Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar 25. apríl 2026 11:32 Staðurinn tekur á móti okkur með opinn faðm. Þvílík staðarsýn. Þar gengur allt svo snilldarlega upp. Byggingafræðilegt meistaraverk! Stundum er talað um þessa mynd sem framhliðina á póstkorti. Þarna á bakvið er heilt þorp, háskólaþorp. Í merki Háskólans á Hólum kemur fram ártalið 1106 og stafurinn H eins og hann birtist okkur í Guðbrandsbiblíu. Frá mörgu er að segja. Þar dugir ekkert póstkort. Andblær aldanna svífur yfir, þannig að skynja má fótatak persónanna, bardús, hlátur og grátur. Hinir næmustu heyra í prentsmiðju Jóns Arasonar, aðrir finna lyktina. Jafnvel pilsaþytur Halldóru Guðbrandsdóttur nær í gegn. Á Hólum bjuggu engir venjulegir karakterar, framlag þeirra fór á spjöld sögunnar. Þar bjó einnig fjöldi fólks sem lét hlutina ganga: sinnti bústörfum, matseld, byggingum, umhirðu og bænagjörð. Og þar var skóli, Hólaskóli. Í honum var áhersla á fjölbreytta menntun í anda sambærilegra skóla í Evrópu. Á miðöldum bjuggu um 400 manns á Hólum. Í tæpar sjö aldir voru Hólar í Hjaltadal annar höfuðstaður Íslands. Af Hólum.Aðsend Á rótum fortíðar spratt svo upp nútímalegt skólahald á Hólum, bændaskóli og síðar Háskólinn á Hólum (2007). Metnaður, vandvirkni, útsjónasemi, frumleg hugsun, tilfinningar, samráð og samstaða fékk starfsfólk og nemendur til að fara á flug. Við Háskólann á Hólum hefur verið byggt upp og er unnið öflugt starf í þremur deildum: ferðamáladeild, fiskeldis- og fiskalíffræðideild og hestafræðideild. Margir þekkja vel til þessa starfs og skal fyrst vísað til hóps nemenda sem ber hlýjan hug til Hóla, en eins skal nefna samstarfsfélaga í öðrum skólum og stofnunum innan lands sem utan. Sumir þessir erlendu sérfræðingar, prófessorar eða reiðmeistarar þekkja tvo staði á Íslandi; Hóla í Hjaltadal og Reykjavík. Komi þeir til landsins er það segin saga að þeir heillast af Hólum, þessum magnaða stað. Já, þrátt fyrir að Háskólinn á Hólum sé ekki stór og sé staðsettur utan alfaraleiðar, þá er hann öflugur á sinni stólparót sem nærir. Ekki má gleyma náttúrunni í kring, hinum fagra Hjaltadal. „This must be the most beautiful campus in the World / þetta hlýtur að vera fallegasta háskólasvæði í heimi,“ sagði formaður erlendrar nefndar sem eitt sinn mat gæði háskólastarfsins. En nú er eitthvað að. Sumt er svo fjarstæðukennt að erfitt reynist að meðtaka það: Hólar í Hjaltadal hafa drabbast niður á undanförnum árum og viðhaldi hefur ekki verið sinnt. Tillögur eru fram komnar um sölu á mörgum eignum Háskólans á Hólum m.a. skólahúsinu sem er hjarta skólans og ímynd. Jafnframt er rætt um mikla uppbyggingu á Sauðárkróki. Staðreyndin er samt sú að tilvera og uppbygging háskólans er órjúfanleg Hólastað. Háskólinn á Hólum ásamt Hóladómkirkju eru kjölfestan í lífi og starfi á Hólum. Þær tillögur sem liggja fyrir hafa verið unnar án samráðs við íbúa staðarins, almenna starfsmenn Háskólans á Hólum og aðra velunnara Hóla í Hjaltadal. Þær virðast byggja á þekkingarleysi og takmarkaðri framtíðarsýn fyrir einn af merkustu mennta-, menningar- og sögustöðum landsins. Skólinn vinnur að myndun háskólasamstæðu ásamt Háskóla Íslands. Þar hefur samráðsleysið sömuleiðis verið við völd, sem meðal annars hefur leitt af sér vinnu sem ekki hefur verið vandað nægilega til. Höfundi þykir vænt um Hóla í Hjaltadal og staðurinn ásamt samfélaginu þar á sér sannarlega sess í hennar hjarta. Það er átakanlegt og þungbært að fylgjast með þróuninni og margir hafa miklar áhyggjur, - það eru engar ýkjur. Fólk reynir að andmæla, en gert er lítið úr áhyggjum fólks og skoðunum og ekki er hlustað. Það má sjálfsagt útskýra og jafnvel reyna að rökstyðja hvers vegna málum er svo komið sem raun ber vitni. En erfitt er annað en efast um raunverulegan vilja eða tilfinningar þeirra til Hóla í Hjaltadal er þarna véla um hlutina eða ættu að rísa upp Hólum til varnar. Satt best að segja má líkja þeim hugmyndum og tillögum sem bornar eru á borð við það að selja ömmu sína! Okkur er misboðið Á eftirfarandi slóð er hægt að skrifa undir áskorun til þeirra er málið varðar um að styrkja Háskólann á Hólum og Hóla í Hjaltadal. Áskorunin er samsvarandi við þá er samþykkt var á fjölmennum fundi íbúa og velunnara Háskólans á Hólum og Hólastaðar: https://island.is/undirskriftalistar/e78fbbfe-6b03-4427-9669-8c129bcde7dd Stöndum saman gegn vanvirðingu við einstaka sögu, stað, metnaðarfullt háskólastarf og fólk. Aðrar greinar sem birst hafa á Vísi um málefni Hóla í Hjaltadal: Gunnar Rögnvaldsson: Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Hjalti Pálsson: Syrtir að í sögu Hóla í Hjaltadal Pálína Hildur Sigurðardóttir: Hólar í Hjaltadal: Við getum gert betur Höfundur bjó og starfaði um árabil á Hólum í Hjaltadal og er þar enn með annan fótinn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skagafjörður Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar