Í minningu barna sem hefðu þurft stærra þorp Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar 11. mars 2026 11:02 Við tölum stundum um að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Enda þurfum við foreldrar jafnan stoð frá fleiri manneskjum þegar við erum að koma börnum okkar til manns. Því við getum þetta aldrei alein. Sum börn og foreldrar þeirra þurfa á stærra þorpi að halda en önnur. Mér verður hugsað til barnanna: Ölmu, Nóa, Geirs, Maríu, Adrían, Þorleifs, Úlfars, Kristjáns, Bergs, Perlu, Hávarðs, Fannars, Sölva, Thelmu, Baldurs, Kristófers og Jóhanns. Sem hafa, ásamt öðrum börnum, dáið úr fíkni- og geðsjúkdómi á síðastliðnum árum. Blessuð sé minning þeirra. Þau voru öll dýrmætar manneskjur sem voru og verða elskaðar af foreldrum sínum, vinum sínum og öðrum aðstandendum. Ég velti því fyrir mér hvort við sem búum í þessu litla sjávarþorpi á eyju á hjara veraldar gætum reynt að stækka þorpið okkar með því að eiga í markvissu samstarfi við önnur þorp á meginlandinu. Við þurfum nefnilega að horfast í augun við það að við höfum ekki alltaf burði til að bjóða upp á það sama og fjölmennari samfélög geta. Slíkt samstarf gæti aukið aðgengi að úrræðum sem veita samhliða geð- og fíknimeðferð fyrir börn. Jafnvel með sérstakri nálgun fyrir einhverf börn. Að minnsta kosti þangað til við sjáum slík úrræði rísa hér á landi.Með markvissu samstarfi gætum við hlúð að öryggistilfinningu þessara fjölskyldna og dregið úr þessum viðvarandi og sársaukafulla ótta um að missa barnið sitt. Það er vitað mál að taugakerfi foreldra barna með sjúkdóma á borð við þessa eru að fuðra upp - mæður og feður eru komin í algjöra örmögnun og dottin út af vinnumarkaði. Sum tímabundið, önnur á örorku til frambúðar. Allt þetta kostar samfélagið gríðarlega fjármuni, jafnvel um 2 milljónir á dag, ein manneskja, líkt og hinn 18 ára Gauti Einarsson og foreldrar hans hafa bent okkur á en þau hafa verið gjöful á að veita okkur lit inn í reynsluheim sinn síðast liðnar. vikur. Ég færi þeim bestu þakkir fyrir að vera svona ötul á orkuna sína til að reyna að færa þetta fjall. Við þurfum að ræða um hvernig við getum stækkað okkar þorp (eða með öðrum orðum; okkar kerfi), þá sérstaklega fyrir þau börn sem mest þurfa á því að halda.Í minningu þeirra sem þurftu mest á því að halda.Höfundur er varaþingkona Viðreisnar og byggir þessi grein á ræðu hennar, sem flutt var á Alþingi 10. Mars 2026 undir dagskrárliðnum Störf þingsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Ámundadóttir Zoëga Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar