Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar 30. apríl 2026 11:00 Þótt hér í Reykjavík búi til skemmri eða lengri tíma margir góðir innflytjendur, er Reykjavík í huga mínum ekki sérstök fjölmenningarborg. Fyrst og síðast er Reykjavík höfuðborg okkar Íslendinga og menning hennar skal einkennast af því. Fráfarandi meirihluti tók þó nýlega af skarið og skilgreindi Reykjavík sem fjölmenningarborg, eins og það væri sérstakt markmið. Tískuhugtök á borð við fjölmenningu byggjast í raun á draumsýn um að ólíkir menningarheimar geti átakalaust runnið í einn. Veruleikinn í raunheimum er þó sá að ef innflytjendur verða of stór hluti íbúa er hætt við að hvatinn til þess að aðlagast samfélaginu hverfi. Þá lætur samheldnin í samfélaginu á sjá og flokkadrættir festast í sessi á milli þjóðernishópa. Allir sem eitthvað fylgjast með fréttum, þekkja dæmi um þessa óheillaþróun frá borgum í löndum Evrópu. Nýlega var fjallað um hugmyndir innflytjenda um að stofna sérstaka stjórnmálahreyfingu í Reykjavík til að gæta hagsmuna þess hóps. Í þeirri umræðu hefur verið bent á að ef innflytjendur sem hópur sameinast sem ein heild í kosningum sé þar á ferð kominn einn stærsti einstaki kjósendahópur í borginni. Hagsmunagæsla undir þessum formerkjum brýtur í bága við þá hugsjón að hingað komi menn til að samlagast samfélagi heimamanna. Þarna eru innflytjendur orðinn einn hópur og Íslendingar annar, í raun eins og stríðandi fylkingar. Slík niðurstaða var ekki kynnt sem hluti af pakkanum af hálfu þeirra sem studdu hvað ötulast við opin landamæri en er því miður óhjákvæmileg ef þróunin er eins hröð og hún hefur verið. Hjá okkur á lista Miðflokksins í þessum kosningum eru nokkrir Reykvíkingar sem eiga rætur að rekja til Póllands og fáir sem maður hittir eru jafn einarðir talsmenn ábyrgrar innflytjendastefnu – með hagsmuni Íslands í huga og ekki annað. Hvatar eiga að vera öryggisnet ekki segull Hvatar skipta nefnilega máli þegar mótuð er innflytjendastefna. Það er til dæmis ekki eðlilegt að tveir af hverjum þremur sem þiggja beina fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg séu með erlent ríkisfang. Ríkisvaldið hefur gengið hart fram gagnvart sveitarfélögum við að fela þeim ábyrgð á hælisleitendum og flóttamönnum í gegnum árin og slíkt getur dregið dilk á eftir sér. Samkvæmt gildandi reglum er fjölda fólks frjálst að flytja til Íslands til að vinna en það þýðir alls ekki að velferðarkerfi okkar Íslendinga, hvort sem er á vegum ríkis eða sveitarfélaga, eigi að virka sem segull fyrir þá sem ekki hyggjast leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Miðflokkurinn mun beita sér gegn slíku ástandi í Reykjavík eins og annars staðar. Það er einfaldlega heilbrigð skynsemi og ekki láta neinn segja ykkur annað. Andvaraleysi stjórnvalda í innflytjendamálum og tálsýnin um fjölmenningarsamfélagið hefur þegar haft töluverð áhrif á borgarbúa. Borgarbúar hafa ekki sömu öryggistilfinningu í næturlífinu og áður fyrr og dæmum fjölgar um grafalvarleg atvik, eins og hefur verið fjallað um í fréttum. Yfirgangur og óþægileg framkoma gerir vart við sig í strætisvögnum í auknum mæli og jafnvel eru skiptistöðvar eins og Spöngin og Mjódd orðnar hvimleiður viðkomustaður fyrir hinn almenna borgara vegna hópa sem hanga þar í tíma og ótíma. Þetta er ólíðandi og ábyrgðarhluti að láta þetta ekki viðgangast. Miðflokkurinn hefur skýrt erindi í íslenskum stjórnmálum og boðar breytta og ábyrgari nálgun í flestu sem viðkemur innflytjendastefnu stjórnvalda. Á því sviði geta borgaryfirvöld beitt sér af miklu meiri þunga gagnvart ríkisvaldinu en nú er gert. Miðflokkurinn horfist í augu við þá staðreynd að innflytjendastefna undanfarinna áratuga hefur valdið miklum þrýstingi á grunninnviði samfélagsins hvort sem er í menntamálum, samgöngumálum eða á húsnæðismarkaði. Aðgerðir til þess að auka öryggi í Reykjavík Í Reykjavík munum við beita okkur af fullum þunga til að gæta hagsmuna borgarbúa og leitast við að takmarka áhrif þessarar þróunar á daglegt líf þeirra. Borgin getur gripið til sérstakra ráðstafana til að auka öryggisgæslu á ákveðnum stöðum. Hægt er að semja við lögregluna um aukna löggæslu á vissum svæðum á kostnað borgarinnar. Einnig væri hægt að ráða sérstaka „borgarverði“ í þessu skyni eins og dæmi eru um erlendis. Óviðunandi ástand hefur verið í og við umræddar skiptistöðvar í strætókerfinu og borgin þarf að taka ábyrgð og sjá til þess að ávallt sé öryggisvörður á staðnum. Auka þarf öryggisgæslu í strætisvögnum og hefja mætti viðræður við dómsmálaráðherra um að hverfislögreglustöð verði opnuð í Breiðholti að nýju og að hún starfi í anda samfélagsþjónustu. Slík stöð var starfrækt um tuttugu ára skeið eða frá 1989-2009. Stöðin skilaði góðum árangri og glæpum fækkaði verulega í hverfinu eftir að hún tók til starfa.Götulýsing í borginni hefur verið í miklu ólagi undanfarna vetur, ekki síst í miðborginni. Á sama tíma hefur tilvikum fjölgað þar sem ungar konur verða fyrir kynbundinni áreitni og jafnvel ofbeldi á leið um bæinn síðla kvölds. Ljóst er að myrkvaða götur geta verið kjöraðstæður fyrir slíkt. Reykjavík á að vera örugg, samheldin og byggð á skýrum grunni íslenskrar menningar, það er ábyrgð okkar að standa vörð um það áður en það verður of seint. Höfundur er í öðru sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar