Stöndum með skólasamfélaginu í Garðabæ! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar 7. maí 2026 14:32 Skóli fyrir allskonar börn - er það ekki það sem við viljum? Ég sem foreldri tengi við það. Skólakerfi á ekki að vera aðeins þau sem falla að hefðbundnu formi, heldur líka þau sem þurfa meira svigrúm, annan takt eða ólíka nálgun. Þegar við náum ekki utan um þann hóp sem þarf mest á stuðningi að halda, þá líður öllum verr, barninu sjálfu, vinum þeirra, kennaranum og fjölskyldunni. Ég tel mikilvægt að við horfum á þetta í heildarsamhengi og þróun síðustu ára. Í Garðabæ höfum við haft það að leiðarljósi að styrkja skóla út frá þeirra sérstöðu. Það hefur ávallt verið stefið í umræðunni og það er stefna sem vert er að halda í. En það gerist ekki bara af sjálfu sér af því það hefur alltaf gengið svo vel. Pólitísk sýn Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í dag virðist vera að halda í það sem hefur verið gert en ekki til nýsköpunnar og framþróunar, það hefur gleymst að byggja á þeim sterka grunni sem áður var lagður. Ég vil skýra stefnu í skólamálum sem byggir á trausti til fagfólks og viðurkennir að skólar eru ólíkir. Með mismunandi nemendahópa, starfsfólk og aðstæður. Þeir þurfa að hafa svigrúm og frelsi til að þróa sitt starf á eigin forsendum. En þetta frelsi verður ekki til nema það sé stutt af traustum grunni. Það sem ég heyri er að stjórnendur og starfsfólk þarf raunverulegan stuðning til að byggja upp skólastarfið. Það krefst þess að við treystum fagfólki á gólfinu sem er með bestu tilfinninguna fyrir því hvað þarf að gera til þess að halda takti í hverjum skóla og að við setjum ramma sem styður við frelsi, en ekki þrengja að því. Við eigum ekki að svara auknum áskorunum í skólum með aukinni miðstýringu. Hvað meina ég með því? Meiri miðstýring leysir ekki fjölbreyttari veruleika barna - það að fjölga verkefnum er ekki leiðin til þess að styðja við stjórnendur og kennara skólanna. Hún þrengir svigrúm og fjarlægir ákvarðanir frá þeim sem standa næst börnunum. Frelsi skólanna þarf því að haldast í hendur við aukinn stuðning. Veruleikinn í dag er að verkefni skólanna hafa stækkað hratt. Nemendahópurinn er fjölbreyttari, þarfir margþættari og álag á kennara meira. Á sama tíma hafa innviðir ekki fylgt í sama takti. Kennarar standa frammi fyrir flóknari verkefnum en áður, oft án þess að hafa þau verkfæri sem þarf. Ef við ætlum að skapa skóla sem raunverulega rúma öll börn, þá þurfum við að horfast í augu við að stuðningur er hluti af skólastarfinu sjálfu. Í mörgum bekkjum sjáum við að fáir nemendur með miklar stuðningsþarfir geta haft áhrif á heildina. Ekki vegna þess að þeir vilji það, heldur vegna þess að kerfið býður ekki upp á nægilegt svigrúm til að mæta þeim. Á sama tíma erum við með börn sem eru bráðger og þurfa lausnir í námi sem ýta undir það að þau fái tækifæri til að skara fram úr. Þegar við náum ekki utan um öll börn, þá dregur það úr gæðum kennslunnar fyrir alla. Kjarninn í þessu er að starfsfólk skólanna hafi raunverulegt rými til þess að sinna því sem er í þeirra verkahring. Ég tel að aukinn stuðningur og virðing fyrir kennarastéttinni sé lykillinn að bættu umhverfi fyrir öll börn. Kennarar þurfa svigrúm til að sinna sínu starfi, traust til að þróa það og stuðning til að mæta fjölbreyttum nemendahópi. Lykilatriði er að þeir séu með í ákvörðunum og fái svigrúm til þess að þróa hugmyndir út frá sínum áskorunum. Þá verður líka raunverulegt frelsi mögulegt. Ef við viljum standa við þá stefnu að skólarnir í Garðabæ fái að vaxa út frá sinni sérstöðu, þá þurfum við að taka skýra ákvörðun. Að styðja stjórnendur og kennara betur, ekki stýra þeim meira. Það þýðir að við þurfum að efla stoðþjónustu inni í skólum í samstarfi við ríkið og aðrar fagstéttir. Sterkir og fjölbreyttir skólar styðja lífsgæði til framtíðar í Garðabæ.Kosningarnar skipta máli.Settu X við C! Ykkar, Harpa Höfundur er uppeldis- og menntunarfræðingur, lýðheilsufræðingur og býður sig fram i 2.sæti Viðreisnar i Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Harpa Þorsteinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar