Að fljóta sofandi að feigðarósi? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar 6. maí 2026 13:45 Kosningar eru krossgötur. Þetta eru tímamót þar sem við þurfum að spyrja okkur stórra spurninga og ég ætla að byrja á þeirri spurningu sem brennur á mér. Er Skagafjörður að fljóta sofandi að feigðarósi? Árið 1998, hóf ég þá 16 ára, störf í ferðaþjónustu í tiltölulega nýopnuðu hóteli ofan við gamla Staðarskála í Hrútafirði. Næstu sumur, páskafrí, jafnvel jólafrí eða langar helgar, tók ég vaktir ýmist í skálanum eða á hótelinu. Árið 2000 hóf ég svo störf við Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð og vann þar öll sumur til 2006. Ég er ættuð frá Bæ á Höfðaströnd og Ytra-Vatni í efri byggð innan úr Lýtó. Ég er fædd og uppalin á Sauðárkróki og eftir að hafa menntað mig, stofnað fjölskyldu, haldið heimili og starfað sem grunnskólakennari í höfuðborginni meðan eiginmaðurinn kláraði sinn íþróttaferil, fluttum við á Sauðárkrók árið 2018 og ég hóf stundakennslu við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum áður en ég hóf störf við sýninguna 1238 um það leyti sem hún var að opna. Ég hef menntað mig sem grunnskólakennari, ferðamarkaðsfræðingur, sem markþjálfi og menningarstjórnandi með áherslu á nýsköpun og frumkvöðlastarf. Ég er ekki utanaðkomandi gagnrýnandi, ég er íbúi sem ber umhyggju fyrir samfélaginu þar sem rætur mínar liggja, ég er fagmanneskja sem hefur metnað fyrir atvinnugreininni sem ég starfað við stóran hluta míns starfsferils og ég er sem kjósandi sem kallar eftir skýrri framtíðarsýn og markvissum aðgerðum. Í febrúar 2020 kom út skýrsla á vegum KPMG um framtíð atvinnulífs á Norðurlandi vestra til ársins 2040. Þar voru dregnar upp fjórar sviðsmyndir, þar sem helstu drifkraftar eru framsækni gegn íhaldssemi annars vegar, og virðisauki gegn magni hins vegar. Sú skýrsla var hugsuð sem verkfæri fyrir sveitarstjórnarfólk til að skapa sameiginlegan skilning á því hvað þarf að gera í dag til að undirbúa framtíðina. Skýrsluna má finna hér: https://www.ssnv.is/static/files/Mappa/SSNV/skyrslur/ssnv_svidsmyndir.pdf Og hér vaknar önnur spurning: Erum við að gera eitthvað? Árið 1998 bjuggu 4536 manns í Skagafirði. Árið 2026 eru þeir 4361. Á sama tíma hefur íslensku þjóðinni fjölgað um 45%. Árið 1998 komu rúm 230þús ferðamenn til landsins og gistinætur í Skagafirði voru um 25þús. Árið 2024 komu 2,3 milljón ferðamenn til landsins en gistinótum í Skagafirði aðeins fjölgað í 56 þús. Meðan fjöldi ferðamanna tífaldaðist, varð rétt tvöföldun í Skagafirði. Það er erfitt að koma auga á merki um sókn. Á meðan landið allt hefur vaxið og dafnað, hefur Skagafjörður staðið í stað. Við höfum ekki efni á þeirri sjálfsblekkingu að halda að framtíðin muni hinkra meðan við skoðum málin eða að einhver annar, ríkisstjórnin (?) reddi málunum með fjölgun opinberra starfa á svæðinu. Við verðum að velja: Framsækni eða íhaldssemi. Nýsköpun má ekki vera orð á blaði eða slagorð í kosningabaráttu, hún verður að vera drifkraftur sem opnar nýjar leiðir, skapar ný störf, eykur hagkvæmni og gerir okkur – bæði sem einstaklinga og samfélag, betur í stakk búin til að takast á við áskoranir bæði samtímans en ekki síður framtíðarinnar. Hér í Skagafirði er ferðaþjónustan að stórum hluta samansett af litlum fjölskyldufyrirtækjum og frumkvöðlum sem sjaldnast hafa bolmagn til að standa í stórtæku markaðsstarfi á alþjóðavísu eða takast á við flókið regluverk einir síns liðs, á markaði þar sem Skagfjörður á gríðarlega mikið inni. Það er hér sem sveitarfélagið verður að stíga sterkt inn. Við þurfum ekki bara klapp á bakið, við þurfum kerfi sem styður við samstarf og samvinnu. Sveitarfélagið verður að vera bakhjarl í markaðssetningu héraðsins sem heildar, svo litlu aðilarnir fái að njóta sín innan stærri myndar. Við þurfum að styðja við frumkvöðla í ferðaþjónustu, ekki bara í orði heldur á borði í raun og veru. Það þýðir að skapa jarðveg þar sem hugmyndir fá að vaxa og þróast, án þess að mæta vegg af regluverki eða nefndarálitum og bókunum. Við þurfum beint millilandaflug til Norðurlands. Þetta er ekki bara ferðaþjónustuatriði; þetta er lykillinn að því að opna fjórðunginn fyrir alþjóðlegum viðskiptum og fjölbreyttu atvinnulífi. Við þurfum auknar komur skemmtiferðaskipa, við þurfum að greiða götur þeirra sem vilja þjónusta þessa gesti og sveitarfélagið þarf að eiga frumkvæði að því að skapa fallega og góða umgjörð fyrir fólk sem kemur með kaupmáttinn sinn hingað tímabundið. Hér langar mig að minnast á frábæra skýrslu Byggðasafns Skagfirðinga um framtíðarsýn um sýningarhald, þar er að finna góðar hugmyndir, markvissar greiningar og skýra sýn. Skýrslan er frá árinu 2021 en óljóst er með hvaða hætti vinnan hefur nýst í framhaldinu. Skýrsluna má finna hér: https://www.glaumbaer.is/static/files/framtidarsyn-um-syningarhald-byggdasafns-skagfirdinga-a-saudarkroki_skyrsla.pdf Svona faglegri vinnu og skýrslugerð er er ekki mikil virðing sýnd ef ekki er unnið markvisst eftir henni með tímasettri aðgerðaráætlun. Við þurfum frekari fjárfestingar. Samhliða því að styrkja innviði og styðja við þau fyrirtæki sem fyrir eru, verðum við að vera meðvituð um að frekari vöxtur krefst fjárfestingar. Sveitarfélagið þarf að sýna frumkvæði og elju við að laða að fjárfesta sem hafa burði til að byggja upp metnaðarfulla gistimöguleika og fjölbreytta afþreyingu sem lengir dvöl ferðamanna á svæðinu. Við þurfum að skapa umhverfi þar sem ferlið er skýrt, skilvirkt og hvetjandi. Með því að auka fjárfestingar í ferðaþjónustu búum við til fleiri heilsársstörf, styrkjum skattstofna okkar og tryggjum að Skagafjörður verði ekki bara viðkomustaður á leiðinni annað, heldur áfangastaður í fremstu röð. Fjárfesting í ferðaþjónustu er fjárfesting í lífsgæðum Skagfirðinga til framtíðar. Umræður í undirbúningi kosninga snúast gjarnan um lífskjör. Rætt er um ársreikninga, leikskólamál, gjaldheimtur og rekstrarkostnað. Ýmist snúið útúr eða aðeins þau atriði valin sem best henta til að berja sér á brjóst. Ég kalla eftir umræðum um lífsgæði. Hversu gott er lífið hérna? Hversu skemmtilegt er samfélagið okkar? Það er hér sem ferðaþjónustan kemur inn sem einn mikilvægasti drifkrafturinn, ekki bara sem atvinnugrein, heldur sem samfélagsleg vítamínsprauta. Með öflugri og nærandi ferðaþjónustu fylgir nefnilega, aukið mannlíf, aukin menning, stærri markaður fyrir kaffihús, bakarí, veitingastaði, myndlistagallerí, handverksverslanir osfrv. Án gesta er grundvöllur fyrir þessari fjölbreytni mun veikari. Ferðaþjónusta og aðrar skapandi greinar eru lykillinn að því að skapa gleði og skemmtun sem gerir samfélagið aðlaðandi fyrir okkur sem hér búum – fyrir þá sem við viljum að heimsæki okkur og fyrir þá sem við viljum að flytji hingað. Ef við ætlum að forðast það að fljóta sofandi að feigðarósi, þurfum við að ákveða hvort við ætlum að stýra skútunni í átt að framsækni og auknum virðisauka, þar sem sköpun og gleði ríkir, eða hvort við höldum áfram að bíða eftir því að hlutirnir gerist af sjálfu sér. Kæru frambjóðendur. Þið eruð að sækjast eftir valdi og ábyrgð. Sú ábyrgð felst í því að ákveða hvort við ætlum að halda áfram að standa í stað eða hvort við þorum að horfa til framtíðar. Það þarf að þora til að skora. Við eigum ekki að bíða eftir að hlutirnir gerist. Við eigum að búa þá til. Ég skora á ykkur að horfa til framtíðar – ekki bara næstu fjögurra ára, heldur næstu þrjátíu. Gerum Skagafjörð að samfélagi þar sem sköpun, mannlíf og gleði ríkir. Framtíðin bíður ekki, hún er ekki á morgun – Framtíðin er búin til í dag. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skagafjörður Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun