Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson, Jónas Guðnason og Lárus Jónsson skrifa 5. maí 2026 14:16 Í Hveragerði býr öflugt og fjölbreytt samfélag. Okkar Hveragerði er bæjarmálafélag. Það er ekki stjórnmálaflokkur, það skiptir máli. Í stað þess að byggja á flokkslínum, stefnum frá landsmálum eða hugmyndafræðilegum átökum, byggir félagið á einfaldari og skýrari grunni, sameiginlegum vilja til að gera Hveragerði betra fyrir íbúa þess. Við svörum aðeins íbúum Hveragerðis, en ekki flokksforystu á landsvísu. Í bæjarmálafélagi koma saman einstaklingar með ólíkan bakgrunn, reynslu og skoðanir. Það er styrkur, því þegar markmiðið er eitt og sameiginlegt, að vinna að hagsmunum bæjarins, skapast svigrúm til raunhæfra lausna í stað þess að festast í skotgröfum stjórnmálanna. Áherslan færist frá því hver hefur „rétt fyrir sér“ yfir í það hvað virkar best fyrir samfélagið. Kosturinn við þetta fyrirkomulag er skýr. Ákvarðanir eru teknar nær íbúum, byggðar á þekkingu á staðháttum og raunverulegum þörfum allra hópa samfélagsins. Samvinna verður einfaldari þegar allir ganga að borðinu með sama markmið: „Að skapa góð lífsskilyrði, efla þjónustu og byggja upp öflugt og aðlaðandi bæjarfélag“. Sem óháð bæjarmálafélag svörum við aðeins íbúum Hveragerðis. Við erum ekki bundin af flokkslínum eða hagsmunum sem eiga rætur sínar utan bæjarmarkanna. Okkar eini húsbóndi er fólkið í bænum. Innviðauppbygging – uppsöfnuð þörf sem nú er mætt Að taka við stjórn sveitarfélags með uppsafnaða innviðaskuld þýðir að horfast í augu við raunveruleikann. Þarfir íbúa fyrir leikskóla, grunnskóla og íþróttaaðstöðu bíða ekki. Það krefst kjarks að fjárfesta, en árangurinn er mælanlegur. Með nýju tækni- og umhverfissviði og mennta- og lýðheilsusviði tryggjum við að uppbygging mannvirkja fylgi ströngustu gæðakröfum og þjóni hagsmunum allra. Uppbygging til framtíðar er val Okkar Hveragerðis. Ódýrari lausn á blaði er sjaldnast sú hagkvæmasta til lengri tíma. Fjárfestingar sem endast ekki kalla á endurtekin viðbrögð, meiri kostnað og lakari niðurstöðu fyrir samfélagið. Ábyrg uppbygging snýst um að horfa lengra fram í tímann og skapa varanleg verðmæti. Skuldir eru ekki bara skuldir, heldur raunveruleg fjárfesting í samfélaginu, fólkinu okkar, börnum okkar, vinum og fjölskyldu. Hveragerði stendur traustum fótum og hefur burði til að mæta þeim, ekki síst með auknu fjárstreymi frá vaxandi íbúafjölda og öflugu atvinnulífi. Þessi fjárfesting skilar sér beint til íbúa. Engin glimmerlausn – raunverulegar aðgerðir og árangur í ört vaxandi samfélagi Verkefnin hafa verið tekin föstum tökum og árangurinn er raunverulegur. Í dag stendur Hveragerði á sterkari grunni en áður, þar sem innviðauppbygging styður við lífsgæði íbúa og framtíðarþróun bæjarins. Það er þessi nálgun sem gerir bæjarmálafélagið Okkar Hveragerði að öflugum vettvangi. Hér vinna allir að einu markmiði, að gera gagn saman fyrir Hveragerði til framtíðar. Guðjón Óskar Kristjánsson, 9. sæti hjá Okkar HveragerðiJónas Guðnason, 3. sæti hjá Okkar HveragerðiLárus Jónsson, Oddviti Okkar Hveragerðis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar