Orkudrottningar Orkueyjunnar Ásta Olga Magnúsdóttir skrifar 12. mars 2026 10:48 Á ársfundi Landsvirkjunar 2026 voru kynsystur mínar og jafnöldrur, fluggáfaðar í fallegum fötum, í brúnni. Þær fluttu boðskapinn, orð fyrir orð, hvert einasta orð borið fram skýrt og með þunga. Svipaður hrynjandi var í gegnum allt prógrammið eins og það hafi verið samstillt í stafrænu hljóðblöndunartæki. En þetta var alltsaman alvöru, ég þekki þessar konur sumar og þær eru ekta. Hugtakið samkeppnishæfni var notað eins og listræn klifun, það skyldi enginn fara frá borði án þess að vera umhugað um samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavísu. Orkuöryggi á orkueyjunni kom einnig fram en lítið var talað um orkuöryggi fyrir almenning eða forgangsröðun orkunnar. Það var þó talað um samfélagsmódelið sem við viljum jú ekki fórna, velferðasamfélagið okkar, sem allir geta verið sammála um að þurfi að vernda en það veltur jú allt á samkeppnishæfni orkunnar sem mun sporna við hnignun evrópskrar framleiðslugetu. Þá komu lokaorðin, um samhljóminn í samfélaginu, það ríkir samstaða og jákvæðni gagnvart Landsvirkjun samkvæmt könnunum síðasta árs. En það virðist lítið hafa verið spurt í þessum könnunum um álit almennings til einstakra verkefna eða útí framtíðasýnina sem kynnt er þessa dagana. Náttúran var heldur ekki spurð neins. Á ársfundinum í ár var ekki minnst á vistkerfi og hnignun líffræðilegs fjölbreytileika, sem er helsta ógn við heilbrigði jarðar og þar með velferðasamfélagsins. Loftslagsmálin voru lítið nefnd en á síðustu árum voru þau mikið rædd til að færa rök fyrir orkuskiptunum. Árið 2026 var náttúran nær einungis nefnd í samhengi við ferðaþjónustuna. Því þessar kynningar voru jú fyrir fólk með fyrirtæki en ekki fugla með vængi. Vindmyllugarðar og gagnaver munu spretta upp hér á landi. Hvammsvirkjun verður byggð af því að þjóðin öll og nærsamfélalgið vilja það. Eða hvað? Höfundur er náttúruverndarsinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Á ársfundi Landsvirkjunar 2026 voru kynsystur mínar og jafnöldrur, fluggáfaðar í fallegum fötum, í brúnni. Þær fluttu boðskapinn, orð fyrir orð, hvert einasta orð borið fram skýrt og með þunga. Svipaður hrynjandi var í gegnum allt prógrammið eins og það hafi verið samstillt í stafrænu hljóðblöndunartæki. En þetta var alltsaman alvöru, ég þekki þessar konur sumar og þær eru ekta. Hugtakið samkeppnishæfni var notað eins og listræn klifun, það skyldi enginn fara frá borði án þess að vera umhugað um samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavísu. Orkuöryggi á orkueyjunni kom einnig fram en lítið var talað um orkuöryggi fyrir almenning eða forgangsröðun orkunnar. Það var þó talað um samfélagsmódelið sem við viljum jú ekki fórna, velferðasamfélagið okkar, sem allir geta verið sammála um að þurfi að vernda en það veltur jú allt á samkeppnishæfni orkunnar sem mun sporna við hnignun evrópskrar framleiðslugetu. Þá komu lokaorðin, um samhljóminn í samfélaginu, það ríkir samstaða og jákvæðni gagnvart Landsvirkjun samkvæmt könnunum síðasta árs. En það virðist lítið hafa verið spurt í þessum könnunum um álit almennings til einstakra verkefna eða útí framtíðasýnina sem kynnt er þessa dagana. Náttúran var heldur ekki spurð neins. Á ársfundinum í ár var ekki minnst á vistkerfi og hnignun líffræðilegs fjölbreytileika, sem er helsta ógn við heilbrigði jarðar og þar með velferðasamfélagsins. Loftslagsmálin voru lítið nefnd en á síðustu árum voru þau mikið rædd til að færa rök fyrir orkuskiptunum. Árið 2026 var náttúran nær einungis nefnd í samhengi við ferðaþjónustuna. Því þessar kynningar voru jú fyrir fólk með fyrirtæki en ekki fugla með vængi. Vindmyllugarðar og gagnaver munu spretta upp hér á landi. Hvammsvirkjun verður byggð af því að þjóðin öll og nærsamfélalgið vilja það. Eða hvað? Höfundur er náttúruverndarsinni.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar