Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar 15. maí 2026 15:51 Fáir vita að Guðjón Samúelsson teiknaði á sínum tíma lestarstöð við Hlemm fyrir lest sem átti að fara yfir Þrengslin og um suðurland. Hugmyndin um öflugar almenningssamgöngur á Íslandi er því ekki ný af nálinni. Borgarlínan sem internet borgarinnar Borgarlínunni má líkja við slagæðakerfi borgarinnar þar sem hraðvagnar á sérleiðum eru meginæðarnar, á meðan strætó, göngu- og hjólaleiðir eru háræðarnar sem tengja fólk við kerfið. Enginn heldur því fram að allir eigi að nota Borgarlínu, málið snýst um valfrelsi. Samgöngur eru líka lýðheilsu- og samfélagsmál Samfélag sem byggist nær eingöngu á einkabílnum skapar ekki bara umferð heldur getur líka aukið einangrun. Fólk fer úr bílageymslu í vinnu og aftur heim án þess að hitta nokkurn mann. Öflugar almenningssamgöngur, góðir göngu- og hjólastígar stuðla að daglegri hreyfingu sem styrkir bæði líkamlega og andlega heilsu. Þétting byggðar eða meiri dreifing Með tugþúsunda fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum skiptir miklu hvernig við byggjum. Meiri dreifing byggðar þýðir meiri umferð og lakari þjónustu í nærumhverfinu. Þétting meðfram Borgarlínu gefur möguleika á þjónustu í göngufæri og öflugri rekstrargrundvöll fyrir verslun og þjónustu. Svæði eins og Suðurlandsbraut, Skeifan, Vogabyggð, Ártúnshöfði, Keldur og Blikastaðir verða lykilsvæði í þessari þróun. Lærdómurinn af nágrannaþjóðum Hér á landi heyrast stundum raddir að Borgarlína geti lækkað fasteignaverð, en sú fullyrðing stenst illa reynslu nágrannaþjóða. Í Kaupmannahöfn kepptust hverfi um að fá Metro-stöðvar vegna þess að þær juku verðmæti, þjónustu og lífsgæði. Valkostir - samnýting Borgarlínan snýst um að bæta við valkostum í samgöngumálum. Samgöngur á höfuðborgarsvæðið byggja mikið á bílnum og um helmingur svæðisins fer undir umferðarmannvirki. Markmiðið hlýtur að vera að fólk geti valið það sem hentar hverju sinni, bíl, Borgarlínu, hjól eða göngu. Sérrými Borgarlínu geta jafnframt nýst slökkviliði, sjúkrabílum og lögreglu, Með þróun sjálfkeyrandi vagna gæti skilvirkni almenningssamgangna aukist enn frekar á næstu árum. Borgarlínan snýst líka um, minni loftmengun, minna slit á vegakerfi, og hagkvæmari framtíð. Ferðamenn, Keflavík og framtíðin Tvær milljónir ferðamanna koma hingað árlega og margir þeirra eru vanir öflugum almenningssamgöngum. Það mun tvímælalaust styrkja rekstrargrundvöll kerfisins. Í verðlaunatillögu um Reykjanesbraut í stokk og svæðiskjarna í Smára er gert ráð fyrir Fluglest til Keflavíkur sem tengist í göngum, Borgarlínustöð við Smáralind. Framtíðarsýn sem skiptir máli Kjarni málsins er að Borgarlínan er ekki bara samgönguverkefni heldur framtíðarsýn um heilsusamlegra, skilvirkara og mannlegra samfélag. Nú þarf að hugsa stórt með fjölbreytni í samgöngumátum að leiðarljósi og ekki festa höfuðborgarsvæðið um of í einsleitum umferðarlausnum. Við værum kannski stödd á öðrum stað í samgöngumálum ef hugmynd Guðjóns Samúelssonar um lestarstöð við Hlemm, hefði orðið að veruleika. Höfundur er arkitekt og myndlistarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samgöngumál Borgarlína Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar