Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Límtré vírnet 5. maí 2026 08:32 Roomvo er byltingarkennd tæknilausn sem gerir þér kleift að sjá hvernig húsið þitt gæti litið út með álklæðningu Límtré Vírnets. Það er stór ákvörðun að velja klæðningu á hús og áskorun að sjá fyrir sér liti og áferð og hvernig lokaútkoman mun líta út. Nú hefur Límtré Vírnet opnað nýtt stafrænt verkfæri sem einfaldar ferlið til muna.
Lausnin heitir Roomvo og er nú komin inn á heimasíðu fyrirtækisins. Valdimar R. Tryggvason, nýr sölustjóri hjá Límtré Vírnet segir markmiðið að taka óvissuna úr jöfnunni og gera hugmyndavinnuna bæði einfaldari og skemmtilegri. „Fólk hefur oft þurft að keyra um allan bæ til að skoða mismunandi hús og reyna að ímynda sér hvernig eigið hús gæti litið út með svipaðri klæðningu. Nú getur það gert þetta heima í tölvunni eða símanum,“ segir Valdimar. Þetta er bylting í þjónustu og mun auðvelda ferlið. Myndir af húsinu beint inn í kerfið Prófaðu liti og form í hvaða blöndu sem þú vilt. Notendur geta hlaðið inn mynd af eigin húsi eða nýtt sér myndir sem finna má á netinu og sett þær inn í Roomvo. Þar geta notendur leist ímyndunaraflið úr læðingi og prófað mismunandi klæðningar, liti og útfærslur á húsinu. Kerfið velur veggfletina sérstaklega, sem gerir notendum kleift að setja ólíkar klæðningar og liti á mismunandi hluta hússins og bera saman útlit á einfaldan hátt. Þannig má sjá hvernig ákveðinn litur kemur út á framhlið hússins eða hvort önnur form skili betri heildarmynd. Fimmtán litir og fjölbreytt útlit Í boði eru fimmtán litir auk nokkurra gerða af klæðningum. Þar má meðal annars finna álklæðningar sem eru mótaðar þannig að þær líkjast hefðbundnum panil eða öðrum formum. Það hefur alltaf verið erfitt að taka ákvörðun um loka útlit á flóknum byggingum en með Roomvo hefur það orðið talsvert auðveldara. „Þú sérð útkomuna áður en fyrsta skrúfan fer í vegginn,“ segir Valdimar og bendir á að það geti sparað bæði tíma og rangar ákvarðanir. „Myndin sem þú sérð í kerfinu gefa þó alltaf bara góða hugmynd, endanlegt útlit kemur alltaf í ljós á húsinu sjálfu, en þetta gefur mjög góða mynd af endanlegu útliti. Þegar notendur eru komnir með hugmynd sem þeim líst vel á geta þeir vistað mynd í PDF skjali og sent til söluráðgjafa fyrirtækisins áður en endanleg ákvörðun er tekin. Álklæðningar opna nýja möguleika Valdimar R. Tryggvason, nýr sölustjóri Límtré Vírnets. Áhugi á álklæðningum hefur aukist mikið undanfarin ár enda er efnið endingargott, ryðgar ekki og krefst lítið viðhalds miðað við margar aðrar lausnir. Þá er einnig hægt að beygja og forma efnið eftir óskum viðskiptavina segir Valdimar. Álklæðning mun prýða byggingar í langan tíma og nú fyrst er hægt að sjá þessi fjölmörgu form á byggingunni áður en ákvörðunin er tekin. Valdimar leggur áherslu á að Roomvo sé ekki reiknivél heldur stuðningur í ákvarðanatöku. Valdimar hvetur fólk sem er að byggja eða þarf að endurnýja ytra byrði húsa til að prófa lausnina. „Þetta getur orðið algjör bylting fyrir fólk sem stendur frammi fyrir stórri ákvörðun um útlit heimilisins.“ Hægt er að prófa Roomvo hér.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira