Kveð bæjarstjórn eftir gefandi ár Friðrik Sigurbjörnsson skrifar 4. mars 2026 11:30 Á félagsfundi Sjálfstæðisfélags Hveragerðis var tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista D-listans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar lögð fyrir og samþykkt. Það kann að koma mörgum á óvart að mitt nafn var ekki meðal þeirra sem skipa munu framboðslistann, en uppstillingarnefndin mat það sem svo að þörf væri á algjörri endurnýjun á listanum. Í samtali mínu við nefndina lagði ég áherslu á mikilvægi þess að samhliða endurnýjun væri einnig gætt að því að halda reynslu og þekkingu á listanum og innan bæjarstjórnar. Þau sjónarmið urðu þó ekki ofan á að þessu sinni. Ég er skiljanlega vonsvikinn með niðurstöðuna. Ég hef hins vegar ákveðið að dvelja ekki við þessa ákvörðun nefndarinnar heldur horfa fram á veginn, enda er verkefnið framundan stærra en einn einstaklingur. Læt af beinum afskiptum af sveitarstjórnarmálum Undanfarið hef ég fengið mikla hvatningu frá fólki til að halda störfum mínum áfram og er ævarandi þakklátur fyrir þann stuðning sem mér hefur verið sýndur. Við lok þessa kjörtímabils mun ég þó láta af beinum afskiptum af sveitarstjórnarmálum, að minnsta kosti um sinn. Gefandi og lærdómsrík ár í bæjarstjórn Árin mín í sveitarstjórn hafa verið afar gefandi og lærdómsrík, þótt þau hafi stundum reynt á. Ég lít stoltur um öxl þegar ég fer yfir þau verkefni sem ég hef komið að og það sem áunnist hefur fyrir Hveragerðisbæ og D-listann í Hveragerði. Í störfum mínum hef ég fengið tækifæri til að kynnast fjölmörgu öflugu fólki og fyrirtækjum í Hveragerði, sem og samstarfsfólki í sveitarstjórnum víða um land. Sú reynsla og þau kynni munu fylgja mér um ókomin ár. Þakka traustið Að lokum vil ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt sem kjörnum fulltrúa öll þessi ár. Ég mun ljúka þessu kjörtímabili af heilindum, líkt og ég var kjörinn til í síðustu kosningum. Bæjarbúar eiga skilið breytingar í vor og mun ég að sjálfsögðu styðja Sjálfstæðisflokkinn hér eftir sem hingað til. Ég óska nýju fólki velfarnaðar í störfum sínum í bæjarstjórn Hveragerðis að afloknum kosningum 16. maí næstkomandi. Fráfarandi oddviti D-listans í Hveragerði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Hveragerði Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Á félagsfundi Sjálfstæðisfélags Hveragerðis var tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista D-listans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar lögð fyrir og samþykkt. Það kann að koma mörgum á óvart að mitt nafn var ekki meðal þeirra sem skipa munu framboðslistann, en uppstillingarnefndin mat það sem svo að þörf væri á algjörri endurnýjun á listanum. Í samtali mínu við nefndina lagði ég áherslu á mikilvægi þess að samhliða endurnýjun væri einnig gætt að því að halda reynslu og þekkingu á listanum og innan bæjarstjórnar. Þau sjónarmið urðu þó ekki ofan á að þessu sinni. Ég er skiljanlega vonsvikinn með niðurstöðuna. Ég hef hins vegar ákveðið að dvelja ekki við þessa ákvörðun nefndarinnar heldur horfa fram á veginn, enda er verkefnið framundan stærra en einn einstaklingur. Læt af beinum afskiptum af sveitarstjórnarmálum Undanfarið hef ég fengið mikla hvatningu frá fólki til að halda störfum mínum áfram og er ævarandi þakklátur fyrir þann stuðning sem mér hefur verið sýndur. Við lok þessa kjörtímabils mun ég þó láta af beinum afskiptum af sveitarstjórnarmálum, að minnsta kosti um sinn. Gefandi og lærdómsrík ár í bæjarstjórn Árin mín í sveitarstjórn hafa verið afar gefandi og lærdómsrík, þótt þau hafi stundum reynt á. Ég lít stoltur um öxl þegar ég fer yfir þau verkefni sem ég hef komið að og það sem áunnist hefur fyrir Hveragerðisbæ og D-listann í Hveragerði. Í störfum mínum hef ég fengið tækifæri til að kynnast fjölmörgu öflugu fólki og fyrirtækjum í Hveragerði, sem og samstarfsfólki í sveitarstjórnum víða um land. Sú reynsla og þau kynni munu fylgja mér um ókomin ár. Þakka traustið Að lokum vil ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt sem kjörnum fulltrúa öll þessi ár. Ég mun ljúka þessu kjörtímabili af heilindum, líkt og ég var kjörinn til í síðustu kosningum. Bæjarbúar eiga skilið breytingar í vor og mun ég að sjálfsögðu styðja Sjálfstæðisflokkinn hér eftir sem hingað til. Ég óska nýju fólki velfarnaðar í störfum sínum í bæjarstjórn Hveragerðis að afloknum kosningum 16. maí næstkomandi. Fráfarandi oddviti D-listans í Hveragerði
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar