Þegar refsing einstaklings, verður refsing fyrir alla fjölskylduna Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir, Harpa Halldórsdóttir og Jenný Magnúsdóttir skrifa 16. mars 2026 13:30 Áhrif fangelsisvistar ná langt út fyrir fangelsismúrana. Þegar einn einstaklingur afplánar refsingu, breytist líf allra í fjölskyldunni. „Er síminn hringdi þá svaf borgin. Ég sat sem lamaður við þá frétt. Ég fylltist reiði – síðan kom sorgin. Sumar fréttir hljóma aldrei rétt.“ (syndir feðranna-Bubbi Morthens) Svona lýsir Bubbi Morthens augnablikinu þegar foreldri fær þær fréttir að sonur sé ákærður fyrir alvarlegt brot. Í einni svipan getur lífið breyst. En það er ekki aðeins sá sem fer í fangelsi sem finnur fyrir afleiðingunum. Fangelsisvist eins verður oft áfall fyrir heila fjölskyldu. Foreldrar standa frammi fyrir skömm og sjálfsásökunum. Makar þurfa að takast á við breytt heimilislíf, fjárhagsáhyggjur og óvissu. Systkini geta upplifað missi, reiði og einangrun. Börn bera stundum leyndarmál sem þau skilja ekki til fulls eða þora ekki að ræða. Þegar nákominn einstaklingur er handtekinn, bíður dóms, fer í afplánun eða losnar úr fangelsi getur allt lífið tekið breytingum. Tilfinningaskalinn er breiður, áfall, skömm, sorg, reiði og stundum jafnvel léttir. Allar þessar tilfinningar þurfa rými og úrvinnslu. Börn sem eiga foreldri eða annan nákominn í fangelsi geta átt erfitt með að ræða stöðuna við aðra. Stundum er reynt að hlífa þeim við sannleikanum, en börn skynja gjarnan að eitthvað sé ekki eins og það á að vera. Skömmin getur haft áhrif á líðan þeirra, sjálfsmynd og samskipti. Hjá mökum getur fangelsisvist raskað öryggi og jafnvægi fjölskyldunnar. Tekjur geta fallið niður á meðan útgjöldin haldast, og álagið eykst. Foreldrar fullorðinna barna sem afplána refsingu glíma oft við djúpa sorg, sektarkennd og spurningar um eigið hlutverk. Þrátt fyrir víðtæk áhrif á líf fjölskyldna hefur sérhæfður stuðningur fyrir aðstandendur fanga lengi verið takmarkaður hér á landi. Bjargráð er verkefni sem hófst í ágúst 2022. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið styrkir Biskupsstofu til að veita aðstandendum fanga faglega aðstoð. Þjóðkirkjan/ Biskupsstofa útvegar húsnæði og faglegt starfsumhverfi. Húsnæðinu deilir Bjargráð (FAFF) með Fjölskyldu- og sálgæsluþjónustu kirkjunnar sem staðsett er í Háteigskirkju. þjónustan stendur öllum til boða, óháð trú eða lífsýn. Bjargráð er faglegt úrræði sem veitir aðstoð fyrir fjölskyldur fanga, þar sem hugtakið fjölskylda er skilgreint vítt. Fjölskylda getur verið hver sá sem upplifir sig tengdan fanganum. Markmiðið er að styðja þá sem standa utan fangelsisins en lifa engu að síður með afleiðingum afplánunar. Þegar einstaklingur afplánar refsingu er samfélagið að framfylgja dómi. En refsingin snertir oft fleiri. Kannski þekkir þú einhvern sem lifir með þessari reynslu. Kannski veist þú það ekki einu sinni. Fangelsisvist snertir fleiri en við gerum okkur grein fyrir, og alltof oft er þögnin þyngri en dómurinn sjálfur. Þess vegna skiptir máli að vita að stuðningur er til. Að einhver hlusti. Að einhver skilji. Samfélag sem vill stuðla að endurhæfingu, farsæld og velferð barna getur ekki litið fram hjá stöðu fjölskyldna fanga. Stuðningur við aðstandendur er ekki aðeins mannúðarmál, hann er einnig hluti af forvörnum og sterkari samfélagsgerð. Því þegar refsing eins verður að refsingu fyrir heila fjölskyldu má fjölskyldan ekki gleymast. „Sonur minn er ekki illur maður engin sál veit sinn lífsins veg. Sem lítill drengur var hann góður - glaður nú græt ég hans örlög - hryggileg. (Syndir feðranna, Bubbi Morthens)“ Höfundar eru fjölskyldufræðingar hjá Bjargráði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fangelsismál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar