Skiptir máli hvað við kjósum í sveitarstjórnakosningunum? Sunna G. Sigurðardóttir skrifar 6. maí 2026 20:15 Það fer ekki fram hjá neinum að það styttist í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí. Síðustu vikur og mánuði hefur flest snúist um baráttu innan flokka um efstu sætin á listunum og um að kynna framboðslista á hverjum stað. Núna síðustu dagana fyrir kosningar er mikilvægt fyrir kjósendur að kynna sér vel stefnumál flokkanna og hver forgangsmálin eru hjá þeim. Það skiptir nefnilega máli hvernig flokkarnir sem verða í framboði ætla að ráðstafa útsvarstekjum sveitarfélaganna, þar útsvarið er um helmingur skatta sem einstaklingar greiða og er nýtt til að greiða fyrir verkefni sveitarfélaganna. Hvað er það sem sveitarfélögin gera? Það er alkunna að rekstur leikskóla og grunnskóla er á ábyrgð sveitarfélaga, sem og ýmis starfsemi innan grunnskólanna, eins og frístundaheimili barna og félagsstarf fyrir unglinga. Rekstur grunn- og leikskóla eru langstærstu verkefni sveitarfélaganna en það eru mjög mörg önnur mikilvæg verkefni sem sveitarfélögin sjá um. Hér má nefna þjónustu við fatlað fólk, sorphirðu, snjómokstur og hálkuvarnir, veitingu byggingaleyfa og eftirlit með nýbyggingum, vatn og fráveitu, barnavernd, fjárhagsaðstoð, rekstur flestra íþróttamannvirkja landsins og ýmsa þjónustu fyrir aldraða, svo sem félagsstarf og heimaþjónustu. Eins og sést á þessari upptalningu sjá sveitarfélögin um mjög margt af því sem tengist okkar daglega lífi og þessi málefni eru mikilvæg okkur íbúunum, bæði ungum sem öldum. Útsvar til sveitarfélaga er um 50% skattgreiðslna einstaklinga Mögulega átta ekki allir sig á því að útsvar til sveitarfélaga er um helmingur skatta sem launafólk greiðir. Auðvelt er að kynna sér hvernig það sem dregið er af launum dreifist á milli ríkis og sveitarfélaga með því að skoða álagningarseðilinn á Mínum síðum hjá Skattinum. Þar má finna ýmsar áhugaverðar upplýsingar, settar fram á nokkuð aðgengilegan hátt um heildarupphæð skattgreiðslna á árinu og hvernig þær skiptast á milli ríkissjóðs og sveitarfélags. Í mínu tilfelli hefur það meira að segja verið örlítið hærri upphæð sem fer til Garðabæjar, þar sem ég bý, en til ríkisins, eða 50,9% hafa farið til Garðabæjar og 49,1% til ríkisins. Ég hvet alla til að skoða hvernig þetta skiptist hjá þeim og í framhaldi af því kynna sér fjármál sinna sveitarfélaga og þar með í hvað verið að nýta útsvarsgreiðslurnar. Einnig er áhugavert að kynna sér hversu há prósenta fasteignagjalda á íbúðar- og atvinnuhúsnæði er, þar sem fasteignagjöld sem greidd eru renna líka til sveitarfélaganna og sveitarfélögin stýra sjálf þeirri prósentu. Ánægðir íbúar, aðhald í fjármálum og skynsamleg forgangsröðun verkefna í Garðabæ Samkvæmt ofantöldu fer um helmingur af öllum launaskattgreiðslum til þess sveitarfélags sem fólk er með lögheimili í. Sem dæmi um aðgerðir sveitarfélags til að létta álögum á íbúa þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ á síðustu árum verið að lækka prósentuna á fasteignagjöldum til að koma til móts við hækkanir á fasteignaverði. Einnig hefur Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ ekki verið að nýta alla heimild sína til að innheimta útsvar frá íbúum, sem er bein leið til að hafa lægri skatt á íbúa. Það er nefnilega þannig að þegar rætt er um skattahækkanir og lækkanir þá er það ekki bara ríkisstjórnin sem hefur áhrif á það hvað af tekjum launafólks situr eftir í veski fólks, heldur líka sveitarstjórnirnar. Þess vegna er mikilvægt fyrir íbúa að kynna sér vel hvernig flokkarnir sem í framboði eru ætla að ráðstafa útsvarsgreiðslum íbúanna og hvort aðhald í útgjöldum og skynsamleg forgangsröðun sé ekki örugglega eitt helsta stefnumálið. Staðreyndin er að í þeim sveitarfélögum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur stýrt síðustu ár hefur þjónustustig verið hátt og reksturinn gengið vel, því er atkvæði sem merkt er D þann 16. maí atkvæði sem fer til frekari góðra verka og skynsemi í rekstri. Höfundur er íbúi í Garðabæ og 3. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í SV kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar