Fjarnámið byggir brýr Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar 18. mars 2026 09:03 Í norrænni goðafræði segir frá regnbogabrúnni Bifröst sem tengir heim goðanna við heim manna. Það fjarnám sem Háskólinn á Bifröst veitir gegnir sama hlutverki, að byggja brýr – milli byggðarlaga, milli landshluta og í raun milli landa – og opna þar með hlið sem áður voru lokuð. Háskólinn á Bifröst er í dag leiðandi í fjarnámi á Íslandi, enda hefur hann löngum brotið upp hefðir, fjárfest í nýjungum og sett nemandann í forgrunn. Án fjarnámsins hefðu mörg þeirra sem stunda nám við Háskólann á Bifröst eða hafa verið að útskrifast þaðan á liðnum árum ekki átt þess kost að flytja úr heimabyggð, yfirgefa fjölskyldu eða starf til þess að afla sér menntunar. Vegna fjarnámsins geta þau hins vegar lært – heima, í vinnunni, á ferðinni – hvar sem þau eru stödd í sínu lífi hverju sinni og á þeim tíma sólarhringsins sem þeim hentar. Sjálfstæði og frelsi með fjarnámi Fjarnámið við Háskólann á Bifröst krefst skipulagningar og tímastjórnunar. Það gerir kröfu til kennara að undirbúa vel þær sjö vikur sem hver námslota tekur – að leggja inn fyrirlestrana, raða niður verkefnum sem uppfylla kröfur skólans um fjölþætt námsmat með einstaklings- og hópverkefnum og veita jafnóðum persónulega endurgjöf, ýmist í jafningjamati eða kennslumati. Þægindin fyrir nemandann felast fyrst og fremst í því að geta sjálfur ráðið tíma sínum, hvenær sólarhrings hlustað er á fyrirlestrana og unnið í verkefnunum áður en kemur að endanlegu námsmati. Fjarnám er stafræn viðvera, umræðutímar, einstaklings- og hópaverkefni. Það gerir kröfu til bæði nemenda og kennara – en innan skipulagsins upplifir nemandinn engu að síður sjálfstæði og frelsi með tíma sinn, enda studdur af stöðugri endurgjöf og aðgengilegu vefumhverfi. Að mennta fólk til áhrifa og ábyrgðar Háskólinn á Bifröst hefur helgað sig því hlutverki að veita fólki háskólamenntun til áhrifa og ábyrgðar. Háskólinn hefur verið á mikilli siglingu síðustu ár, hefur stækkað og aukið umsvif sín svo um munar. Við bjóðum upp á samsetningu náms og námslínur sem hafa algjöra sérstöðu í háskólanámi hérlendis innan þeirra þriggja fræðasviða sem skólinn býður upp á í Félagsvísindadeild, Lagadeild og Viðskiptadeild. Enginn íslenskur háskóli hefur náð sambærilegri færni í fjarnámi. Gæðamál skólans hafa tekið stórstígum framförum með nýbreytni og nýsköpun í námi, fyrir utan þá miklu fjölgun nemenda sem orðið hefur eftir að skólagjöld voru felld niður. Með það góða mannval sem skólinn hefur á að skipa höfum við allar forsendur til þess að halda þeirri göngu áfram, með þá sameiginlegu hugsjón sem stjórnendur og starfsfólk bera fyrir brjósti. Opni evrópski háskólinn Hluti af þróun skólans hefur verið að færa út kvíar með samstarfi við erlenda háskóla í átt að alþjóðlegu samstarfi háskóla. Nefna má þátttöku okkar í evrópska háskólanetinu OpenEU sem opnar mikla möguleika fyrir háskólanema um alla Evrópu. OpenEU felur í sér samstarf evrópskra háskóla sem allir sérhæfa sig í fjarnámi líkt og Háskólinn á Bifröst. Hugsjónin á bak við þetta samstarf er að nýta fjarnámsleiðir til þess gera háskólamenntun aðgengilega milli landa með samstarfi háskólanna. Samfélagsáhrifin Agað og krefjandi fjarnám getur kostað bæði erfiði og tíma, en uppskeran er þess virði. Að geta horft fram á veginn, sótt ný tækifæri sem menntunin veitir og – þar sem það á við – flutt þau með sér á heimaslóðir. Vegna fjarnámsins geta fjölmörg þeirra sem búa á landsbyggðinni nú haft áhrif í sínu nærumhverfi með nýrri þekkingu og styrkari stöðu. Þannig eru samfélagsáhrif fjarnámsins við Háskólann á Bifröst. Það opnar gáttir. Það breytir lífshorfum. Það styrkir samfélög. Höfundur er rektor Háskólans á Bifröst. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Háskólar Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar