Hvenær getur þú hætt að vinna? Aurbjörg 8. maí 2026 08:31 Jón Jósep Snæbjörnsson viðskiptatengslastjóri Aurbjargar og Elísabet Ýr Sigurðardóttir vöruþróunarstjóri Aurbjargar. Aurbjörg hefur undanfarið ár lagt mikla áherslu á lífeyrismálin og kynnir nú til sögunnar lausn, Lífeyrisbestun, sem hjálpar fólki að skipuleggja starfslok. Lífeyrismál eru eitthvað sem flestir vita að skiptir máli en fæstir gefa sér tíma til þess að hugsa út í. Staðreyndin er sú að kerfið er allt of flókið og of mikið er af ákvarðanatökum sem eru flóknar og við nennum bara ekki að pæla í því.
Þrátt fyrir það er ein stærsta spurning starfsferilsins: Hvenær get ég svo hætt að vinna? Kerfið fyrst kortlagt og nú komið leiðsögukerfi Á síðasta ári kynnti Aurbjörg Lífeyrisreiknivél sem gerir notendum kleift að setja inn sínar forsendur og skoða mismunandi sviðsmyndir. Þar er meðal annars hægt að bera saman lífeyrissjóði og sjá hvernig val á sjóði getur haft áhrif á framtíðartekjur. Slíkur munur getur numið hundruðum þúsunda króna á mánuði þegar komið er á eftirlaun. Slík verkfæri hafa hjálpað fólki að átta sig betur á eigin stöðu. En þau krefjast þess að notandinn prófi sig áfram og taki sjálfur ákvarðanir um hvaða leið sé best, einskonar kort af kerfinu Lífeyrisbestun gengur skrefinu lengra. Í stað þess að skoða eina sviðsmynd í einu metur hún allar helstu breytur saman og finnur þá niðurstöðu sem kemur best út fyrir hvern og einn. Þar er þá komið leiðsögukerfið. Í útreikningum er meðal annars tekið mið af gildandi skattareglum, réttindatöflum lífeyrissjóða og reglum Tryggingastofnunar. Með því fæst mynd sem endurspeglar raunverulegt umhverfi sem lífeyrisákvarðanir eru teknar í. Notandinn setur inn sínar forsendur og velur markmið, en í kjölfarið fær hann áætlun sem sýnir hvernig best er að ná því markmiði í gegnum lífið. Mismunandi markmið kalla á mismunandi svör Markmiðin eru ekki þau sömu hjá öllum og þau breytast oft eftir því hvar fólk er statt á lífsleiðinni. Lífeyrisbestun byggir á þessari einföldu staðreynd og býður upp á þrjár leiðir sem hver og ein svarar ákveðinni spurningu. Fyrsta spurningin er sú sem margir velta fyrir sér en fá sjaldan skýrt svar við. Hvenær get ég hætt að vinna? Þar er markmiðið að finna raunhæfan tímapunkt miðað við núverandi stöðu og sýna jafnframt hvað þarf að gerast til að það verði mögulegt. Önnur nálgun á betur við þegar markmiðið er þegar orðið skýrt. Þá snýst málið um að svara spurningunni ég ætla að hætta að vinna við ákveðinn aldur, en hvað þarf til að það gangi upp? Þar er metið hvort núverandi sparnaður og réttindi duga og hvað þarf að bæta til þess að markmiðinu sé náð. Þriðja leiðin hentar þeim sem eru að nálgast lífeyristöku og snýr að því að hámarka lífeyristekjur sínar miðað við núverandi stöðu. Þá er horft til þess hvernig best sé að nýta réttindi, hvenær skynsamlegt er að taka út séreign, hvernig samtrygging og skattar spila saman og hvort og hvernig taka eigi mið af greiðslum frá Tryggingastofnun. Það sem þessar leiðir eiga sameiginlegt er að notandinn þarf ekki að vita fyrirfram hver besta lausnin er. Hún kemur í ljós þegar allir þættir eru metnir saman. Skýrari mynd af eigin framtíð Þegar allir þessir þættir eru settir í samhengi verður myndin skýrari. Margir komast að því að þeir eru nær markmiðum sínum en þeir héldu. Aðrir sjá að litlar breytingar í dag geta haft veruleg áhrif síðar. Í sumum tilvikum kemur einnig í ljós að tímasetning ákvarðana vegur þyngra en upphæðirnar sjálfar. Það sem breytist er fyrst og fremst skilningurinn á stöðunni. Lífeyrismál snúast ekki eingöngu um sparnað eða réttindi. Þau snúast um að hafa raunhæfa sýn á framtíðina og geta tekið upplýstar ákvarðanir á réttum tíma. Að lokum stendur því eftir einföld spurning. Hvenær getur þú hætt að vinna og hvað þarf til að það gangi upp? Þú getur komist að því í dag með Lífeyrisbestun Aurbjargar og fengið skýrt svar við þessari spurningu.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira