Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar 16. apríl 2026 08:45 Bróðurpart þessarar aldar hef ég fylgst með og stutt þá vegferð að nýta innlenda orku í stað innfluttrar. Í upphafi aldarinnar skrifaði ég íslenskuverkefni um möguleikann á að knýja bíla með vetni. Um svipað leyti og Guð var svo eftirminnanlega beðinn um að blessa Ísland, komu fyrstu Lithium-rafhlöðurnar í bíla sem breyttu leiknum algjörlega. Á þeim tíma tók ég þátt í því með samnemendum mínum í Háskólanum í Reykjavík að smíða rafbíl sem við ókum hringinn í kringum landið í maí 2010. Það var dýrmæt reynsla sem sýndi að jafnvel með frumstæðri tækni þess tíma var hægt að keyra á íslenskri orku. Fullburða tækni Síðan þá hefur þróunin verið ótrúleg. Rafbíllinn er ekki lengur framúrstefnulegt verkefni eða málamiðlun; hann er í dag fullkomlega raunverulegur og öflugur valkostur sem stendur jafnfætis hefðbundnum eldsneytisbílum. Fyrir flest okkar er rafbíllinn einfaldlega betra farartæki sem hentar íslenskum aðstæðum frábærlega. Fyrir mér hafa orkuskipti þó aldrei snúist eingöngu um CO2-losun, þótt sá ávinningur sé mikilvægur. Kjarninn er okkar eigið frelsi og efnahagslegt öryggi. Sem námsmaður í fjármálahruninu fann ég hvernig vegið var að ferðafrelsi mínu þegar innflutt eldsneyti rauk upp í verði, á meðan innlenda rafmagnið stóð nánast óhaggað. Þá sem nú var mótmælt hækkun á eldsneyti og ríkið beðið að lækka álögur. Fjárfestum í framtíð Núna, árið 2026, stöndum við aftur í sömu sporum. Við flytjum inn olíu fyrir um 160* milljarða króna á ári. Í fjárlögum ársins er gert ráð fyrir að um 5 milljarðar króna renni í Loftslags- og orkusjóð. Þeir fjármunir eiga að standa undir orkuskiptum þjóðarinnar í heild; jafnt í skipaflotanum, innanlandsflugi, hjá flutningafyrirtækjum og við nauðsynlega innviðauppbyggingu um land allt. Til að vinna bug á verðbólgu hefur ríkið á sama tíma gripið til þess ráðs að lækka opinber gjöld á eldsneyti. Þótt markmiðið sé göfugt, þá mun ríkið verða af um 4 milljörðum króna í tekjur á aðeins nokkrum mánuðum vegna þessarar aðgerðar. Þetta er skiljanlegt viðbragð í erfiðri stöðu, en við þurfum að spyrja okkur: Eigum við ekki að rjúfa þennan vítahring og gera orkusjálfstæði að raunveruleika? Í stað þess að verja milljörðum í að plástra tímabundnar hækkanir á innfluttri olíu, ættum við frekar að stórefla orkuskipti í samgöngum. Við eigum að gera það núna svo við séum ekki háð ákvörðunum sem teknar eru handan við hafið. Við eigum ekki að vera berskjölduð fyrir því að einhver valdhafi í útlöndum fari öfugu megin framúr eða ákveði að fara í stríð út af „dotlu“. Að vera sjálfum okkur nóg Ísland er í einstakri stöðu til að vera sjálfbært með orku. Þetta snýst nefnilega ekki bara um að knúsa ísbirni eða loftslagsmarkmið á blaði – þetta snýst um að vera sjálfum okkur nóg. Látum þetta vera síðasta skiptið sem við þurfum að niðurgreiða innflutta olíu. Hugsum frekar um morgundaginn, treystum á tæknina sem er tilbúin og fjárfestum af fullum krafti í okkar eigin orku. Það er eina leiðin til að tryggja að hjól atvinnulífsins haldi áfram að snúast, flutningar gangi greiðlega og okkar daglega frelsi til að ferðast sé alltaf á okkar eigin forsendum. Höfundur er tæknistjóri hjá Orku náttúrunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bensín og olía Orkumál Orkuskipti Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar