Við erum Vinstrið Sanna Magdalena Mörtudóttir, Líf Magneudóttir, Stefán Pálsson, Ásta Þórdís Skjalddal, Arna Magnea Danks og Finnur Ricart Andrason skrifa 26. mars 2026 17:48 Það er frábær tilfinning að geta sagt: Við erum Vinstrið! Við sem það segjum erum fjölbreyttur hópur fólks sem trúir því frá hjartans rótum að samfélag eigi að vera okkar allra; að við eigum öll að búa við raunverulegt öryggi og að framtíðin eigi ekki að ráðast af því hvar við fæðumst, hvað við eigum eða hvað við eignumst. Við erum hópur fólks sem trúir því að félagshyggja og baráttan fyrir efnahagslegu réttlæti og umhverfisvernd sé rétta leiðin að sanngjörnu og réttlátu samfélagi. Samstaðan skilar okkur velsæld og velfarnaði Samstaða snýst ekki um að við þurfum öll að vera sammála um allt. Hún snýst um að við erum sammála um að leggja áherslu á að það sem sameinar okkur og að það sé meira og stærra en það sem skilur okkur að. Við erum sameinuð um að vilja tryggja samfélag þar sem jöfnuður ríkir og þar sem: Velferðarkerfið er sterkt og aðgengilegt. Mannréttindi eru virt. Vinnandi fólk fær hlutdeild í verðmætunum sem það skapar. Fólk á öruggt heimili. Eldra fólk nýtur efri áranna. Öll börn njóta endurgjaldslausrar menntunar og frístunda. Innflytjendur njóta sömu réttinda og allir aðrir. Náttúran nýtur vafans og hefur sjálfstæðan tilverurétt. Við getum öll búið og lifað frjáls og í friði. Verkefnin framundan snerta okkur öll Við stöndum frammi fyrir samfélagslegum áskorunum sem kalla á skýra sýn og samstöðu. Meðal þeirra eru fjölgun húsnæðis á samfélagslegum grunni, aukinn jöfnuður og að draga saman tekjubilið, að vinna af krafti að kveða niður loftslagsbreytingar af mannavöldum og endurheimta vistkerfi og síðast en ekki síst að auka öryggi fólks á hinum ýmsu sviðum tilverunnar. Slíkt verður einungis leyst á félagslegum forsendum og með aðkomu Vinstrisins.Við viljum takast á við allar þessar áskoranir í sameiningu og samvinnu þar sem hagsmunir fólks eru ofar hagsmunum flokka og merkimiða. Sameinað Vinstrið hefur meiri slagkraft til að vinna að hugsjónum félagshyggjunnar um réttlæti og samábyrgð. Sameinað Vinstrið hefur raunveruleg áhrif. Við í Vinstrinu hlökkum til komandi vikna fram að kosningum. Við viljum heyra í borgarbúum um hvernig borg þeir vilja búa í. Við sjáumst sameinuð í baráttunni fyrir borgina sem við viljum og borgina sem þarf á okkur öllum að halda. Höfundar skipa efstu sex sæti Vinstrisins í Reykjavík; Sanna Magdalena Mörtudóttir, Líf Magneudóttir, Stefán Pálsson, Ásta Þórdís Skjalddal, Arna Magnea Danks og Finnur Ricart Andrason, Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinstrið Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar