Þegar niðurstaðan kemur á undan greiningunni Erna Bjarnadóttir skrifar 3. maí 2026 21:31 Í greininni „Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending“ eftir Matthías Ólafsson og Cailean Macleod, sem birtist á Vísi 30. apríl 2026, er lagt upp með að þar sé fjallað um áhrif hugsanlegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þar vísa höfundar til aðferðafræði sem þeir kalla „áhrifamat“, byggt á eigin reynslu af slíkri vinnu í Brussel. Með því er gefið í skyn að hér sé beitt sambærilegri aðferðafræði — að greina kosti og galla á hlutlægan og gagnsæjan hátt áður en niðurstaða er dregin. Augljóslega er tilvísun til „áhrifamats“, eins og slík vinna er gerð á vegum Evrópusambandsins, sett fram til að gefa málflutningi höfunda faglegt yfirbragð. Slík vinna innan ESB einkennist hins vegar af því að forsendur eru lagðar fram, valkostir vegnir og óvissa gerð sýnileg. Í þessari grein er farin þveröfug leið: niðurstaðan er kynnt sem fyrirfram gefin og síðan leitað að dæmum sem styðja hana. Það er ekki áhrifamat — það er niðurstaða í leit að rökum. Landbúnaður og lækkun matarverðs Í þessari grein verður athyglinni beint að kaflanum um landbúnað. Þar komast höfundar að þeirri niðurstöðu, án þess að styðja hana með svo mikið sem einu dæmi af talnalegum rökum, að matvöruverð á Íslandi muni lækka umtalsvert við aðild að ESB. Þetta er gamalkunnugt stef, en þess sér hins vegar engan stað að höfundar hafi svo mikið sem opnað íslensku tollskrána til að finna staðhæfingum sínum stað. Þarna er því haldið statt og stöðugt fram að verð á kornvörum til neytenda muni lækka við aðild að ESB. Höfundum til fróðleiks má benda á að allar kornvörur, hveiti, Cheerios, sólblómafræ og hverju nafni sem þær annars nefnast, eru án tolla í dag inn til Íslands hvaðan sem þær eru fluttar. Verði Ísland aðili að ESB mun hins vegar í einhverjum tilvikum leggjast tollur á vörur frá þriðju löndum, t.d. Bandaríkjunum. Neytendur munu því væntanlega draga úr neyslu á amerísku morgunkorni og stappa í sig hafrafrasi og öðru evrópsku gúmmulaði. Þegar svo augljóst dæmi er notað til að styðja niðurstöðu um verðlækkun vaknar eðlilega spurning um hversu traustar hinar forsendurnar eru. Raunar er gengið enn lengra þegar niðurstaðan er sögð „óumdeilanleg“, án þess að forsendur séu lagðar fram. Höfundar halda því einnig fram að þetta muni leiða til verðlækkana á unnum matvörum. Aftur er íslenska tollskráin ólygin því að langmest af slíkum matvælum eru þegar tollfrjáls gagnvart ESB og mörgum fleiri löndum sem gerðir hafa verið fríverslunarsamningar við á vegum EFTA. Að öllu þessu virtu virðast höfundar ekki hafa hugmynd um að fleiri búgreinar en nautgripa- og sauðfjárrækt, auk einhverrar garðyrkju, séu stundaðar hér á landi. Mögulega hafa þær fréttir ekki borist til Brussel með vorskipunum. Áhrif ESB-aðildar á matvælaverð ráðast af fjölmörgum þáttum: gengi, flutningskostnaði, samkeppni í smásölu og skipulagi virðiskeðjunnar, svo eitthvað sé nefnt. Engin tilraun er gerð til að greina þessa þætti eða meta vægi þeirra. Að lýsa niðurstöðu sem óumdeilanlegri í slíkum aðstæðum er ekki merki um styrk í röksemdafærslu, heldur hið gagnstæða – veikleika í forsendum. Af ýmsu fleiru er að taka Þegar gripið er niður víðar í grein greinarhöfunda sést að áhrifamatið hefði þolað meiri rýni og myndin af vinnubrögðunum verður enn skýrari. Þar segir til dæmis:„Viðræðurnar 2010 til 2013 mistókust vegna þess að erfiðustu spurningunum var frestað þar til þær urðu ósvaranlegar.“ Nú kann vel að vera að þetta málfar sé viðhaft í Brussel, en þetta er hvorki góð íslenska né rétt lýsing á því sem gerðist. Þá er vísað í „nýlega rannsókn“ sem eigi að sýna að upptaka evru geti aukið millilandaverslun um allt að 60%. Slík tala er sett fram án samhengis, án skýringa og án þess að lesandanum sé gert kleift að meta forsendur hennar. Sextíu prósent er ekki lítil breyting – og kallar á meira en lauslega tilvísun. Án þess verður talan fremur fullyrðing en niðurstaða. Slíkum tölum á ekki að kasta fram án skýringa. Enn lengra er gengið þegar fjallað er um skiptigengi við upptöku evru, þar sem því er lýst að ráð ESB ákveði gengið og að það geti haft í för með sér „óafturkræfa eignatilfærslu“ upp á milljarða. Þar er dregin upp mynd sem er bæði dramatísk og einhliða, án þess að gerð sé tilraun til að skýra hvernig slíkt ferli hefur farið fram í öðrum ríkjum eða hvaða samningssvigrúm er raunverulega til staðar. Sextíu prósenta aukning í viðskiptum er sett fram með þeim hætti að lesandinn eigi einfaldlega að taka henni trúanlega. Og þegar kemur að skiptigenginu er lesandinn minntur á að milljarðar geti færst til á milli hópa eftir ákvörðun sem Ísland hefur ekki neitunarvald um – en samt eigi samninganefndin að „taka á þessu með afgerandi hætti“. Það er ekki alveg ljóst hvernig það á að fara saman. Það er ekki nóg að kalla texta áhrifamat til að hann verði það – vinnubrögðin verða að undirbyggja það. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Landbúnaður Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar