Tala þvert á það sem ESB sjálft segir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 9. apríl 2026 06:32 Hvers vegna tala hérlendir Evrópusambandssinnar þvert á það sem Evrópusambandið segir sjálft að felist í umsóknarferlinu að því? Eins og til dæmis Þorvaldur Ingi Jónsson, stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar, í grein á Vísi í vikunni þar sem hann hélt því fram að ekki þyrfti að koma til aðlögunar að sambandinu samhliða viðræðunum sem eru hluti ferlisins. Raunar er ekki nóg að það gangi þvert á það sem Evrópusambandið segir heldur einnig utanríkisráðuneytið. Fram kemur þannig skýrt í gögnum Evrópusambandsins að viðræðurnar gangi fyrst og fremst út á aðlögun umsóknarríkis samhliða þeim. Til að mynda víða á vefsíðu þess: „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Fullyrðing Þorvaldar um að annað eigi við um Ísland vegna EES-samningsins og að aðlögun yrði aðeins eftir samþykkt samnings stenzt ekki skoðun. Þannig segir að sama skapi í gögnum Evrópusambandsins vegna umsóknarinnar sem nú á að endurvekja: “Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Hins vegar er ekki nóg með að þetta komi fram í gögnum Evrópusambandsins heldur á það einnig við um greinargerðina með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sjálfs flokksformanns Þorvaldar, um fyrirhugað þjóðaratkvæði. „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Við þetta má bæta að fram kemur í gögnum Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands að mikið vantaði upp á aðlögun landsins að sambandinu. Ekki sízt þegar kæmi að umfangi hins opinbera (bákninu) hér á landi. „Heilt á litið er stjórnsýslan lítil. […] Ísland mun þurfa að byggja upp getu stjórnsýslunnar til þess að taka upp, þýða og innleiða löggjöf Evrópusambandsins og koma á laggirnar öllum þeim nauðsynlegu innviðum sem vera innan sambandsins krefst.“ Með öðrum orðum er já í þjóðaratkvæðinu ekki ávísun á einfaldar viðræður, eins og Þorvaldur og aðrir harðir talsmenn inngöngu í Evrópusmabandið halda fram þvert á orð sambandsins sjálfs, heldur það að farið verði í áralangt umsóknarferli sem snýst um aðlögun að öllu regluverki og stjórnsýslu þess áður en þjóðin fengi samning til að kjósa um. Tja, nema þeir telji að Evrópusambandið sé að ljúga sem varla eru þá meðmæli með inngöngu í það ofan á annað. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar