Sérlausnir – ekki undanþágur Andrés Pétursson skrifar 18. mars 2026 10:33 Umræðan um aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur of lengi verið á villigötum. Hún festist í röngum hugtökum og hálfsannleika, þar sem látið er að því liggja að Ísland standi frammi fyrir einföldu vali: að taka allt upp óbreytt eða fá ekki neitt. Það er einfaldlega rangt. Við þurfum sérlausnir – ekki undanþágur. Munurinn skiptir öllu máli. Svokallað opt-out þýðir að ríki sleppir heilum málaflokkum í regluverki ESB. Danir fengu slíkar undanþágur á sínum tíma, til dæmis frá evrunni. En þetta kerfi er lokað. Ný aðildarríki fá ekki slíkar undanþágur – punktur. Það sem er hins vegar í boði eru sérlausnir innan regluverksins. Þær eru ekki veik málamiðlun heldur markviss pólitísk niðurstaða sem tekur mið af sérstöðu ríkja – og geta verið varanlegar. Þetta hafa önnur ríki nýtt sér af fullum þunga. Danir tryggðu sér takmarkanir á fasteignakaupum útlendinga. Malta fékk vernd fyrir sína landhelgi og fasteignamarkað. Svíar og Finnar gengu enn lengra og bjuggu einfaldlega til nýtt hugtak – „heimskautalandbúnað“ – til að verja eigin hagsmuni innan sameiginlegrar stefnu. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Þetta var niðurstaða harðra samningaviðræðna þar sem þjóðirnar vissu nákvæmlega hvað þær vildu. Þegar kemur að Íslandi er kjarninn augljós: sjávarútvegurinn. Hér er um að ræða grunnstoð í efnahag þjóðarinnar, byggða á sérstöðu sem á sér enga hliðstæðu innan ESB. Ísland er eina ríkið sem hefur bæði víðfeðma landhelgi og svo afgerandi hagsmuni af nýtingu hennar. Að halda því fram að engin sérlausn sé möguleg er annað hvort misskilningur eða skortur á pólitískum vilja. Spurningin er því ekki hvort sérlausnir séu í boði – þær eru það. Spurningin er hvort Ísland ætlar að mæta til samningaborðsins með skýra stefnu og sjálfstraust, eða gefa sér fyrirfram að ekkert sé hægt. Ef umræðan á að vera eitthvað meira en hræðsluáróður eða óskhyggja, verða þessi grundvallaratriði að vera á hreinu. Sérlausnir eru ekki veikleiki. Þær eru tækið sem þjóðir nota til að verja eigin hagsmuni. Ísland getur mætt með sterka stöðu við samningsborðið með þetta að leiðarljósi. Höfundur er með M.Sc. gráðu í Evrópufræðum frá London School of Economics og hefur starfað við ýmis evrópumál í yfir 30 ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Andrés Pétursson Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar