Bjútíbox og gyllt dömubindi Berglind Guðmundsdóttir skrifar 11. mars 2026 17:31 Mér finnst gott að við séum ósammála. Reyndar finnst mér það nauðsynlegt. Eitt af því sem ég hræðist mest er að vera umkringd fólki sem er sammála mér í einu og öllu. Ef maður er í þannig hópi veit ég að einhver er ekki að segja sína skoðun. Samfélag þar sem allir eru sammála er nefnilega ekki heilbrigt samfélag. Ég hef oft talað um mikilvægi þess að allar raddir fái að heyrast. Við höfum öll hlutverk í þessum ágæta heimi og að mínu mati er fátt mikilvægara en að vera heil og sönn og fylgja innsæi sínu. Það hef ég reynt að gera. Hluti af því að vera ólík og hafa ólíkar skoðanir felst líka í því að bera virðingu fyrir skoðunum annarra. En í íslenskri umræðu, sérstaklega eftir tilkomu samfélagsmiðla, hefur færst í aukana að fólk tali ekki nægilega fallega hvert til annars. Í stað þess að ræða málefnið er farið að hnýta í manninn. Þegar það gerist finnst mér eins og við höfum öll tapað. Undanfarið hefur kyndingin í samfélaginu verið í hámarki. Fólk skiptist í fylkingar, já eða nei. Að vissu marki skil ég vel að fólk hafi sterkar skoðanir. Það er eðlilegt í lýðræðissamfélagi. En ég skil ekki þessa reiði. Þessa heift. Sterkar skoðanir eru ekki vandamálið. Skortur á virðingu er það. Kannski er það einmitt prófsteinninn á góða umræðu. En stundum velti ég fyrir mér hvort við séum farin að tala meira um fólk en málefni. Hvort við séum farin að setja fólk í box, jafnvel bjútíbox, í stað þess að hlusta á reynslu þess og rök. Það er auðvelt að gera lítið úr fólki sem við erum ósammála. Það krefst meiri styrks að hlusta. Kannski er stærsta áskorunin yfir komandi mánuði ekki hvort svarið sé já eða nei, heldur hvort okkur takist að ræða þessi mál af virðingu, án þess að gera lítið úr fólki eða reynslu þess. Því þegar umræðan verður þannig að við tölum niður til annarra, þá höfum við öll tapað. Ég veit að ég hef ekki alltaf rétt fyrir mér. Enginn okkar hefur það. En ég reyni að hlusta, reyni að skilja og reyni að leyfa fólki að hafa sína skoðun þó hún sé ekki sú sama og mín. Og þannig samfélagi vil ég búa í. Höfundur er hjúkrunarfræðingur, greiðsluþreyttur lántakandi og í Viðreisn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar