Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 6. maí 2026 09:21 Samfylkingin í Hafnarfirði hefur barist fyrir fjölbreyttri húsnæðisuppbyggingu á kjörtímabilinu. Við lögðum til að bærinn myndi skrifa undir rammasamning við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um húsnæðisuppbyggingu þar sem stefnt væri að því að 30% alls nýs húsnæðis í bænum væru hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði, t.d. á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga, og 5% félagslegar íbúðir. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafnaði þeirri tillögu enda er húsnæðisuppbygging í bænum langt frá þessum markmiðum. Í dag eru tæplega 1000 íbúðir á framkvæmdastigi á vegum Bjargs íbúðafélags ASÍ og BSRB, flestar í Reykjavík, en engin í Hafnarfirði. Þeirri stöðu verður að breyta og Samfylkingin ætlar að gera það. Jafnaðarfólk í Reykjavík dregur vagninn Alveg frá því sömu flokkar og fara með stjórn mála í Hafnarfirði, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, lögðu niður verkamannabústaðakerfið um síðustu aldamót með alvarlegum afleiðingum fyrir húsnæðisöryggi vinnandi fólks hefur verkalýðshreyfingin haft frumkvæði að því að leiðrétta þau mistök. Á síðustu árum hefur Reykjavík, undir forystu jafnaðarmanna, dregið vagninn í uppbyggingu í samstarfi við óhagnaðardrifin leigufélög. Á sama tíma hafa sveitarfélög þar sem Sjálfstæðisflokkurinn heldur um stjórnartaumana, oftast með Framsókn í taumi, meira og minna skilað auðu. Ekkert nýtt í pípunum í Hafnarfirði Þannig er einmitt staðan í Hafnarfirði þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið 12 ár í meirihluta og síðustu 8 ár í samstarfi við Framsókn. Á höfuðborgarsvæðinu er leiguverð sem hlutfall af ráðstöfunartekjum hvergi hærra en í Hafnarfirði. Bæjarstjórn getur ekki lokað augunum fyrir þessu og verður að bregðast við og hér er því verk að vinna. Engar íbúðir fyrir eldra fólk eða námsmannaíbúðir Engar námsmannaíbúðir hafa verið byggðar í Hafnarfirði í mörg ár. Það hafa heldur engar íbúðir fyrir eldra fólk verið byggðar í bænum í mörg ár að frumkvæði bæjarins. Meirihlutinn gekk reyndar svo langt að fella tillögu Samfylkingarinnar um að hefja undirbúning á uppbyggingu lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu þrátt fyrir fögur fyrirheit um slíka uppbyggingu fyrir síðustu kosningar og í upphafi kjörtímabilsins. Félagslegum íbúðum fækkað hlutfallslega á kjörtímabilinu Biðlistar eftir félagslegu húsnæði eru langir og biðtíminn sömuleiðis langur. Á kjörtímabilinu hefur félagslegum íbúðum ekki fjölgað að neinu ráði. Og þeim hefur raunar fækkað hlutfallslega úr 9,4 í 8,7 íbúðir á hverja 1.000 íbúa. Margir á biðlista eru í bráðum vanda og um 30 einstaklingar eru skilgreindir sem heimilislausir. Í málefnum þess hóps má líka segja að kjörtímabilið sé tímabil glataðra tækifæra því fyrir rúmum tveimur árum voru keypt smáhýsi fyrir heimilislausa en vandræðagangurinn er slíkur að þau standa enn auð í geymsluporti á vegum bæjarins. Húsnæðismál eru velferðarmál Samfylkingin ætlar á næsta kjörtímabili að ráðast í nauðsynlegar aðgerðir í húsnæðismálum með því að stórauka samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög og bjóða upp á fjölbreytt og hagkvæmt húsnæði fyrir alla; ungt fólk, fyrstu kaupendur, eldri íbúa, fólk með fötlun, tekjulága og fleiri. Það er verk að vinna eftir kyrrstöðu og stefnuleysi síðustu ára. Samfylkingin er tilbúin að ganga í verkin með þá sýn að leiðarljósi að húsnæðismál séu velferðarmál og að allir eigi rétt á þaki yfir höfuðið. Ef þú vilt sjá breytingar á stjórn Hafnarfjarðar á næsta kjörtímabil þar sem lögð er áhersla á fjölbreyttar lausnir í húsnæðismálum sem tryggja húsnæðisöryggi allra þá er besta og öruggasta leiðin að því marki að kjósa Samfylkinguna í kosningunum 16. maí nk. XS - Sterkari Saman Höfundur skipar 3. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar