Léttum á vegunum og eflum strandsiglingar Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar 20. mars 2026 09:01 Þungaflutningar um þjóðvegi landsins hafa aukist gífurlega undanfarin 20 ár með tilheyrandi álagi á vegakerfið sem víða er ekki að bera slíka flutninga. Þarna eru á ferðinni fiskflutningar sem aukist hafa mikið með fiskeldinu ásamt vöruflutningum um land allt. Þessir flutningar fóru áður aðallega sjóleiðina þegar strandsiglingar voru öflugur og raunhæfur valkostur. Fyrrverandi ráðherrar og þingmenn hafa talað fyrir eflingu strandsiglinga sem skilað hefur tímabundnum árangri. Nú hefur starfshópur skipaður af Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra skilað niðurstöðum með tillögum um eflingu Strandsiglinga. Ég bind miklar vonir við þessar tillögur bæði út frá umhverfissjónarmiðum og hagkvæmari flutningum sem gætu skilað sér í lægra vöruverði á landsbyggðinni. Þá gætu þessar tillögur dregið úr viðhaldi vega og þar með sparaði ríkinu mikla fjármuni. Ég nefni hér nokkrar áhugaverðar tillögur starfshópsins sem vonandi verður unnið með í framhaldinu. Það er þjóðþrifamál að koma á öflugum og hagkvæmum strandsiglingum. Þjóðvegirnir þola ekki til lengdar þessa stórauknu þungaflutninga. Þetta eru helstu niðurstöður starfshópsins varðandi strandsiglingar og tillögur til úrbóta: 1. Öll kolefnisgjöld af reglubundnum strandsiglingum verði lögð af þar til komnar eru raunhæfar lausnir til orkuskipta í siglingum stærri skipa. Nýtt fyrirkomulag endurgreiðslu hluta kolefnisgjalda dugir að mati starfshópsins ekki til að efla strandsiglingar. 2. Stjórnvöld beiti sér fyrir því að skip í reglubundnum strandsiglingum hér við land verði utan ETS kerfisins með sama hætti og innanlandsflug er utan þess. 3. Vitagjöld verði felld niður af skipum sem bjóða upp á reglubundnar strandsiglingar. 4. Hafnayfirvöld leysi skip sem eru í reglubundnum strandsiglingum frá hafnsöguskyldu og gjaldakafli hafnalaga verði endurskoðaður með það að markmiði að gera höfnunum mögulegt að styðja betur við þróun strandflutninga.5. Vegagerðin hraði mati á kostnaði og ábata vegna landflutninga við þjóðvegakerfið og því verði lokið eigi síðar en árið 2027. Þær upplýsingar verði nýttar við stefnumótun stjórnvalda varðandi vegakerfið, losun gróðurhúsalofttegunda og umferðaröryggi. 6. Árvekni stjórnvalda í málefnum strandflutninga verði aukin með formlegri samvinnu Vegagerðarinnar og Hafnasambands Íslands undir forystu innviðaráðuneytisins í samráði við hagaðila, þar sem fylgst er með þróun vöruflutninga og gerðar tillögur um viðbrögð stjórnvalda eftir því sem ástæða er til og tök eru á. Slíkt samstarf mun skapa vettvang til að meta rekstrarforsendur, innviði, regluverk og markaðsforsendur strandsiglinga. 7. Tekið verði til skoðunar að færa inn sem aðgerð í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum að efla strandflutninga. Við í stjórnarmeirihlutanum ætlum að ráðast kerfisbundið í þessar aðgerðir. Gera strandsiglingar að fýsilegum kosti til að minnka álag þungaflutninga á vegakerfið sem slíta vegunum mest. Innviðaráðuneytið getur framkvæmt sumar þessar tillagna en aðrar krefjast aðgerða annarra ráðuneyta. Ég veit að innviðaráðherra er mjög áfram um að berjast fyrir undanþágu strandsiglinga frá ETS kerfinu. Enda eru innanlands siglingar í Evrópuríkjum (t.a.m. á fljótum) undanþegin ETS. Það ríkir því um ákveðið ósamræmi varðandi stöðu mála hér. Vonandi verður hægt að koma á öflugum strandsiglingum á sem fyrst. Þær eru án nokkurs vafa þjóðhagslega hagkvæmar. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lilja Rafney Magnúsdóttir Skipaflutningar Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira