Reynsla réttlætir ekki reglubrot Þórður Sigurjónsson skrifar 19. apríl 2026 09:32 Það er stórhættulegt að réttlæta lágflug yfir Vestmannaeyjabæ með því að flugstjórinn hafi mikla reynslu. Flugslys verða lang oftast vegna þess að brotið er gegn reglum – ekki vegna skorts á reynslu. Síðan 2009 hafa orðið sjö hörmuleg flugslys á Islandi, þar sem flugstjórarnir voru reynslumiklir og eflaust færir flugmenn. Þar sem flugstjórinn í umræddu lágflugi þekkti staðhætti vel, ætti hann að vita að Vestmannaeyjar eru ekki hentugur staður fyrir lágflug vegna mikils fuglalífs, því árekstur við fugla (birdstrike) getur valdið miklu tjóni og hættu. Eins má telja afar ólíklegt að allir farþegarnir hafi verið ánægðir með flugið, þar sem margir eru flughræddir og kjósa helst ekki að ferðast í hægu og lágu flugi. Slík áhættuhegðun sýnir ekki færni flugmanna. Hver flugmaður veit hvernig á að lækka flug, halda hæð og klifra; það er engin kúnst. Sem betur fer dettur nú fæstum í hug að gera það sér til skemmtunar á farþegaþotu. Ekki vil ég eingöngu sakast við eyjamanninn, því vinnuveitandi hans ber stóra ábyrgð á atvikinu. Flugfélagið, Loftleiðir, Flugleiðir og nú Icelandair hafa látið lágflug með farþega viðgangast allt of lengi – sem betur fer hefur það sloppið vel hingað til, en hversu lengi? Höfundur er fyrrverandi flugstjóri og áhugamaður um almennt öryggi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fréttir af flugi Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Icelandair Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Það er stórhættulegt að réttlæta lágflug yfir Vestmannaeyjabæ með því að flugstjórinn hafi mikla reynslu. Flugslys verða lang oftast vegna þess að brotið er gegn reglum – ekki vegna skorts á reynslu. Síðan 2009 hafa orðið sjö hörmuleg flugslys á Islandi, þar sem flugstjórarnir voru reynslumiklir og eflaust færir flugmenn. Þar sem flugstjórinn í umræddu lágflugi þekkti staðhætti vel, ætti hann að vita að Vestmannaeyjar eru ekki hentugur staður fyrir lágflug vegna mikils fuglalífs, því árekstur við fugla (birdstrike) getur valdið miklu tjóni og hættu. Eins má telja afar ólíklegt að allir farþegarnir hafi verið ánægðir með flugið, þar sem margir eru flughræddir og kjósa helst ekki að ferðast í hægu og lágu flugi. Slík áhættuhegðun sýnir ekki færni flugmanna. Hver flugmaður veit hvernig á að lækka flug, halda hæð og klifra; það er engin kúnst. Sem betur fer dettur nú fæstum í hug að gera það sér til skemmtunar á farþegaþotu. Ekki vil ég eingöngu sakast við eyjamanninn, því vinnuveitandi hans ber stóra ábyrgð á atvikinu. Flugfélagið, Loftleiðir, Flugleiðir og nú Icelandair hafa látið lágflug með farþega viðgangast allt of lengi – sem betur fer hefur það sloppið vel hingað til, en hversu lengi? Höfundur er fyrrverandi flugstjóri og áhugamaður um almennt öryggi.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar