Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar 16. apríl 2026 08:31 Við umræðu um fjármálaáætlun á Alþingi í gærdag fullyrti dómsmálaráðherra að formaður Afstöðu – réttindafélags kysi það helst að dómþolar afplánuðu einfaldlega ekki dóma sína. Þótt slíkar upphrópanir kunni að hljóma vel í hita leiksins í þingsal eru þær fjarri sanni. Stefna félagsins snýst þvert á móti um að mannúð sé höfð að leiðarljósi, að jafnræði ríki og að allir dómar hafi skýran tilgang. Fangelsisvist sem snýst eingöngu um að loka fólk inni og gleyma því þjónar hvorki réttlæti né öryggi samfélagsins. Dæmdir einstaklingar þurfa að fá tækifæri til menntunar og uppbyggilegs starfs á meðan á afplánun stendur svo að þeir komi betur út í samfélagið. Þekking og markviss endurhæfing eru öflugustu tækin til að draga úr endurteknum brotum. Rannsóknir sýna að slík nálgun skilar bæði auknu öryggi og minni kostnaði til lengri tíma. Að lokum er vert að benda á að það er enginn sérstakur bragur á því að dylgja um menn og málefni á vettvangi þar sem viðkomandi getur ekki svarað fyrir sig. Ræðustóll Alþingis ætti að nýtast í uppbyggilegar umræður um stefnumótun fremur en órökstuddar fullyrðingar. Vænlegra væri að stjórnvöld ættu í opnu og uppbyggilegu samtali við þá aðila sem þekkja kerfið og vilja gera það betra. Höfundur er skrifstofustjóri Afstöðu - réttindafélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fangelsismál Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Sjá meira
Við umræðu um fjármálaáætlun á Alþingi í gærdag fullyrti dómsmálaráðherra að formaður Afstöðu – réttindafélags kysi það helst að dómþolar afplánuðu einfaldlega ekki dóma sína. Þótt slíkar upphrópanir kunni að hljóma vel í hita leiksins í þingsal eru þær fjarri sanni. Stefna félagsins snýst þvert á móti um að mannúð sé höfð að leiðarljósi, að jafnræði ríki og að allir dómar hafi skýran tilgang. Fangelsisvist sem snýst eingöngu um að loka fólk inni og gleyma því þjónar hvorki réttlæti né öryggi samfélagsins. Dæmdir einstaklingar þurfa að fá tækifæri til menntunar og uppbyggilegs starfs á meðan á afplánun stendur svo að þeir komi betur út í samfélagið. Þekking og markviss endurhæfing eru öflugustu tækin til að draga úr endurteknum brotum. Rannsóknir sýna að slík nálgun skilar bæði auknu öryggi og minni kostnaði til lengri tíma. Að lokum er vert að benda á að það er enginn sérstakur bragur á því að dylgja um menn og málefni á vettvangi þar sem viðkomandi getur ekki svarað fyrir sig. Ræðustóll Alþingis ætti að nýtast í uppbyggilegar umræður um stefnumótun fremur en órökstuddar fullyrðingar. Vænlegra væri að stjórnvöld ættu í opnu og uppbyggilegu samtali við þá aðila sem þekkja kerfið og vilja gera það betra. Höfundur er skrifstofustjóri Afstöðu - réttindafélags.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar