnendateymið hjá honum í Apple í átta ár. Í dag er Jobs minnst sem mikils snillings og án efa eins stærsta og merkasta nafnið í sögubókum tækniþróunar á síðustu öld. Jobs var þó jafn breyskur og við öll hin. Gerði sín mistök en lærði af þeim. Eitthvað sem allir ættu að taka sér til fyrirmyndar.
Stjórnun Góðu ráðin Tengdar fréttir Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Klæðnaður karlmanna hefur verið nokkuð til umfjöllunar upp á síðkastið. Nú síðast skór sem Donald Trump Bandaríkjaforseti talar víst fyrir að sem flestir af samstarfsmönnum hans noti. 15. apríl 2026 07:02 „Þar eru leiðtogar sem virðast hafa eitthvað extra“ „Það gerist oft í krísum að við áttum okkur á því að mögulega þarf vinnustaður að breyta vinnustaðamenningunni. Því það er í krísum sem við áttum okkur á því hvað hjá okkur er ekki að virka,“ segir Eyþór Eðvarðsson stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. 14. febrúar 2024 07:00 Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Í þessari viku er Atvinnulífið að fjalla um innleiðingu á stefnu með breyttu viðhorfi stjórnenda og breyttum venjum stjórnenda. 22. janúar 2026 07:01 Fjórar týpur af yfirmönnum: Hver er þín týpa? Að kunna vel við yfirmanninn á vinnustað er lykilatriði. Því það að elska starfið sitt er eiginlega ekki nóg. Alls kyns flækjur geta nefnilega komið upp í samskiptum við yfirmann, sem síðan geta dregið úr starfsánægjunni. 5. mars 2025 07:03 „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ „Oft er þetta bara einn starfsmaður á vinnustaðnum sem er ekki að taka ábyrgð á starfinu sínu, stuðar fólk eða hegðar sér þannig að allir eru á tánum í kringum viðkomandi og enginn þorir að segja neitt,“ segir Sigríður Indriðadóttir, framkvæmdastjóri Saga Competence sem dæmi um aðstæður á vinnustað þar sem þögla herinn er að finna. 29. maí 2024 07:00 Mest lesið Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Atvinnulíf Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Viðskipti innlent „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri hjá Sýn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Sjá meira
Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Klæðnaður karlmanna hefur verið nokkuð til umfjöllunar upp á síðkastið. Nú síðast skór sem Donald Trump Bandaríkjaforseti talar víst fyrir að sem flestir af samstarfsmönnum hans noti. 15. apríl 2026 07:02
„Þar eru leiðtogar sem virðast hafa eitthvað extra“ „Það gerist oft í krísum að við áttum okkur á því að mögulega þarf vinnustaður að breyta vinnustaðamenningunni. Því það er í krísum sem við áttum okkur á því hvað hjá okkur er ekki að virka,“ segir Eyþór Eðvarðsson stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun. 14. febrúar 2024 07:00
Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Í þessari viku er Atvinnulífið að fjalla um innleiðingu á stefnu með breyttu viðhorfi stjórnenda og breyttum venjum stjórnenda. 22. janúar 2026 07:01
Fjórar týpur af yfirmönnum: Hver er þín týpa? Að kunna vel við yfirmanninn á vinnustað er lykilatriði. Því það að elska starfið sitt er eiginlega ekki nóg. Alls kyns flækjur geta nefnilega komið upp í samskiptum við yfirmann, sem síðan geta dregið úr starfsánægjunni. 5. mars 2025 07:03
„Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ „Oft er þetta bara einn starfsmaður á vinnustaðnum sem er ekki að taka ábyrgð á starfinu sínu, stuðar fólk eða hegðar sér þannig að allir eru á tánum í kringum viðkomandi og enginn þorir að segja neitt,“ segir Sigríður Indriðadóttir, framkvæmdastjóri Saga Competence sem dæmi um aðstæður á vinnustað þar sem þögla herinn er að finna. 29. maí 2024 07:00