Að setja puttana í eyrun og kalla það stefnu Óðinn Freyr Baldursson skrifar 9. apríl 2026 08:46 Af hverju er verið að kjósa? Fyrir stuttu var ég spurður: “Af hverju þurfum við að kjósa um samningaviðræður? Þetta er eins og að þurfa að fá leyfi frá vinum þínum til að fara í atvinnuviðtal.” Í fyrstu fannst mér þetta skrýtin spurning. En svo hugsaði ég betur út í hana. Af hverju erum við að kjósa um að hefja viðræður? Er eitthvað í lögum sem krefst þess? Ég fór að skoða málið - eins og maður gerir þegar svona spurningar festast í hausnum. Svarið sem ég fann var fremur einfalt: nei. Það er ekkert í lögum sem segir að það þurfi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu til að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið. Þá vaknar eðlilega spurningin: af hverju er þá verið að kjósa? Svarið er ekki lagalegt. Það er pólitískt. Áróður og raunveruleiki Því er stundum haldið fram að með þessu sé verið að lauma Íslandi inn í ESB. En það stenst ekki skoðun. Í langflestum tilfellum ákveða ríkisstjórnir eða þjóðþing ríkja að hefja aðildarviðræður við ESB, að þeim loknum er aðildarsamningur samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við erum að ganga lengra og gefa íslensku þjóðinni kost á því að taka þátt með beinum hætti á báðum stigum. Ísland er undantekning Hér á landi er verið að stíga auka skref í þessu ferli - ekki vegna þess að það er lögbundið, heldur vegna þess að vilji er til staðar til að hafa ferlið eins lýðræðislegt og mögulegt er. Að færa ákvörðunina úr höndum ríkisstjórnarinnar yfir í hendur almennings strax í upphafi, áður en samningur liggur fyrir. Að treysta þjóðinni. Það er því ekki verið að laumast með landið inn í Evrópusambandið. Þetta er ekki spurning um lög. Heldur spurning um traust og umboð. Viðræður eru ekki aðild Það er líka mikilvægt að átta sig á einu: samningaviðræður eru ekki aðild. Þær eru einfaldlega leið til að skilgreina vel hagsmuni Íslands og samningsmarkmið, fá staðreyndir á borðið og sjá hvað raunverulega er í boði. Enginn bindur Ísland til neins með því að hefja viðræður. Það má líkja þessu við atvinnuviðtal: þú ferð í viðtal, ræðir kjör, laun og skilyrði. Síðan tekur þú ákvörðun hvort þú viljir starfið ef það er í boði. Að hafna viðræðum er því í raun að hafna upplýsingum. Að segja: “Við viljum ekki einu sinni sjá hvað er í boði.” Það er ekki sterk staða. Með því lokum við á möguleika á því að vita hvað aðild gæti fært okkur. Hvað gerist ef við segjum nei? Það er líka mikilvægt að horfa á hvað við missum af með því að segja nei. Ef við höfnum viðræðum erum við ekki bara að segja nei við ESB. Við erum að segja nei við því að sjá samninginn. Nei við því að vita hvað raunverulega stendur til boða. Og það þýðir eitt: við setjum málið á ís. Ekki í nokkra mánuði, heldur mörg ár eða jafnvel áratugi. Saga Íslands sýnir að svona stór mál fara ekki strax aftur á dagskrá þegar þeim er hafnað. Þau festast og umræðan deyr. Næsta kynslóð þarf síðan að fara í gegn um sama ferli og við erum í núna. Við erum því ekki bara að taka ákvörðun fyrir okkur sjálf í dag, heldur líka fyrir framtíðina. Að velja þekkingu Að kjósa um viðræður er ekki veikleiki. Það er styrkleiki. Það er ákvörðun um að fá upplýsingar áður en maður tekur afstöðu, að velja þekkingu fram yfir getgátur. Ef við fáum að sjá samninginn er hægt að hafna honum með sterkari rökum en einnig hægt að samþykkja hann af meiri sannfæringu. Ef þú ert fullviss um hvað er í boði, ætti það þá ekki að standast endurskoðun? Að njóta ávinningsins sjálfur Fyrir suma, og þá sérstaklega okkur unga fólkið, þá snýst þetta um fleira. Ég vil fá að njóta þeirra tækifæra sem kunna að felast í aðild að Evrópusambandinu. Ég vil ekki vera í þeirri stöðu að eyða áratugum í að berjast fyrir breytingum sem einungis framtíðarkynslóðir fá að njóta. Ég vil fá að taka þátt í þeim ávinningi sjálfur, ekki bara vonast til að næsta kynslóð uppskeri því sem við sáum. Ég veit ekki með ykkur hin, en ég efast ekki um að flestir vilji fá að njóta ágóðans af eigin uppskeru. Höfundur er formaður Ungra Evrópusinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Alræmdur faðir stígur fram Atli Heiðar Gunnlaugsson Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson Skoðun Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Nágrannakærleikur í arkitektúr samanber náungakærleikur Halldóra Arnardóttir Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. Skoðun Að kjósa tækifæri, eða hafna því Sigurjón Njarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Að skrúfa í sundur flugvél á flugi Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Auðvaldið, popúlismi, hestaskeifan & ESB Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Þarf Ísland að vera dýrasta land í heimi? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hér kemur staðreynd: það er ekki til neinn Evrópuher Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Nágrannakærleikur í arkitektúr samanber náungakærleikur Halldóra Arnardóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Að kjósa tækifæri, eða hafna því Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gat þess ekki að við myndum borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson. skrifar Skoðun Friður á Segulfirði Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Vindorkan – ný fjármálabóla í ríkjum ESB? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Skipulag, ábyrgð og meirihlutamyndun Marta Rut Ólafsdóttir,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Enginn kaus Bjarna eða Brynjar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Galin skattheimta ríkisstjórnarinnar Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Fyrst upplýsingar og stöðugleiki, svo má kjósa Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Króatar og ávextir ESB-aðildar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Þegar hlutverkin deyja og sjálfið vaknar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Dagur og Diljá - dómur er fallinn Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Styrkur í fjárfestingu í sjávarútvegi Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum er ekki háð Evrópusambandsaðild Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hundrað milljarða loforð Dags Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fólkið fær að ráða för Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert er virði hins ómetanlega? - Listir varðveita mennskuna. Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Að skapa heilrænt samfélag einstaklinga frá mörgum löndum jarðar Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Alþjóðasamstarf í umhverfismálum: ESB sem drifkraftur lausna Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Það er gott að vera kristinn, en slæmt þegar fáfræðin fær að ráða för María Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stóreflum námsefnisgerð í íslenska skólakerfinu Magnús Þór Jónsson,Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Líffræðileg fjölbreytni og sveitarfélög Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Skúli Skúlason skrifar
Skoðun Nokkur orð um einföldun eftirlits Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar