Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar 14. apríl 2026 08:01 Nýlega kynntu stjórnvöld áfangaskýrslu um áfallaþol Íslands á grundvelli viðmiða Atlantshafsbandalagsins, þar sem lögð er áhersla á að efla og vernda mikilvæga innviði sem undirstöðu öryggis samfélagsins. Í breyttu öryggisumhverfi Evrópu hefur NATO lagt aukna áherslu á borgaralegt áfallaþol og Ísland hefur sett það markmið að verja allt að 1,5% af vergri landsframleiðslu til öryggis- og varnarmála fyrir árið 2035. Þar felast mikilvæg tækifæri til uppbyggingar innviða sem styrkja bæði þjóðaröryggi og byggðaþróun. Austurland er lykilhlekkur í öryggiskeðju landsins Seyðisfjörður hefur lengi gegnt lykilhlutverki í tengingum Íslands við Evrópu og gegndi mikilvægu hlutverki í síðari heimsstyrjöld. Enn í dag er fjörðurinn einn mikilvægasti aðkomustaður landsins frá Evrópu og þar liggur fjarskiptastrengurinn FARICE sem tengir Ísland við umheiminn. Þessi staða gerir svæðið að lykilhlekk í öryggiskeðju landsins. En þar er veikleiki sem þarf að bregðast við án tafar. Tryggja þarf samfellda öryggiskeðju frá hafi til lofts Vegurinn yfir Fjarðarheiði er einn erfiðasti fjallvegur landsins og lokast reglulega vegna veðurs, sem rýrir öryggi tenginga milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða. Það þýðir að tengingin milli lykilhafnar á Seyðisfirði og Egilsstaðaflugvallar er ótrygg stóran hluta ársins. Egilsstaðaflugvöllur gegnir lykilhlutverki sem varaflugvöllur fyrir millilandaflug og í neyðar- og öryggisskipulagi landsins. Með lengingu flugbrautar eykst geta flugvallarins til að taka á móti stærri flugvélum, þar á meðal herflugvélum. Fjarðarheiðargöng myndu tryggja örugga og samfellda tengingu milli hafnar og flugvallar allt árið um kring. Saman mynda þessi tvö verkefni samfellda öryggiskeðju frá hafi til lofts. Öryggisinnviðir styrkja samfélagið allt Ávinningurinn nær langt út fyrir öryggismál. Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar myndu styrkja atvinnulíf, lækka flutningskostnað, bæta aðgengi að þjónustu og skapa ný tækifæri til uppbyggingar á Austurlandi. Slík uppbygging styrkir landið allt. Samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 liggur nú fyrir Alþingi, en þar eru Fjarðarheiðargöng ekki sett í forgang og engar ráðstafanir gerðar varðandi lengingu flugbrautar á Egilsstöðum þrátt fyrir mikilvægi þessara innviða í neyðar- og öryggisskipulagi landsins. Á sama tíma er ljóst að aukið fjármagn er að koma til öryggis- og varnarmála, þar sem stefnt er að allt að 1,5% af vergri landsframleiðslu. Það skapar raunveruleg tækifæri til að ráðast í uppbyggingu sem lengi hafa verið nauðsynlegar. Tímabært er að setja Fjarðarheiðargöng og lengingu flugbrautar á Egilsstöðum í skýran forgang sem mikilvæga öryggisinnviði fyrir Ísland. Nú þarf að hraða undirbúningi og ráðast í framkvæmdir án tafar. Höfundur er formaður Byggðaráðs Múlaþings og varaþingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Harpa Svavarsdóttir Samgöngur Múlaþing Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar