Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson og Hlynur Áskelsson skrifa 13. apríl 2026 10:45 Viltu læra að stunda gott kynlíf? Baka píkuköku eða leira getnaðarlim? Þetta er hluti af námsefni þess fyrirbæris sem kallast Vika6 og er stýrt af því sem kallast Jafnréttisskóli Reykjavíkurborgar. „Vika6 er sjötta vika hvers árs. Í þeirri viku er starfsfólk grunnskóla, leikskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta aldursviðeigandi kynfræðslu.“ Svona hljóðar inngangur að Viku6 – kynjafræðsluvef Reykjavíkurborgar sem finna má á vefslóðinni: Sjá vef Viku6: https://reykjavik.is/jafnrettisskolinn/vika6 Þrátt fyrir að markmið Viku6 sé sett fram sem fræðsla og forvarnir, hefur athyglin beinst að spurningunni: Á hvaða fræðilega og gagnreynda grunni byggir kennsluefnið? Í kennslu barna og viðkvæmra hópa er algert grundvallaratriði að námsefni sé byggt á viðurkenndum fræðilegum aðferðum sem og ritrýndum rannsóknum. Þegar efni snýr að kynheilsu, hinseginfræðum, klámi eða kynferðislegri hegðun barna og unglinga skiptir þetta enn meira máli. Engar tilvísanir í rannsóknir Í umfjöllun Reykjavíkurborgar um Viku6 má finna kennsluhugmyndir, verkefni og fræðslupakka en þar er ekki að finna neinar tilvísanir í heimildir eða gagnreyndar rannsóknir sem liggja að baki efninu. Á sama tíma er sagt að vinnan „byggi á hugmyndum um alhliða kynfræðslu“, án þess að skýrt sé hvaða fræðilegu verk liggi þar að baki, hvaða sérfræðingar hafa lagt mat á innihaldið eða hvernig gæði þess hafa verið sannreynd og metin. Þegar um er að ræða viðkvæm málefni eins og mörk, samþykki, kynvitund eða kynferðislega hegðun barna er óljós fræðilegur grundvöllur alvarlegur ágalli. Fagleg vinnubrögð við gerð kennsluefnis fyrir börn krefjast þess að notaðar séu fræðilegar heimildir, efnið sé rannsakað með gagnreyndum aðferðum, og að fræðimenn með sérþekkingu meti efnið áður en það er innleitt. Það liggur fyrir að slíkt hafi ekki verið gert. Óskýrt faglegt eftirlit Í lýsingu á Viku6 kemur fram að unglingar kjósa þema hvers árs, og að starfsfólk skóla sé hvatt til að vinna með efnið á „fjölbreyttan hátt“. Að leyfa nemendum að velja þema getur verið lýðræðislegt og uppbyggilegt, en fyrir fræðslu á sviði kynheilbrigðis er slíkt verklag vandmeðfarið. Þótt unglingar geti haft skoðanir á því hvaða efni séu áhugaverð, þá er það fræðilegt mat og gagnreynd þekking, ekki vinsældir meðal unglinga, sem á að móta kennsluefni. Sama má segja um þá staðreynd að starfsfólk er hvatt til að velja sjálft hvaða fræðsluefni það notar úr pakkanum. Það þýðir að engin trygging er fyrir því að valið efni uppfylli markmið um fræðileg vinnubrögð, framsetningu eða uppeldislegt öryggi. Það er vert að benda á að í skólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum starfar fjöldinn allur af ófaglærðu fólki sem hefur enga þekkingu á því hvernig kenna skal umrætt efni. Enginn fræðilegur grunnur Vika6 felur í sér ýmiskonar kennsluefni yfir í fræðslumyndbönd um kynlíf, kynferðislega hegðun og því „hvernig á að stunda gott kynlíf“. Þessir námsþættir krefjast afar vandaðrar fræðilegrar nálgunar sem aðeins getur verið réttlætanleg ef hún er byggð á gagnreyndum rannsóknum, barnasálfræðilegri þekkingu og faglegum leiðbeiningum frá sérfræðingum í kynheilbrigði barna. Engar upplýsingar liggja fyrir um að slíkt sé til staðar eða að fræðileg nefnd hafi metið og samþykkt efnið. Óljós fræði Vika6 leggur oft sérstaka áherslu á hinseginfræði, kynvitund, líkamsímynd og aðgreiningu líffræðilegs kyns og kynvitundar. Ekki er ljóst hvaða fræðilegu verk um kynvitund er vísað í, hvaða rannsóknir styðja val á innleiðingu slíkra hugtaka, eða hvernig kennarar eiga að meta áhrif kennsluefnisins á börn á ólíkum þroskastigum. Hinseginfræði og kynjafræði eru fræðasvið á háskólastigi, en þegar slík hugmyndafræði er yfirfærð í kennslu fyrir börn, verður að liggja skýrt fyrir hvaða fræðilegar niðurstöður styðja við námsefnið og kennsluna. Það er ekki nóg að vísa lauslega í óljósar hugmyndir, það þarf að sýna fram á fræðilega ábyrgð og gagnreyndan vísindalegan þekkingargrunn. Niðurstaða Það er ljóst að umrædd Vika6 skortir ritrýndar, gagnreyndar og fræðilegar undirstöður. Kennsluefni af þessu tagi þarf að byggja á vönduðum rannsóknum, skýrum fræðilegum tilvísunum, faglegu eftirliti og samfélagslegri ábyrgð gagnvart börnum. Reykjavíkurborg er ekki að sinna þeirri faglegu skyldu með Viku6. Námsefnið, framsetningin og fyrirlögnin fær algjöra falleinkunn. Stefna Okkar Borgar er skýr Vika6 verður aflögð sem og Jafnréttisskóli Reykjavíkur Öllum samningum um hinsegin- og kynjafræðslu í leik- og grunnskólum, íþróttafélögum, félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum verður sagt upp og henni hætt Veljum gleði og von – Veljum Okkar Borg – Veljum X – R Höfundar eru frambjóðendur Okkar Borg X – R. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar