Skólarnir eru hjarta Hafnarfjarðar Ásdís Jóhannesdóttir, Lena Karen Sveinsdóttir og Valdimar Víðisson skrifa 7. maí 2026 07:40 Skólamál eru eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélaganna. Í skólunum mótast framtíðin, þar læra börnin okkar að lesa, reikna og skapa en ekki síður að vera hluti af samfélagi, eignast vini, takast á við áskoranir og finna styrkleika sína. Við þurfum að ræða um skólamál sem langtímafjárfestingu í börnum, fjölskyldum og samfélaginu öllu. Góður skóli verður til með öflugu starfsfólki, skýrri sýn, góðum aðbúnaði, snemmtækri íhlutun og þeirri pólitísku ákvörðun að setja börnin í forgang. Við í Framsókn í Hafnarfirði viljum halda áfram að byggja upp öflugt skólakerfi þar sem öll börn fá tækifæri til að njóta sín. Við viljum mæta fjölbreyttum þörfum barna með meiri stuðningi og sterkari þjónustu. Markmiðið er að hvert barn finni að það tilheyri skólasamfélaginu og sé viðurkennt á sínum eigin forsendum. Þar sem grunnurinn er lagður Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þar hefst formleg skólaganga barnsins. Leikskólar eru menntastofnanir og ein mikilvægasta fjárfesting samfélagsins. Við í Framsókn viljum fjölga stöðugildum í leikskólum til að mæta styttingu vinnuvikunnar og tryggja að börn fái þá faglegu þjónustu sem þau þurfa. Við viljum einnig endurskoða rýmisþörf fyrir hvert barn í leikskólum. Börn þurfa gott rými til að leika, læra, hvílast og þroskast. Starfsfólk þarf aðstæður sem gera því kleift að sinna starfinu af fagmennsku. Skólalóðir eru í forgangi og nú verður farið í stórátak í endurbótum á leik- og grunnskólalóðum. Skólalóðir eiga að hvetja til hreyfingar, leiks, sköpunar og samskipta. Þær eiga að vera öruggar, fjölbreyttar og lifandi. Sama á við um innivistina. Hljóðvist, loftgæði og lýsing hafa áhrif á líðan barna og starfsfólks alla daga. Þetta eru grunnforsendur góðs skólastarfs. Á leikskólum sjá fagfólk og foreldrar oft fyrst merki um að barn þurfi aukinn stuðning. Snemmtæk íhlutun er ein besta fjárfesting sem sveitarfélag getur ráðist í. Hún dregur úr álagi síðar meir, bætir líðan barna og skapar betri vinnuaðstæður fyrir starfsfólk. Við þurfum að halda áfram að byggja upp leikskóla þar sem börnin fá sterkan grunn, foreldrar finni öryggi og starfsfólk upplifir að það hafi tíma, rými og stuðning til að sinna starfinu sínu vel. Með því eykst vellíðan, veikindafjarvistum starfsfólks fækkar og starfsandinn verður betri. Grunnskólinn, frístundaheimilin og félagsmiðstöðvarnar Grunnskólinn er hornsteinn í lífi barna. Þar verja þau stórum hluta dagsins í heil 10 ár. Þess vegna skiptir öllu máli að grunnskólarnir okkar séu vel mannaðir, vel studdir og í stakk búnir til að mæta börnum á þeirra forsendum. Í Hafnarfirði eru um 4.000 börn og ungmenni í grunnskólum bæjarins. Þótt heildarfjöldi nemenda hafi lítið breyst síðustu ár hefur stuðningur við þá verið aukinn. Börn eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að vandinn verði orðinn of stór áður en gripið er inn í. Snemmtæk íhlutun á að vera rauður þráður í öllu skólastarfi. Þegar barn þarf stuðning, hvort sem það er námslegur, félagslegur, hegðunartengdur eða tilfinningalegur þá skiptir tíminn máli. Því fyrr sem við hjálpum því meiri líkur eru á að barninu líði betur, nái betri tökum á skólagöngunni og fjölskyldan öll finni fyrir meiri öryggi. Mikilvægt er að samfella sé á milli leik- og grunnskólans og að börn sem þurfa auka stuðning í leikskóla haldi áfram að fá stuðning þegar barnið kemur í grunnskólann. Við þurfum að halda þessari vinnu áfram. Við þurfum að tryggja öfluga sérkennslu og samfellu í þjónustu við börn sem er útfærð útfrá þörfum þeirra. Við viljum efla sértæk úrræði innan bæjarins og halda áfram að byggja upp fjölbreytt net sérdeilda og stuðningsúrræða. Ný úrræði í Áslandsskóla og Hraunvallaskóla eru dæmi um mikilvægar aðgerðir þar sem leitast er við að mæta börnum betur innan heimabyggðar. Slík uppbygging skiptir máli. Hún styður börnin, fjölskyldurnar og skólana. Fulltrúi farsældar er kominn í alla grunnskóla og er mikil ánægja bæði hjá starfsfólki skóla, foreldra og ekki síst nemendanna með þessa góðu viðbót við úrræði grunnskólans. Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar eru innan grunnskólanna. Þar fá börn og ungmenni tækifæri til að rækta félagsfærni, prófa sig áfram, finna áhugamál og tilheyra hópi. Við viljum fjölga stöðugildum í félagsmiðstöðvum og styrkja forvarnastarf með þátttöku foreldra, meðal annars með því að efla Götuvitann. Öflugt frístunda- og félagsstarf er forvörn, félagslegt öryggisnet og oft staðurinn þar sem börn finna röddina sína. Við þurfum líka að horfa til starfsfólksins. Starfsfólk skólanna bera uppi kerfið á hverjum degi. Þegar við fjárfestum myndarlega í skólakerfinu, aukum stuðning og eflum snemmtæka íhlutun þá erum við ekki aðeins að styðja börnin. Við erum líka að bæta vinnuumhverfi starfsfólks. Betri mönnun, skýrari verkferlar og meiri faglegur stuðningur eykur vellíðan á vinnustað, dregur úr veikindum og bætir starfsandann. Þegar börnin fá stuðning fyrr þá verður álagið minna síðar. Það finna allir, börnin, foreldrarnir og starfsfólkið. Börnin fyrst Skólamál snúast á endanum um forgangsröðun. Við í Framsókn í Hafnarfirði setjum börn og fjölskyldur í forgang. Við viljum efla leik- og grunnskóla, tryggja aukinn stuðning við fjölbreyttar þarfir nemenda, bæta innivist og aðstöðu, styrkja frístundaheimili og félagsmiðstöðvar og halda áfram að byggja upp öflugt forvarnastarf. Við viljum skólakerfi sem grípur börn snemma, styður starfsfólk vel og skapar traust milli heimila, skóla og sveitarfélags. Þetta er fjárfesting sem skilar sér í sterkari börnum, öruggari fjölskyldum, betri líðan, betri starfsanda, minni veikindum vegna álags og öflugra samfélagi. Þegar við fjárfestum í börnum þá fjárfestum við í Hafnarfirði til framtíðar. Ásdís Jóhannesdóttir, grunnskólakennari og á lista Framsóknar. Lena Karen Sveinsdóttir, deildarstjóri í grunnskóla og á lista Framsóknar. Valdimar Víðisson, fyrrverandi skólastjóri, oddviti Framsóknar og bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við erum orðin Afríka: Hvernig íslenska elítan rændi þjóðinni Sigurður Sigurðsson Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir Skoðun Staðreyndir og fræðsla um flugmannsstarfið Matthías Arngrímsson Skoðun 82 ár frá stofnun lýðveldisins: Gleymum ekki sögu okkar Anton Guðmundsson Skoðun Skýrar línur og strangari löggjöf um vindorku Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Hvernig verjum við sjálfstæði Íslands til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Kos staðfesti ekki tilvist samkomulags Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þegar ESB beitir smáþjóð ofríki Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvernig verjum við sjálfstæði Íslands til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Staðreyndir og fræðsla um flugmannsstarfið Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun 82 ár frá stofnun lýðveldisins: Gleymum ekki sögu okkar Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Kos staðfesti ekki tilvist samkomulags Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Við erum orðin Afríka: Hvernig íslenska elítan rændi þjóðinni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Skýrar línur og strangari löggjöf um vindorku Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Alvarleg og viðvarandi hernaðarógn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun 30% lækkun skiptir sveitir landsins máli Axel Sæland skrifar Skoðun Er ný fjármálaáætlun á áætlun? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Á að kenna íslensku við Háskóla Íslands? Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Enginn á að ýta Íslandi inn um bakdyrnar Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Þegar ESB beitir smáþjóð ofríki Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hver á stjórnsýsluna? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Farsældarlögin: Samþætting án úrræða Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir skrifar Skoðun Leggjum mannréttindaráð Reykjavíkur niður Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Þegar „kerfið“ spilar vörn Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að alast upp inni í símanum Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Bumbubað Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífseigla gæskunnar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvað gerir Íslendinga einstaka? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Börn á krossurum á gangstéttum höfuðborgarsvæðisins Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Háannatími má ekki vera griðland fyrir leyfislausan rekstur Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvort hefja eigi inngöngu í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir Skoðun
Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir Skoðun
Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar
Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar
Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir Skoðun
Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra Þórhildur Kristinsdóttir,Arna Dögg Einarsdóttir,Sigurdís Haraldsdóttir,Hrönn Harðardóttir,Helga Tryggvadóttir,Guðrún Nína Óskarsdóttir Skoðun